Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1952, Blaðsíða 7

Dýraverndarinn - 01.09.1952, Blaðsíða 7
DYRAVERNDARINN 37 ^mtóóon FARFUGLINK Sunnan lengst úr löndum leiðstu á vængjum þöndum, fagri fuglinn minn, hreiður til að taka, til að syngja og kvaka. Kæri gestur, vertu velkominn! Sveifst þú yfir öldum, oft mót stormi köldum, nótt og nýtan dag. Nú er náð til strandar, nú, er létt þú andar, syngur þú þitt sigurfararlag. Sjáðu blána á brúnum, bletti grænka á túnuin, læki líða um sand. Sjá, hve sólin þíðir, sviftir snjó og prýðir okkar beggja elskað fósturland, Foldu fjallahvíta fýsti þig að líta. Er hún ættjörð þér? Hyggstu hér að finna hreiður feðra þinna — ungi vinur, ertu borinn hér? Syng þú sætum rómi, syng þú ungu blómi viðkvæm vögguljóð. Syng þú hátt í hlíðum, hreinum rómi og blíðum, þar sem bergmál bezt þín finna hljóð. NIÐINGSVERK Ég verð að stinga niður penna til að segja frá atburði, sem ég var sjónarvottur að. Við vorum þrir saman. á gangi, og einn okkar var með liyssu um öxl. Landið, sem leið okkar lá um, var grýtt og sendið. Veiðimaðurinn hafði nokkrum sinnum skotið á fugla, án þess að honum tækist að vinna þeim mein. Svo komum við auga á heiðlóu. „Skjóttu hana ekki, bað ég, en hann lagði byssuna að vanganum og skotið kvað við. Lóan flaug upp, og ég klappaði saman lófunum af fögnuði, en fugladráparinn varð reiður og sagði, að hann skyti bara næstu lóu, sem hann saú. Rétt á eftir sáum við, að lóan settist aftur skannnt frá okkur. Fugladráparinn skaut aftur á hana, og aftur sá ég hana fljúga upp, en að þessu sinni komst hún ekki langt; allt í einu steyptist hún til jarðar. Þegar við komum að henni, lá hún þar í blóði sínu og baðaði vængj- unum. Dráparinn reiddi byssuna til höggs og sló hana með byssuskeftinu, en tókst samt ekki að murka úr henni lifið, og þarna lá hún og kvaldist. Þá greip ég hana og kippti henni úr hálsliðunum. Mér finnst þetta, og fleira þessu líkt, svívirði- legt af fullorðnum manni, og mætti efalaust kæra svona lagað. Ef menn eru að skjóta að gamni sínu, ættu menn heldur að skjóta í mark heldur en lifandi dýr - allra sízt ættu menn að murka lífið úr dýrunum á svona svivirðilegan hátt. AthSo frá ritstjóra Þessi siutta saga greinir ljóst og lifandi frá litlu atviki — en ljótu. Það, sem gerðist þarna, er and- styggð öllu sæmilegu fólki, og má þó búast við, að áþekkir atburðir, og ])aðan af viðbjóðslcgri, eigi sér stað ærið oft og viða. Þvi verður naumast á móti mælt, að menn, sem drepa fugla eða önnur dýr einasta sér til gamans, verðskuldi oftast laklegan vitnisburð að flestu leyti. Þó má vera, að þeir eigi sér stundum einhverjar afsakanir til dæmis illt umhverfi og ófull- komið uppeldi, þess vegna er hafður hér sá fyrirvari, sem felst i „oftast“ og „að flestu leyti“. — Hitt er svo allt annað mál og óskylt framan rituðu, að við mennirnir verðum oft að drepa dýrin unnvörpum, þegar svo ber undir. Það gerum við ekki okkur til gamans, heldur af nauðsyn, og munurinn á þessu tvennu markar skörp takmörk milli menningar og sið-

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.