Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.11.1938, Blaðsíða 9

Dýraverndarinn - 01.11.1938, Blaðsíða 9
DÝRAVERNDARINN 53 í dýragarðinum i Edinburgh eru Ivær skepnur, sem gestum þykir meira gaman að sjá en nokkrar aðrar þar í garðinum. Það eru tvær antilópur, sem eru meðal annars frægar fyrir það, hvað þær gela stokkið hátt og langt. Myndin gefur hugmynd um þetta. (Fálkinn). Þær afræktu hreiðrin í vor flestallar, sumar þeg- ar sprungið va.r fyrir á skurninu, svo fast svarf að þeim krepjan og kuldinn. En þær fáu eggjamæður, sem unguðu út. mistu börnin sín úr kulda. Þegar sumri hallar, þyrpast lóur á túnin og tina þar frækorn fram í haustsnjóa. Nú hefi ég ekki séð eina einustu lóu á túni. Þetta hlýtur að stafa af því, að ungarnir dóu i vor. Og svo hafa foreldrarnir farið i sumar til fjar- lægra stöðva, þegar þau höfðu ekkert ungviði til að annast i sumarleyfinu. Það má segja að vér sveitamennirnir kvörtum stundum að ósekju um tiðarfar. En náttúran her i þetta sinn vitni um það, eða þó réttara sagt börnin hennar, og þau eru sannsög- ul, að óhótatið gekk yfir landið fyrri hluta sumars, yfir Norðurland a. m. k. Eins dauði er annars lif; þegar kríungarnir lágu dauðir í valnum, komu svarthakar, óteljandi, utan frá sjó og ruddu valinn. Eigi veit ég, hvernig þeir komust á snoðir um þetta æti, hafa ef til vill fundið á sér, að krásin var þarna og flogið „eftir nasasjón“ á nályktina. — Úr því að ég minnist á unga-dauöa og fuglalíf, má drepa á það, að landi voru er mikil prýði að íuglalífi, eða hefir verið. En sá hræfugla ófögnuður vofir yfir fuglununi,

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.