Dýraverndarinn - 01.06.1976, Síða 8

Dýraverndarinn - 01.06.1976, Síða 8
- Þytur! Og Arnaldur svífur í áttina til hestsins, en hesturinn tekur götuna. Arnaldur eltir hann, getur engu orði komið yfir sínar varir. Vill þó gjarnan tala við gamla félagann sinn og þakka honum fyrir margan góðan greiða. Norður heiðarhlíðina tekur nú að renna hægur andvari og skafa það litla sem þar er að hafa af lauslegum élja-snjó. Þytur brokk- ar og skásníður hlíðina suður og niður samkvæmt götunni. Brokkar þá Arnaldur líka og baðar og bað- ar út höndunum, heldur annarri hendi um pela. Eins og leikur lauf- vinda í skógi er þessi för. Uppi yfir skila breiðar ekrur bláloftsins fullu tungli. Skaði er, þegar mönnum eins og Arnaldi í Skíðagerði verður svo í nöp við mánann, að þeir líta ekki framan í hann nema endrum og eins, því að það er ekki víst að hann sé allt- af meinfýsinn. Bær næstur heiði heitir Kot. Þytur brokkar niður túnið, stað- næmist við gamla torfbæinn, reisir makkann og lítur til baka. Ennis- toppurinn blaktir hátt í golunni. Og Þytur er horfinn. Gefum Arnaldi umþóttunartíma. Eilífðin er svo voldug, í hvaða augnabliki sem henni bregður fyrir, að allur asi er ósigur. Loks áttar hann sig, að bæjarbaki, veit að fólk er í svefni og kann ekki við að gera vart við sig. Man þá eftir pelanum. Náttfarinn finnur yl hásumar- nætur fyrir brjóstinu. Hann skyggn- ist varfærnislega um, eftir hvíta hestinum og löngu liðnar samveru- stundir svífa honum fyrir hugskots- sjónir. Gult andlit hverfur að skýja- baki. Brakar hátt í frosnum skóm, þegar Arnaldur skrefar niður tún- fitina. Fauská rennur landahrein þar sem hann kemur að henni. Hann verður að fara yfir ána, til þess að komast heim, og þangað er drjúg- ur spölur meðfram austurfjallinu. Á hann að vaða ána og hlaupa svo í kapp við kuldann ? Þá sér hann hund hinum megin við ána, og þekkir hann. Ósköp vinalegan, stóran hund, dökkgrá- dröfnóttan, með svipmikið höfuð. - Valur, skinnið, kominn að sækja mig! Hundurinn verður glaður við ávarpið, dillar rófunni, tekur svo sprettinn suður með ánni og lætur kátlegum ieik, til að lokka mann- inn. - Best gæti ég trúað því, að þú vissir af brú yfir ána, hugsar Arn- aldur til hundsins og labbar í sömu átt sín megin. Valur ætlar að ganga af göflunum vegna kæti, en horfir mjög oft til baka. Brátt er Arnald- ur farinn að hlaupa líka og hóar og púrrar eins og galsafenginn strák- ur. Honum hlýnar á fótunum. Máninn gægist undan skýjaskör. Það er þó skárra, þegar gefst. Ár- bakkarnir eru ekki alls staðar skeið- sléttir. Hæglátur skriðrenningur skemmtir sér kringum ferða- manninn og hundinn hans. Áin speglar stjörnur milli þeirra. Nokkuð lengi nætur tölta þeir svona, hinir glöðu félagar. Arnald- ur tekur hvíldir og hagræðir poka sínum, eða stendur með húfuna i hendinni og lætur svalann leika um höfuð sér. Valur sýnist þá vera að rekja músaslóðir. Loks er Arnaldur kominn á móts við Skíðagerði, og enn er engin ísabrú sjáanleg á ánni. Hinum megin heldur Valur áfram með sama hraða. - Nú líst mér ekki á blikuna! Hér falla tvær ár saman! Og á- fram flýgur Valur suður með auðri austari ánni! Arnaldur skimar eftir aðstæðum við vestari ána. Jú, þar er þilju-ís skammt sunnan við ármótin. Skömmu seinna er hann kominn yfir tungu-sporðinn milli ánna og tekur sömu stefnu og Valur með- fram austari ánni. Svo finnur hann brú. - Þetta vissi sá stutti! Valur er kominn á hendingskasti til baka heim að Skíðagerði. Einn 8 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.