Alþýðumaðurinn - 20.03.1951, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐUMAÐU RIN N
Þriðjudagur 27. febróar 1951
EfnaliEgssanivinnustofnunin
styrkir jarðvegsrannsóknir-hér
á landi.
t
Vefnaðarvara
Léreft, flónel, sirz, tvistfau, gervisilki.
Sokkar, kvenna, karla og barna
nýkomið.
Sala hefst niiðvikudaginn 21. þ. m. og verður aðeins
selt félagsmönnum til 29. þ. m.
Vöruávísanir verða ekki gefnar út fyrir þessurn vörum. Þó verður
að takmarka úthlutun á kvensokkum við 1 par til félagsmanns. —
Kaupfélag verkamanna.
Athyglisvert
í vaxandi dýrtið athuga hyggnir menn hvar þeir fá mest fyrir
krónuna. Þeir, sem þurfa að fá sér föt, ættu að athuga að sauma-
laun vor eru:
A karlmannafötum (jakka og buxum) með tilleggi kr. 518.42
Á kvenkápum, án tilleggs ...... — 355,35
Stuttur afgreiðslufrestur.
SAUMASTOFA GEFJUNAR
— Húsi K.E.A., 3. hæð —
Kvikmyndatímaritið,
Filman
er nýkomið.
Bókaverzlunin EDDA, sími 1334 og
Bókaverzl. Björns Árnasonar, sími 1180, Akureyri
Nú nýverið er farinn til Banda-
ríkjanna ungur háskólastúdent, Ein-
ar Gíslason, í þeim tilgangi að nema
og kynna sér hina tæknilegu hlið á
flokkun og kortleggingu jarðvegs.
Mun hann dvelja við nám í Banda-
ríkjunum í tæpa fjóra mánuði, en
að því loknu koma hingað heim og
hefja hér starf á sviði jarðvegsrann-
sókna í samvinnu við jarðvegsfræð-
ing Atvinnudeildar Háskólans. Deild
sú í landbúnaðarráðuneyti Banda-
ríkjanna, sem hefir með höndum
jarðvegsrannsóknir þar, inun að
mestu leyti skipuleggja nám Einars
þann tíma sem hann dvelur vestra.
Næsta sumar mun svo bandarísk-
ur jarðvegsfræðingur með víðtæka
þekkingu og reynslu varðandi flokk-
un jarðvegs, koma hingað til lands
og hafa hér um tveggja mánaða við-
dvöl. Mun hann þann tíma er hann
dvelur hér, vinna að því með starfs-
liði Atvinnudeildarinnar á sviði
jarðræktar, að skapa sem beztan
grundvöll fyrir flokkun og kortlegg-
ingu íslenzks jarðvegs svo og að
koma þessum og öðrum samhliða
rannsóknarefnum í sem ákveðnast
horf.
Efnahagssamvinnuskrifstofan í
Washington hefir veitt fé, er svarar
öllum erlendum kostnaði í sambandi
við framkvæmdir þessar og er það
hluti af þeirri tæknilegu aðstoð er
íslenzkir atvinnuvegir hafa hlotið
frá efnahasgsamvinnunni og hefir
svipuð tæknileg aðstoð verið veitt á
ýmsum öðrum sviðum atvinnulífs-
ins hér á landi svo sem kunnugt er.
Á liinn bóginn hefir dr. Charles E.
Kellogg, forstjóri deildar þeirrar í
landbúnaðarráðuneyti Bandaríkj-
anna. er annast flokkun jarðvegs þar
i landi, alveg sérstaklega greitt fyrir
þessu máli og undirbúið það í sam-
vinnu við dr. Björn Jóhannesson,
sem hefir með höndum stjórn jarð-
vegsrannsókna í Atvinnudeild Há-
skólans.
Dr. Charles E. Kellogg kom hing-
að til lands s. 1. sumar einmitt til
þess að kynna sér aðstæður og vinna
að undirbúningi frekari jarðvegs-
rannsókna hér á landi í samráði við
dr. Björn Jóhannesson. Kellogg hef-
ir samið skýslu um heimsókn sína
hingað s. 1. surnar og mun hún
bráðlega verða birt í Frey, tímariti
Búnaðarfélags íslands.
Flokkun og kortlegging lands er
mjög mikilsverður liður í jarðvegs-
rannsóknum yfirleitt og miða að því
að ákveða hvaða land og jarðvegur
hentar bezt fyrir hverja tegund rækt-
unar og gefur mest af sér. Má þar
með t. d. koma í veg fyrir að lagður
sé kostnaður í framræslu og annan
undirbúning jarðvegs, sem síðar
mun reynast miður vel til ræktunar
og gefa hlutfallslega rýra uppskeru.
Rikisstjórn og Alþingi hafa sýnt
ríkan skilning á þörf aukinna jarð-
vegsrannsókna hér og með sérstök- j
um fjárframlögum gert mögulega
framkvæmd þess starfsundirbúnings,
er hér um ræðir.
Nýja tímoritið
Heima er bezt
er alþýðlegt og skemmtilegt.
Eignisl það frá byrjun.
BÓKAÚTGÁFAN NORÐRI
Vatnsglös
Trésleifar,
„rúnnar“ og „ávalar“
Hnífapör
Skeiðar
Súpuausur.
Olíulampar 8'"
Lampaglös 10"'
nýkomið
Kaupfél. verkamanna
Barnatúttur
nýkomnar.
Kaupfél. verkamanna
HVITUR TVINNI
RENNILÁSAR
BANDPRJÓNAR
nýkomið.
Kaupfél. verkamanna.
Fjölbreytt úrval af
Sælgæti
Kaupfélag
Verkamanna
— Matvörudeild —
Púðursvk ur
— Kr. 4.90 kg. —
nýkominn.
KaupféL verkamanna
— Matvörudeild —
Fermingarfataefni
— útlent —
nýkomið.
SAUMASTOFA K. V. A.