Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1952, Page 4

Dýraverndarinn - 01.09.1952, Page 4
34 DYRAVERNDARINN annar aðilinn að þætti þessum. Það var svart gymbrarlamb, sem ég fékk hjá mótbýlismanni mínum. Einnig lét hann mig liafa svartan hrút, svo að Stella litla þyrfti ekki að vera ein. Þessi lömb voru tvilembingar, sitt undan hvorri á. Gat hann ekki haft þau með mæðr- um sínum, þvi að þær voru mæðiveikar og áttu nóg með að ala önn fyrir einu lambi. Svarta hrútinn vandi ég undir á frá mér, sem missti, og veslings Stella varð ein eftir. Tók henni að leiðast vistin í hlöðunni, en þar böfðu lömbin verið liöfð. Fór hún að elta mig fram i fjós, þegar ég var að gefa. í fyrstu reyndi ég að hamla því, að hún kæmist í fjós- ið, en gafst fljótlega upp, því að oftast fann Stella einhverja smugu. Ekki liafði Stella verið lengi í fjósinu, er hún fann sér athvarf hjá Ljómalind. Þar var ekki amazt við henni, hvorki af okkur eða kvígunni. Gekk svo fram um hríð, að ekkert bar til tíðinda. Sambúð kusu og gybbu var svo góð og ástúðleg, að ekki varð á betra kosið. Var svo komið, að þær máttu vart hvor af annarri sjá. En nú brá svo við, að telpurnar fóru að hafa orð á því, að Stella væri farin að sýna ólund yfir pelanum sínum. „Hún hristir sig alla og skælir,“ sögðu þær, „og vill alls ekki sjúga.“ Hvað var nú á seyði? Var gybba að missa lystina? Á þessu fékkst þó ofur einföld skýr- ing, þegar betur var að gáð, sem sé sú, að hún saug vinkonu sína, Ljómalind. Við rann- sókn kom líka i ljós, að mjólk var komin í júgur Ljómalindar, þó að fullur mánuður væri til burðar. En þeSs gætti Stella vandlega að sjúga aldrei vinkonu sína, meðan við vorum í l'jósinu. Ég sætti því lagi og njósnaði um þær og stóð þær að verki. Og mikil var undr- un barnanna, að sjá með eigin augum svarl lamb sjúga bvita kú. — Og var það nokkur furða! Ég lagði nú kapp á að loka gymbrina í hlöðunni. En livernig sem farið var að slapp Stella alltaf öðru hvoru til vinkonu sinnar og var þá ekki sein á sér að fá sér sopa, enda vel tekið á móti henni. Gekk þetta svo um hríð, þar lil ég gafst upp við að stía þeim í sundur, enda hvort tveggja, að gimbrin slapp alltaf öðru hvoru og eins hitt, að Ljómalind undi ekki orðið nokkra stund án lambsins. Sleit hún sig lausa hvað eftir ann- að og stóð baulandi við hlöðudyrnar. Þær urðu því frelsinu fegnar, þegar ég ákvað að lála þær í friði. Var Stella i básnum hjá Ljóma- lind öllum stundum meðan bún át, en hopp- aði upp i stallinn og lá þar við höfuð henni milli mála. Stundum kom það fyrir, þegar Ljómalind var lögzt, að gymbrin prilaði upp á bak henni, lá þar og teygði hausinn fram. Lifðu nú „mæðgurnar“ ánægðar og óáreitt- ar, þar til farið var að beita kúnum. Fylgdi Stella „móður“ sinni i hagann og kom þá margt eftirtektarvert atvikið fyrir. Ljómalind mátti ekki af Stellu sjá, en lambið, sem átti gott, bvað fæði snerti og allan viðurgern- ing, réði sér ekki fyrir fjöri og var alltaf að leika sér. Kom þá iðulega fyrir, að það hopp- aði yfir skurði eða fór i gegnum girðingu og elli Ljómalind það alltaf, hvað sem í vegi var, og var mesta furða, hvað hún komst, svo þung- fær sem hún var orðin, alveg komin að burði. * :!: * Nú var úr vöndu að ráða fyrir mig, þar sem búast mátti við, að Stella hirti mestan hluta mjólkurinnar úr Ljómalind eftir burð- inn. Ákvað ég að gera nú róttækar ráðstaf- anir til að stía þeim sundur, enda fannst mér lambseldið dýrt, ef mér ónýttist kýrin. Var það ráð tekið að koma Stellu eitthvað langt í burtu, ef vera mætti, að lnin rataði ekki lieim. En hér fór á annan veg. Ég tók Stellu og markaði hana, fékk mér bil og ók með liana langt í burtu yfir vatns- föll og gegnum girðingar. Þetta var að kvöld- lagi, jiegar búið var að láta inn kýrnar. En Stella litla skilaði sér heim strax um nóttina. Var hún þá tekin strax og sett inn og farið með liana næsta kvöld langt inn í fjall, og virtist það ferðalag ætla að bera árangur, því að hún var ekki komin um morguninn. En um miðjan dag kom hún, er kýr voru komnar i hagann, og var þá gaman að sjá þær hittast, Ljómalind og Stellu, þar sem þær liringsner- ust hvor um aðra, þar til Stella fékk sér spen- ann og varð Ljómalind þá róleg og stóð og

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.