Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 24.12.1950, Page 3

Alþýðumaðurinn - 24.12.1950, Page 3
Alþýðumaðurinn 9 Nií rennur jólastjarna og stafað geislum lætur á strák í nýjum buxum og telpu í nýjum kjól. Hve kertaljósin skína og sykurinn er sœtur og söngurinn er fagur, er bömin halda jól. Og mitt í allri dýrðinni krakkakríli grætur - það kemur stundum fyrir, að börnin gráta um jól - en bráður gleymist sorgin, og barnið huggast lætur og brosir gegnum tárin sem fífill móti sól. Þá klappa litlar hendur og dansa fimir fætur, og fögrum jólagjöfum er dreift um borð og stól. Nú rætast margar vonir og draumar dags og nætur. Ó, dæmalaust er gaman að lifa svona jól. Og ellin tekur hlutdeild í helgi jólanætur, er heimur skrýðist Ijóma frá barnsins jólasól. En innst í hugans leyndum er lítið barn, sem grætur - og litla barnið grætur, að það fœr engin jól. O

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.