Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1952, Blaðsíða 3

Dýraverndarinn - 01.09.1952, Blaðsíða 3
rijátt mu^n, Ljómalínd og Stella Söguþáttur sá, sem hér fer á eftir, gerðist aðallega á timabilinu frá vorinu 1949 til sum- arsins 1950. En fyrir aðfaraleysi í mér hef ég ekki komið i verk að segja frá þessu merki- lega atviki úr lífi dýranna, fyrr en þetta. At- vik þetta sýnir, svo að ekki verður um villzl, að skepnurnar bindast tryggðaböndum, sem ekki er svo auðvelt að slita og varla sársauka- laust okkur mönnum að gera tilraunir til þess. Það er ekki hægt að segja svo frá þessu at- viki, að ekki sé fyrst minnzt lítillega fyrsta æviárs Ljómalindar, en svo hét kvíga, sem ég keypti af nágranna mínum haustið 1947. Hún var þá nýfædd. Ljómalind dafnaði vel um veturinn og varð mjög bráðþroska. Um vorið 1948 gekk hún — þá misserisgömnl, og hélt uppi gangmálum fram á sumar eða þar til hún festi fang af óhöppum. Likaði mér það stórilla og var að umsegja að lóga henni um liaustið, en vegna barnanna fékk ég þvi ekki ráðið, því að með þeim og henni hafði tekizt mikil vinátta, enda var Ljómalind snemma mannelsk. Gældu börnin oft timum saman við liana og léku sér kringum liana, og undi hún sér vel í þeim félagsskap. Strax, fyrsta veturinn, sem Ljómalind lifði, var hún hústofn eldri dóttur minnar og mjólk- aði hún hana kvölds og morgna, enda var Ljómalind svo þæg, að hún hreyfði sig ekki, „Mæðgurnar" — kvígan Ljómalind og gymbrin Stella — sýnilega staddar úti í „guðsgrænni náttúrunni“, þegar myndin var tekin. Saga þeirra, sem fylgir hér með skýrt og skilmerkilega í letur færð, er ein þeirra mörgu og frásagnarverðu sagna, sem gerast meðal dýranna — auk heldur ein af þeiin eftirtektarverðari. — Eða hvað segja les- endurnir um það að loknum lestri hennar? þó að telpan væri að fitla við spenana á henni. En þetla fitl telpunnar við Ljómalind átti eftir að draga dilk á eftir sér, eins og fram kemur síðar. Nú leið fram á vetur og að þeim tíma, er Ljómalind færi að gera að. Lét ég hana þá, laust eftir sumarmál, á bás hjá mjólkurkún- um, en fram að þeim tíma var hún með geld- neytum í útihúsum. Þegar sú breyting var gerð á meðferð hennar, voru um tveir mán- uðir til tals. í fjórðu viku sumars eignaðist ég skepnu, sem krakkarnir kölluðu Stellu, og er hún

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.