Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1947, Side 10

Dýraverndarinn - 01.09.1947, Side 10
dyraVerndarinn 40 Nokkrar fyrirspurnir Svohljóðandi í'yrirspurnir haí'a Dýravernd- aranum borizt: 1) Er það leyfilegt að rota sauðlé — futl- orðið og lömb — með venjulegum hamri, þann- ig, að pannan (krúnubeinið) sé brotin? Svar: Það er algerlega óleyfilegt. Helgríma eða byssa eru einu aflífunartæki á sauðfé, sem lögleg eru. Drápsaðferð sú, sem fyrirspurnin getur um, er hrottaleg mjög, og má heita furðu- legt, ef svo villimannlegt atbæfi á sér stað hér á landi. 2) Er leyfilegt að snara rjúpur og hengja þær síðan í greip sinni? Svar: Veiðiaðferð þessi mun ekki varða við lög, þó að hún sé allt annað en mennileg á að sjá. 3) Væri ekki liugsanlegt, að það tækist að liafa eftirlitsmenn eða félög i hverjum hreppi, til þess að líta eftir ýmsu, sem við kemur Dýraverndunarfélagi Islands? Svar: Vitanlega er þetta ekki óhugsandi, en það er geysilega mikið verkefni að stofna dýraverndunarfélag í hverri sveit ó landinu og hverjum kaupstað. I Englandi mun þó ekki vanta mikið ó, að þetta hafi verið gert. Á Norðurlöndum, arinars staðar en á Islandi, eru dýraverndunarfélög líka mjög víða. Hins veg- ar ber hreppstjórum og öðrum löggæzlumönn- um að hafa eftirlit með því, að dýraverndunar- lögin, ekki síður en önnur lög, séu haldin. Ef þeir gera það ekki, bregðast þeir skyldu sinni í J)ví trúnaðarstarfi, sem þeir hafa með hönd- um. I niðurlagi fyrirspurnarinnar gætir auð- sjáanlega misskilnings. Það er ekki Dýravernd- unarfélagi Islands, sem fyrst og fremst her að hafa eftirlit með dýraverndunarlögunum, lield- ur löggæzlumönnum þjóðfélagsins. Það, sem Dýraverndunarfélagið gerir í þessu efni er sjálf- boðaliðsvinna meðlima þess hinni raunverulegu löggæzlu til styrktar. Ritstj. Minningarspjöld: Hin fögru minningarspjöld Minningarsjóðs Jóns Ólafssonar, fyrrum bankastjóra og minningarspjöld Dýraverndunarfélags íslands, fást í skrifstofu Hjart- ar Hanssonar, Bankastræti 11, — árituð og send, ef óskaS er. — Sími: 4361. DYRAVERNDARINN kcmur að minnsta kosti út átla sinnum á ári, mán- uðina: febrúar, marz, apríl, maí, september, október, nóvember og desember. Ætlunarverk Dýraverndarans er að vinna að upp- eldis- og menningarmáli allra þjóða, en það er sú siðbót, sem fram kemur i verndun málleysingja og miskunnsemi við munaðarlausa. Dýraverndarinn vill vinna sér traust og hylli allra góðra mauna, ungra og gamalla. Þeir, sem útvega fimm kaupendur að Dýraverndar- anum, eða fleiri, fá 20% í sölulaun. Afgreiðslu og innheimtu „Dýraverndarans“ annast Hjörtur Hansson, Bankastræti 11 (miðhæð), póstlióll 566, Reykjavík, og ber að senda honurn allar greiðslur blaðsins og tilkynningar um nýia kaupendur. — Ar- gangur „Dýraverndarans“ kostar nú 10 lcrónur. — Það, sem til er af eldri árgöngum, er selt mjög lágu verði, eða kr. 5,00 árg. Áheit og gjafir t Yl')innin^aríjói J/óná Otajiionar ianhaitjóra lrá 1/1—31/8. 1947. Áheit: Sjúklingur 25 kr. Sigga 25 kr. N.N. 25 ltr. G.J. 20 kr. Maggi 20 kr. Hanna 25 kr. — Gjafir: Jarp- ur 20 kr. J.S. 20 kr. N.N. 25 kr. G.S. 25 kr. Skjóni 20 kr. Ó.K. 15 kr. H.S. 10 kr. S.S. 30 kr. G.H, 100 kr. Dísa 15 kr. Jóna 20 kr. Kisa 10 kr. Sjómaður 50 kr. Nonni 10 kr. G.G., til minningar um Pál heitinn Steingrímsson, ritstjóra, 100 kr. Samtals 610 kr. — Kærar þakkir. F. h. Dýraverndunarfélags íslands, Ól. Ólafsson, p.t. gjaldkeri. \ hestbaki í hríðarbyl Sig hefur bylur hyrzt um stund. Barns ég dyl ei kæti. Fullvel skilar fáki á grund. Finn ég yl í sæti. Öskar Stefánsson. Efni, sem ællað er til birtingar í blaðinu, sendist ritstj. Heimilisfang: Njálsgata 80, Rvík. (Sími 5732). Ritstjóri: Sigurður Helgason. Útgefandi: Dýraverndunarfélag fslands, Félagsprentsmiðjan h.f.

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.