Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.06.1976, Page 7

Dýraverndarinn - 01.06.1976, Page 7
- Kaffi og sykur. Aldrei hefur verið kækur Arn- alds að sleikja út um, en nærri ligg- ur það núna. Annars er þetta jóla- sekkur, og þá er ekki í annað hús að venda en á náðir þess sem hann hefur búið um við brjóstið. Einn sopa enn og drífa sig svo úr mók- inu. En nú líður stundarkorn og myrkrið er enn jafn dimmt. Svo er eins og höfginn sem sígur á Arn- ald opni honum nýtt tilverusvið, sem hann kannast ekki við, að hafa áður þekkt. Hann skynjar furðu- bjarma innar á götunni og álítur sig vera að dreyma. Veit að ekki má hann sofna og bregður fyrir sig fótum, fer höndum um sekkinn, kastar honum yfir öxl og hleypur af stað. í furðuljósinu birtist eng- ill sem bendir honum að koma. Nú er svo bjart, að hann sér gilið og allt landslagið glögglega, og getur auðveldlega forðast hverja hættu. Þetta er annars gott, - en hvað er engill að gera uppi á heiði um há- nótt? Auðvitað er það jólaengill- inn, ætlar að bjarga kaffinu og sykrinum! - Heyrðu þarna! Berðu fyrir mig pokann! Ég tölti svo með þér heim á leið. Engillinn í bjarmanum vill ekki stansa. Og nú sér Arnaldur að þetta er venjuleg stúlka. Hvern skollann er hún að þvælast hér? Það var heppilegt að ég var þó á ferðinni. - Vertu samferða, telpa mín! kallar Arnaldur og herðir gönguna. ~ Ég er á leið austur í Fauskadal. Betra fyrir bæði að hafa fylgd. Sama hvað hann segir, stúlkan gengur á undan, lítur stundum um öxl og bendir. Hann skokkar á eft- b, en samt er jafnlangt bilið milli þeirra. Loks hnýtur hann og dett- ur. Hann liggur á götunni, og er dýraverndarinn hann lítur upp færist furðusvipur á andlit hans. Hann rís upp; horfir stöðugt á veruna, sem fjarlægist. - Amma, þú hér? Amma hans var dáin fyrir mörg- um árum; og að honum svífa ljós- lifandi bernskuminningar. Hann kallar enn. - Amma, farðu ekki frá mér. En nú hverfur konan og bjarm- inn hennar með henni. Samt er enn bjart í kringum Arnald og hann lít- ur til lofts. - Það hefur þá bara dregið frá tunglinu. Arnaldur er inni á miðri heiði, þar sem gilið þrýtur í lækjardragi, og kominn framhjá öllum hættum landslagsins. - Þetta var þó skrítið! Létt ölvíman er alveg runnin af honum. Ofurlítill glettinn skálkur situr inni í höfði hans og hjalar um, að það sé vel af sér vikið af ekki yngra manni, að hleypa Bakkusi svona hugvitsamlega á skeið. Þó býr innar í vitund hans eitthvað, sem ekki er ánægt með slíkt spaug. Arnaldur leitar að steini, veit að tvisvar verður sá feginn, sem á hann sest. Og hann situr á steini og læt- ur undarlegu áhrifin líða frá sér, jafnar sig vel. Svo dreypir hann á sig úr vasapelanum, rennir í botn, brosir um leið og hann fleygir gler- inu. Vasinn geymir meira. Ber nú tvennt upp á sama augna- blik, að hann vill óvægur hætta að sitja, og að á hann rennur sams- konar víma og áðan. Fjöllin austan Fauskadals teygja toppa sína upp yfir brún heiðarinnar. Á heiðinni rísa sumstaðar lágir melkambar, annars er víðátta mikil. Máninn veður í skýjum og ýmist glottir eða íelur sig, skuggar og skin skiftast á, um auðar auðnir og sköflum setta kambana. Þarna norðan undir einum mel-rananum liggur gatan ofan í vestari hlíð dalsins. Nokkuð hefur enn kólnað í veðr- inu, Arnaldur finnur það á leður- skónum sínum, en er þægilega hlýtt fyrir brjósti. Þaulkunnugur er hann á þessum slóðum, og heldur því athyglinni síður vakandi. Hann hugsar um furðuljósið og konuna, brýtur heilann um undrið, sem hann vill ekki afgreiða á venjuleg- an hátt. Pelinn hallast heldur um of upp í efrivararskeggið, þegar Arnaldur ber hann að munninum. Þá stingur máninn sér glottandi á kaf í þykkan flóka. - Hvað sé ég nú? Arnaldur stingur við fótum, er staddur alltof norðarlega á heiðar- brúninni og hvessir sjónir suður á kambinn sem gatan liggur fram- hjá. í dökkum skugga kambsins brokkar þar hvítur hestur. Máninn er að gægjast með öðru auganu. - Hvítur hestur! Arnaldur bregður pelanum á loft. - Nú fer ég að hafa gaman af. Eitthvað hef ég til að segja kellu minni í fréttum. í þessum dal á enginn hvítan hest framar, ekki einu sinni ég. Einu sinni átti ég hann Þyt, — það er nú langt síðan. Hann var hvítur, blessaður vinur- inn minn . . . Hvíti hesturinn stendur nú þar sem skugginn af kambinum er þétt- astur, horfir yfir til Arnaldar og lyftir höfðinu hátt, eins og hann ætli að hneggja til lians. Toppur- inn yfir enninu lyftist við höfuð- hreyfinguna og Arnaldur sér greini- lega svartan blett á hægri augna- brúninni. Manninum gæti ekki orðið eins hverft við, þótt hann sæi sjálfan Þorgeirsbola, nema hvað tilfinning- ar hans eru nú af öðrum toga en ætla verður við óvinar sýn. 7

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.