Alþýðumaðurinn - 20.02.1945, Page 1
ALÞÍÐUMAÐURINN
XV.
arg.
Þriðjudaginn 20. Febrúar 1945
8. tbl.
Atvinnumálin enn
Fyrir frámunalegt framkvæmda-
leysi bæjaryfirvaldanna standa
verkamenn bæjarins nú frammi
fyrir þeim raunveruleika að at-
vinnuleysið er komið yfir þá.
Þeir hafa treyst því að það at-
vinnufyrirtæki, sem búið er að á-
kveða að koma upp og þeim hefir
verið lofað vinnu við yfir veturinn,
mjndi verða eitthvað annað en
stórar fyrirsagnir skrumgreina í
blöðunum. Þeir hafa trúað því að
þeir dagar væru á enda þegar
mögru kýrnar eru árlega látnar
éta upp þær feitu — þ. e. búið til
atvinnuleysi yfir veturinn til að éta
upp sumarþénustuna — og meira
til.
En svona er það og verður þar
til verkalýðurinn hættir að fela
þeim forystuna, sem ekkert vita
hvað atvinnuleysi er og safna auði
þegar aðrir berjast við skortinn.
V ið atvinnuleysisskráninguna,
sem fór fram í byrjun þessa mán-
aðar, kom í ljós að til voru þeir
verkamenn, sem enga vinnu höfðu
haft síðan í Október s. 1. Og þótt
um einhleypa menn væri að ræða,
sem þó ekki var eingöngu, þá geta
menn gert sér í hugarlund hvað
sumartekjurnar eru lengi að fara,
þótt öll sparsemi sé við höfð, þeg-
ar þær eru ekki meiri en átta
stunda vinna á dag gefur í aðra
hönd. En hvað er og verður þá
um fjölskyldufeður, sem eru í
þessum hópi, eða hafa haft 10—
20 daga vinnu yfir þann tíma sem
skráningin nær yfir? Og svo al-
gert atvinnuleysi fram undan allt
til vors.
Hér þarf eitthvað að gjöra. Hér
í blaðinu hefir verið sýnt frarn á
að vinna verkamannanna (verka-
fólksins) er undirstaðan undir
gengi bæjarfélagsins. Það eru því
svik við bæjarfélagið að láta þá
ganga atvinnulausa. Hyggnir at-
yinnurekendur leggja á það á-
herslu að hafa næg verkefni handa
því fólki, sem hjá því vinnur. Þar
veltur ekki eingöngu á atvinnu-
laununum heldur því að láta fram-
leiða, búa í haginn, byggja upp.
Bæjarfélagið á að fara eins að,
og hagnaður þess mun verða
meiri.
Einginn getur látið sig þessi
mál engu skifta. Ráða verður að
leita til að reka atvinnuleysið á
dyr.
✓
A framhaldsaðalfundi Alþýðu-
flokksfélagsins á Fimmtudaginn
kemur verða þessi mál til umræðu
og gerðar í þeim ályktanir. Er
þess vænst að félagsfólkið fjöl-
menni á fundinn og taki þátt í um-
ræðunum um málið og fylgi þeim
tillögum, sem þar verða gjörðar.
Ekkert vinnst án baráttu og hana
verður að hefja nú þegar.
Akureyrarkonur!
Allar þær Einingar-konur og
aðrar, sem ætla sér að gefa barna-
föt í Sovét-söfnunina, en hafa enn
ekki afhent, eru vinsamlega beðnar
að senda þau fyrir 25. Febrúar til
undirritaðra.
Guðfinna Hallgrímsdóttir Hafnar-
str. 23B, Guðrún Sigurðardóttir,
Lundargötu 7, Ingibjörg Eiríks-
dóttir Þingvallastræti 14.
FRA MHA LDS-A ÐA LFU ND UR
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAGS
AKUREYRAR
verður haldinn í Verslun-
armannahúsinu n. k.
Fimtud. 22. þm. lcl. 81?2 e.h.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Kosin stjórnogtrúnaðarráð
3. Lagabreytingar. •
4. Rædd atvinnumál.
5. Orðið er laust.
Fastlega skorað á alla félagsmenn
að mæta.
S t j ó r n i n .
lausafe y^armeX.bezt
umfaanlegum kprum
tnvtrcurruf íslank
REYKJAVÍK