Alþýðumaðurinn - 12.06.1951, Blaðsíða 1
XXI. árg.
Þriðudagurinn 12. júní 1951
21. tbl.
Frá aðalfuiidf fJigrerðarfélags Akureyringfa h.f.
Stérflcsilei úthoma d rekstrí togaranna IflO
Samanlagl aflaverðmæti Kald-
bak§ og Nvalbak§ nain tæpnm
ÍO miljoiinm krona
Útgreidd vinnulaun á árinu námu sam-
tals 4564074 krónum. Nýr togari keypt-
ur. - Hafin bygging fiskverkunarhúss.
Hjá félaginu vinna nú að staðaldri um
40 manns í landi.
Aðalfundur Útgerðarfélags Ak-
ureyringa h. f. var haldinn s. 1.
laugardag. Formaður félagsstjórn
arinnar, Helgi Pálsson, bæjar-
fulltrúi, setti fundinn og tilnefndi
Erling Friðjónsson, fyrrv. kaup-
félagsstjóra, fyrir fundarstjóra
og Pétur Hallgrímsson, bæjar-
ritara, fyrir fundarritara. —
Fundurinn var vel sóttur. Um-
boðsmenn yfir 3000 atkvæða
mættir.
Formaður félagsstjórnar flutti
yfirlitsræðu yfir slörf félagsins
s. I. ár. Fara hér á eftir nokkur
atriði úr ræðu hans.
Rekstur
togaranna.
Togaranir Kaldbakur og Sval-
bakur fóru samtals 9 söluferðir
til útlanda á árinu. En, eins og
vitað er, brást markaðurinn fyrir
ísfisk, þegar fram á árið kom.
Tók félagsstj órnin þá Krossanes-
verksmiðjuna á leigu og togar-
arnir hófu karfaveiðar í apríl-
mánuði. Voru þær veiðar rekn-
ar þar til í byrjun desember.
Aflamagnið, sem lagt var upp í
vinnslu í Krossanesi nam 14.400
smál. Auk þess lögðu togararnir
upp saltfisk á þessum tíma, sem
nam 481 sinál. Greiðsla til Krossa
nesverksmiðjunnar nam 482371
krónum. Vinnulaun greidd þar
ytra, námu 764869 krónum.
Samanlagður afli togaranna á
árinu nam 9603752 krónum —
níu milljónum, sex hundruð og
þremur þúsundum og sjö hundr-
uð fimmtíu og tveim krónum.
Greidd vinnulaun
á sjó og landi.
Greidd vinnulaun félagsins á
árinu námu: Á sjó — laun til
skipshafnanna á Kaldbak og
Svalbak — 2741781 krónur. —
Vinna í landi 1057423 krónur.
Samtals ca. 4564074 krónur, og
eru þá vinnulaunin til Glerár-
þorpsbúa talin með. Togaranir
voru afskrifaðir um 1451893
krónur. Kaldbakur mn 701866
krónur og Svalbakur um 750026
krónur. Er þetta ekki fyllilega eins
og lög leyfa, að greitt hefði ver-
ið. Aðrar eignir félagsins voru
afskrifaðar eins og venja er til.
Húsbyggingar o. fl.
Það fór að líkum, að félagið
hlaut að koma upp húsnæði fyrir
saltfisksverkun, þegar ganga varð
inn á nýjar brautir um verkun á
afla togaranna, þegar ísfisksmark-
aðurinn brást. Fjárfestingarleyfi
fékkst 16. maí, og byggingafram-
kvæmdir hófust, fyrstu dagana í
ágúst. Var húsbyggingunni valinn
staður utar- og neðarlega á Odd-
eyrinni. Er hér um stóra bygg-
ingu að ræða. Grunnflötur henn-
ar 1210 fermetrar, en áætlaður
grunnflötur þessara bygginga er
3412 fermetrar. Er hálf aðalálm-
an og ein hliðarálman nú þegar
byggð. Verður þarna verkaður
og þurrkaður saltfiskur. Kostn-
aður við þessar byggingar er
þegar orðinn ca. 978 þúsundir
króna. Þarna hefir og verið
steypt „plan“ 51 % m. langt og
15 m. breitt til afnota við mót-
töku fiskjar. (Rétt er að geta
þess í þessu sambandi verður á
næstunni byggð bryggja fram-
undan þessum húsum, þar sem
togarnir geta athafnað sig). Fisk-
verkun er nú hafin þarna, og
vinnur þar margt fólk daglega.
