Dýraverndarinn - 01.09.1972, Side 6
FRA S.D.I.
I haust hafa í blöðum og útvarpi verið birtar eftirandi augljsingar á vegum Dýraverndunarsambandsins:
Sýnum dýrum nærgætni og veitum þeim hið bezta
öryggi við flutning og rekstur.
Samband Dýraverndunarfélaga Islands.
☆
Vörumst að láta dýr, sem bíða flutnings eða slátr-
unar, líða fyrir skort á vatni eða heyi.
Samband Dýraverndunarfélaga Islands.
☆
Um öryggi og líðan dýra meðan á flutningum
með bifreiðum stendur gilda strangar reglur. Látum
dýrin njóta þessara ákvæða.
Samband Dýraverndunarfélaga Islands.
☆
Þó búnaður sláturhúsa hafi mjög batnað hin síðari
ár, vantar enn mikið á að öll séu þau lögleg að öllum
búnaði varðandi mannúðlega aflífun dýra og útbúnað
á geymslu þeirra meðan þau bíða slátrunar. Látum
dýrin njóta ákvæða laga um aðbúnað þeirra og líðan.
Samband Dýraverndunarfélaga íslands.
Samkvæmt ákvæðum í lögum er heimaslátrun
óleyfileg.
Samband Dýraverndnnarfélaga íslands.
☆
Brot er það á ákvæðum um aflífun dýra, að háls-
skera þau og láta þeim blæða til ólífis.
Samband Dýraverndunarfélaga íslands.
☆
Veiðar á gæsum fara nú fram og styttist til þess
tíma, sem veiða má rjúpur. Veiðirétt í landareignum
lögbýla hafa aðeins eigendur eða umráðamenn þeirra.
Veitum skotmönnum aðhald og gætum þess, að þeir
virði lög um fuglaverndun og fuglaveiðar.
Samband Dýraverndunarfélaga íslands.
☆
Stöndum vörð um fuglalíf íslands. Látum skot-
mönnum eigi líðast að brjóta lög um fuglaverndun
og fuglaveiðar.
Samband Dýraverndunarfélaga íslands.
48
DÝRAVERNDARIN N