Dýraverndarinn - 01.09.1972, Blaðsíða 15
Tæknileg fórn
Fuglsbrœið á myndinni var
einn sinni stór og föngulegur
svanur, en slys olli dauða hans.
Nokkrir svanir, sem urðu
skyndilega fyrir styggð og
flugu upp af litlu vatni aust-
an fjalls, reyndu i skyndi að
forða sér. Sá síðasti í hópnum
reyndi í ofboðslegri hrœðslu
að hatkka flugið, en lenti á
símalínu í grenndinni og lét
þar lífið.
Svona endar líf margra
villtra fugla og dýra í sam-
býli við tækniveröld mannsins. Tækniheimur manns-
ins krefst nefnilega margra fórna sjálfum sér til auð-
veldari þæginda. Þess vegna er það siðferðileg skylda,
að nokkru sé fórnað til að viðhalda fugla- og dýralífi
í landinu.
Oft er talað um hina einstöku náttúrufegurð í land-
inu. En hverju er sú náttúrufegurð að verða að bráð?
Varla er nokkur staður orðinn svo afskekktur, að
símalínur og háspennuþræðir setji ekki meiri og
minni svip á landið, fuglunum til miska, en mannin-
um til þæginda.
Þetta er því miður enn ódýrasta og tryggasta að-
ferðin til að koma rafmagnsorkunni á milli staða og
talsambandi milli landshluta, en varla getur langnr
tími liðið þar til ódýrari og tryggari aðferðir finnast
til að flytja orku og talsamband milli staða, til dæmis
með neðanjarðarleiðslum. En á meðan við bíðum
þeirrar þróunar reisum við fleiri staura og leggjum
fleiri loftlínur og símastauralandslagið heldur áfram
að blómstra með meiri hraða en nokkur skógrækt
fær áorkað, auðvitað mannskepnunni til hæginda.
Sauðnaut
W
a
íslandi ?
í athugun mun vera að flytja inn sauðnaut til rækt-
unar hérlendis. Mun vera þegar hópur áhugamanna
sem vill standa að þessum innflutningi. Fregnir herma
að sótt hafi verið um nefndan innflutning, en svar
mun ekki vera komið frá viðkomandi yfirvöldum.
Það mun vera ætlunin að geyma sauðnautin úti í
Flatey á Skjálfanda til að byrja með og nota þá ey sem
sóttkví. Vafalaust þarf að athuga mjög vel, hvort þessi
eyja hentar yfirleitt, því sauðnaut eru mjög vangæf
vegna mataræðisins, og munu t. d. ekki geta lifað
eingöngu á grasbeit frekar en hreindýr. Ef einangra
á sauðnaut þarf vafalítið að fóðra þau svipað og
hreindýr, sem verða að fá sinn skammt af skófum og
hreindýramosa, ef þau eiga að þrífast vel.
Innflutningur á sauðnautum verður vafalaust
skemmtileg viðbót við fábreyttan dýrastofn okkar,
en vanda verður svo vel til allra athafna, að þessi inn-
flutningur mistakist ekki öðru sinni. Um leið og tryggð
verða kaup á sauðnautum þarf einnig að tryggja gott
ráðuneyti um meðferð á dýrunum, ef vel á að fara.
DÝRAVERNDARIN N
57