Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.12.1940, Side 9

Dýraverndarinn - 01.12.1940, Side 9
DÝRAVERNDARINN 69 .1 IöfuSiS hverfur í mosann og' e”; fer aS mjaka mér í áttina til hennar, ofurhægt og varlega', — Þú þarft ekkert aö óttast, segi eg viö sjálfan mig. Eg ætla ekki að taka eggin þin, ekki gera þér nokkurt mein. Eg ætla bara aö horfa á þig og sjá hvaS þú ert falleg. Nú munaöi litlu, aö eg væri kominn aö hreiörinu. Og enn sat hún kyr, hin fagra móöir, kúröi sig niö- ur í mosann og laufið. En livaö hún var litfögur! Sumar fjaörirnar loga-gyltar, þegar sólin skein á ' þær, aörar brúnar og bleikar. Hún hafði kosiö sér sæti þannig, að höfuöiö vissi í sólar-átt, nálægt há- suðri. — í þessum svifum leit hún á mig „augun- um óttabljúgum“, en fór þó ekki af eggjunum. Við horföumst í augu andartak. Svo leit hún af mér og kúrði sig niöur. Eg þokaði mér nær — alt af nær og nær, en sat kyr annað veifiö. Og hún leit á mig viö hverja hreyfingu. Og svona hélt eg áfram, uns heita mátti, aö eg væri kominn alveg til hennar. Mig langaöi til að strjúka henni, vera góður viö hana, láta hana veröa þess vara á einhvern hátt, aö eg væri vinur henuar. Mig langaði til að leggja lóf- ann á bakið á henni, langaði til aö rnega strjúka fjaðrirnar, sólgullnar, brúnar og bleikar fjaðrir. Og svo ætlaöi eg að segja henni frá því, hversu fögur hún væri og að hún þyrfti ekkert að óttast. Eg áræddi loks að lyfta hendi og rétta hana hægt og hægt yfir hreiðrið. Þá kurraði eggja-mamma og mér þótti auðsætt, að hún mundi fjarska hrædd. En kyrr sat hún eigi að síður og kúrði sig niður enn betur, en eg' tók höndina til mín, og fór hægt að öllu. Við horfðumst í augu og eg vonaði, að hún mætti skynja, að allur ótti væri ástæðulaus. Því næst mjakaði eg mér aftur á bak og fjarlægðist hreiðrið. Eg vitjaði rjúpunnar rninnar daginn eftir. Fór hægt og gætilega, varaðist allan hávaða og snögg- ar hreyfingar, þumlungaðist nær og nær. Mér fanst hún heldur óhræddari en daginn áður. Eg kom til hennar dag eftir dag, jafn vel þó eg ætti alls ekki erindi á þær slóðir. — Fanst einhvern veginn al- veg sjálfsagður hlutur, að skjótast þangað, en oft varð þetta til slæmrar tafar og stundum fékk eg skömm í hattinn. Þegar frá leið, var svo að sjá, sem rjúpunni væri nokkurnveginn sama um þessar heimsóknir. Eg sat hjá henni tímunum sarnan, tal- aöi við hana, sagði henni frá þvi, hversu fögur hún væri og yndisleg, jafnt í sól og regni. í votviðri mÆiZ/a: /mndar mannamá/? Ýmsar líkur hafa verið færðar í frásagnir, sem styðja j)á trú. En þó leika þau líkindi á tveim tung- um. Nú þykist eg hafa nýtt innlegg i þessu máli, sem ekki verður véfengt: Það gengur svo í sveit, að grannar leita til ná- unga sinna um mannhjálp, eftir því sem þörf kref- ur og ástæður leyfa, ef nábýli er allgott. Granni minn hefir verið við rúmiö i surnar, öðru hverju, og sonur hans hamlaður á fæti. Nú þurfti hann að gera j)au gangna skil, að smala svo kallaða Litlufjöru- torfu, seni hangir framan í Ógöngufjalli. Og af því að mannráð eru i mínum bæ. leitaöi hann í ])á átt að gangnamanni til þess aö fara í Törfuna. Þess- ar stöðvar eru lesendum Dýraverndarans uokkuö kunnar af greinarkorni, sem eg ritaði í hann um útilegukindur. Þannig hagar þarna til, að tvær leiðir liggja að Torfunni, önnur norður frá bænum Björgum, neðan sátu regndroparnir eins og perlur á bakinu á henni. Fimta eöa sjötta daginn áræddi eg loks aö strjúka lófanum um bakið á henni. Iiún tók því vel, horfði bara á mig og bældi sig niður. Eftir ])að strauk eg henni í hvert skifti, sem eg kom til hennar. Síðustu dagana þóttist eg verða þess var, aö kvikt mundi undir móðurbrjóstinu. Þar var alt á iði, rjúpan átti annríkt og hagræddi sér á ýmsa vegu, en litlir kollar gægðust undan vængnum .... (P. S.)

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.