Eins og undanfarin ár starfar
netahnýtingarverkstæði á vegum
félagsins með um milli 10 og 20
manns. í sambandi við það hefir
fólk út um bæ, og sjúklingar á
Kristneshæli, töluverða atvinnu
við netahnýtingar. Tekur verk-
efni heim til sín í ákvæðisvinnu.
Nýr togari
keyptur ó órinu.
25. maí 1950 var kallaður sam-
an hluthafafundur í útgerðarfé-
nýjum togara og ákveða um
aukningu hlutafjárins um 2 %
millj. króna. Var þessi hlutafjár-
auking samþykkt nær einróma á
fundinum, og skrifuðu flestir
fundarmanna sig fyrir nýjum
hlutum. Var svo söfnuninni hald-
ið áfram og nemur hún í dag
rösklega 2% millj. krónum. ■—
Samningar um togarakaupin voru
undirritaðir 1. des. 1950 og tog-
arinn, sem hlaut nafnið Harðbak-
ur, kom hingað annan jóladag.
Vafalaust bezta jólagjöfin, sem
bænum hefir nokkurntíma hlotn-
azt. Sæmundur Auðunsson varð
skipstjóri, og skipshöfnin af Kald-
bak fylgdi honum að mestu yfir
á Harðbak. Við skipstjórn á
Kaldbak tók Gunnar, bróðir
Sæmimdar. Harðbakur fór í
fyrstu veiðiför sína 4. janúar á
eftir.
Að lokinni skýrslu formanns
las framkvæmdastj óri félagsins
upp reikninga þess og voru þeir
samþykktir einróma. Þá kvaddi
Gísli Kristjánsson, útgerðarmað-
ur sér hljóðs. Þakkaði stjórn fé-
lagsins, f ramkvæmdastj óra og
skipshöfnum togaranna og öðru
starfsfólki ágætt starf á árinu.
Tóku fundarmenn undir þetta
með öflugu lófataki. Þá fór fram
kosning stjórnar og endurskoð-
enda og voru þeir allir endur-
kosnir. Samkvæmt tillögu stjórn-
arinnar var samþykkt að greiða
hluthöfum 5% arð af hlutabréf-
unum eldri. Hlutabréfin í Harð-
bakssöfnuninni voru ekki greidd
fyrr en 6Íðari hluta ársins, og
verður því ekki greiddur arður
af þeim í þetta sinn.
I lok fundarins þakkaði fram-
kvæmdastjóri . öllum, sem vel
höfðu starfað að heill og fram-
gangi félagsins s. I. ár, fyrir góða
samvinnu og gott starf. Sérstak-
lega beindi hann máli sínu til
Sæmundur Auðunsson, skip-
stjóra, sem nú í fyrsta sinn sat að-
alfund félagsins, og fögnuðu
fundarmenn honum ákaflega með
lófataki.
í næsta blaði verður þessi
30 luku próíi
i Háskólanum
Embættis- og kandidatsprófum
er nú lokið í Háskólanum. Alls
luku um 30 prófum, flestir í lög-
fræði eða 16 talsins. Hér fylgir
upptalning þeirra, sem próf tóku
og einkunnir þeirra:
Guðfrœði:
Björn H. Jónsson II einkunn
betri, 132 5/6 stig, Magnús Guð-
mundsson I 164 5/6, Þorbergur
Kristjánsson I 205/2, Þórir Kr.
Þórðarson I 194 5/6.
Lœknisfrœði:
Alma Thorarensen I 170, Gunn-
laugur Snædal I 156%, Jakob V.
Jónasson II betri 139, Jón Þor-
steinsson I 161%, Tryggvi Þor-
steinsson I 175%.
