Dýraverndarinn - 01.09.1952, Síða 10
40
DtRAVERNDARINN
Vbémm* hrtjssa frh. af bls. 36
Daginn eftir var það eitt af mínum fyrstu
verkum, að ég flýtti mér niður í Nes. Mósa stóð
þar enn yfir folaldi sínu, hengdi höfuðið og tók
ekki í jörð. Mér gekk svo nærri hjarta að horfa
á sorg hennar, að ég tók að strjúka henni og
tala til hennar huggunarorðum. Hún virtist
kunna því vel og stóð grafkyrr, meðan ég
grúfði mig inn að vanga hennar, fann mjúka
ilminn af andardrætti hennar og grét af hlut-
tekningu í sorg hennar.
Hvernig það vildi til, að folaldið datt í gröf-
ina, er auðvitað enginn til frásagnar um, en
sennilegt er, að Mósa hafi staðið yfir því svo
lengi sem hún sá jjað husla og þá fyrst leitað
á náðir mannanna, er það hætti að hreyfast.
Hitt gæti þó einnig verið, að hún hefði hlaupið
strax, því að töluverður spotti er úr Nesinu og
heim á bæinn, en nýfætt folald varla úthalds-
gott að synda. En hvort sem heldur hefur verið,
þá er það víst, að þetta atferli Mósu bar vott
um mikið vit. Þegar hún vissi sjálfa sig ómátt-
uga til að bjarga afkvæmi sínu, leitaði hún um
töluvert langan veg eftir hjálp mannanna. Það
var og engu líkara en hún hefði lnigboð um,
hve mikið lá við, þcss vegna hraðaði hún för
sinni svo mjög, að hún linnti ekki á stökki
hvoruga leiðina.
Síðan þetta var, hefur mér oft komið j)essi
athurður í hug og ævinlega hefur mér þótt
sem ekki væri hægt að skýra framkomu Mósu
nema á þann eina veg, að hún hafi sýnt mikla
hugsun og ályktunargáfu. Eða hvernig mætti
skýringin öðruvísi vera?
á laestiim ása
Glaður og Gyllir,
Glær og Skeiðbrimir,
Silfrintoppur og Sinir,
Gísl og Falhófnir,
Gulltoppur og Léttfeti,
þeim ríða æsir jóum
dag hvern,
er ]>eir dæma fara
að aski Yggdrasils.
(Úr Grímnismálum.)
D Ýraverndarinn
Útgefandi: Dýraverndunarfélag íslands.
Ritstjóri: Sigurður Helgason,
Brávallagötu 12, Reykjavík. (Sími 5732).
Afgreiðslu og innheimtu annast:
Hjörtur Hansson,
Bankastræti 11 (miðhæð), pósthólf 566, Reykjavík.
Ber að senda honum andvirði hlaðsins og tilkynn-
ingar um nýja kaupendur.
Prentaður í Félagsprentsmiðjunni h.f.
Tilkynning til kaupenda og útsölu-
manna Dýraverndarans
Vegna hins mikla kostnaðar við útgáfu blaðs-
ins „Dýraverndarinn“, er hefur farið síhækk-
andi undanfarin ár, vegna aukinnar dýrtíðar,
en áskriftargjaldið hinsvegar látið haldast
óbreytt, þá verður ekki lengur hjá því komizt
að hækka árgjaldið úr kr. 10,00 upp í kr. 15,00
frá 1. janúar þ. á. að telja.
Væntum vér að kaupendur „Dýraverndarans“
skilji aðstöðu okkar í þessu efni og haldi áfram
að vera kaupendur hlaðsins og sýni með þvi
sína góðu viðleitni eftirleiðis, sem og hingað til,
í því að styðja að útgáfu þessa tímarits, er
berst fyrir auknum skilningi nianna fyrir bættri
meðferð hinna mál- og munaðarlausu.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar „Dýraverndunarfél. Islands“
Hjörtur Hansson,
afgreiðslumaður „Dýraverndarans“.
IVIótteknar gjafir
Til „Dýraverndarans“:
Frá Ólafi Jónssyni, Reynisvatni kr. 25,00. Frá Svein-
björgu Jónsdóttur, Heiðaseli, Síðu kr. 20.00. Frá Sig-
urði Maríussyni, Bakka, Skeggjastaðahr. kr. 5,00. Frá
Guðrúnu Þórarinsdóttur, Viðimel 21 kr. 15,00.
Til „Dýraverndunarfél. fslands":
Frá Jóhannesi Erlendssyni, Torfastöðum, Biskups-
tungum lcr. 100,00 til væntanlegrar hælisbyggingar
fyrir dýrin. — Kærar þakkir.
Hjörtur Hansson,
afgreiðslum. „Dýraverndarans“.
Til kaupenda.
Því iniður hefur útkoma septemberblaðsins dregist
vegna veikinda-forfalla ritstjórans. Októberblaðið
mun koma út mjög bráðlega, og síðan tvö næstu blöð
á hæfilegum tima að forfallalausu. — llitstj.