Lögfrœði:
Ármann Jónsson I 186, Ásgeir
Magnússon I 208%, Guðmundur
Benediktsson II betri 122, Gunn-
ar Helgason II betri 172%, Héð-
inn Finnbogason II betri 176%!,
Ingimar Einarsson I 203%, Jón
Finnsson I 213%, Jón Skaftason
I 208, Ólafur Jónsson I 182%,
Pálmi Jónsson II betri 175%,
Sigurður Br. Jónsson I 182%,
Stefán Guðjohnsen I 202, Stefán
Hilmarsson II betri 174%, Stefán
Sigurðsson II betri 166%, Sveinn
Snorrason I 186%, Valtýr Guð-
mundsson I 190.
V iðskipta frœð i:
Gunnar Zoéga I 308%, Hörð-
ur G. Adólfsson I 303%.
íslenzk frœði :
Flosi Sigurbjörnsson I 128%,
Haraldur Matthíasson I 135%,
Þórður Jónsson I 110.
Frá Ferðafélagi
Akureyrar
Kvöldferð
verður farin annað kvöld (mið-
vikudag 13. þ. m.) kl. 7,30 e. h.
frá Ráðhústorgi. Ekið verður
hringferð um Svarfaðardal að
Dalvik.
Farmiðar seldir hjá Þorsteini
Þorsteinssyni í Sjúkrasamlagi
Akureyrar.
Ferðanefndin.
fundur, útgerðarfélagið og áhrif
þess á hag bæjarfélagsins, nánar
rætt.
Edvðrð
Sigurgeirsson
sýndi s. I. þriðjudagskvöld kvik-
myndir í Samkomuhúsi bæjarins,
m. a. af björgun áhafnar flugvél-
arinnar Geysis. Allar voru mynd-
irnar prýðilega gerðar, eins og
ætíð hjá Edvard. Auk myndar-
innar af björguninni, sem var hin
fróðlegasta, er sérstök ástæða til
að benda á kvikmyndina Sumar
í sveit, sem var í senn fróðleg og
sérstaklega falleg.
---X----
Reykjnvíkur
hefir undanfarin kvöld sýnt í
Samkomuhúsi bæjarins gaman-
leikinn „Elsku Rut“ við forkunn-
argóða aðsókn og undirtektir. —
Leikstjóri er Gunnar R. Hansen,
en leikendur Anna Guðmunds-
dóttir, Erna Sigurleifsdóttir,
Guðný Pétursdóttir, Nína Sveins-
dóttir, Sigrún Mangúsdóttir,
Gunnar Eyjólfsson, Árni Tryggva-
son, Vilhelm Norðfjörð og Þor-
steinn O. Stephensen.
Sjónleik þennan hefir leikfélag-
ið sýnt um 50 sinnum í Reykja-
vík í vetur og sunnanblöðin öll
birt itarlega leikdóma um hann,
sem Akureyringum munu yfirleitt
kunnir. Hafa leikendur hlotið
mikið lof fyrir meðferð sína á
hlutverkunum.
------X-----
Konsert
Finska söngkonan Pirkko Gall-
en-Kallela og Píanóleikarinn Cyrel
Szalkiewicz héldu konsert í Nýja-
Bíó s. 1. sunnudagskvöld.
Viðfangsefni voru eftir Sibeli-
us, Strauss, Verdi, Chopin og
Kilpinen, og var listamönnunum
forkunnarvel tekið af áheyrend-
unuin, sem annars voru leiðinlega
fáir. Mun því bæði hafa valdið
fjarvera ýmsra úr bænum, en ekki
síður hitt, að þegar á laugardag
höfðu allir aðgöngumiðar að
leiknum „Elsku Rut“ verið seldir
upp fyrir sýninguna á sunnudags-
kvöldið.
------X-----
Sextugur er i dag Jón Jakobsson,
Ránargölu 6, Akureyri.
Fimmtugur varð í gær Friðjón Ólafs-
son, Hafnarstræti 71, Akureyri.
Fimmtugur verður 15. þ. m. Leonard
Albertsson, verkstjóri, Akureyri.
•
Mikil þátttaka er í kvöldferðum
Ferðafélagsins. í síðustu hópferð voru
t. d. 90 manns, og komust færri en
vildu.