Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 28.08.1962, Qupperneq 5

Alþýðumaðurinn - 28.08.1962, Qupperneq 5
Héðan sól um sumarmorgna sýnist kyssa fjarðarmunn, heimsins drottning, hálf í baði, helgum eldi sveipar unn: Líttu á drottins ljóma vígja lífsins svala nægtabrunn! Sólin rís og rauðagulli reifar tind og fjallasvörð, svala daggir blíðu blómi, blundar sætt hin raka jörð, undan sólu silfurþokan svífur létt um Eyjafjörð. HVAÐ E R TUNGAN? — ( Brot) Hvað er tungan? — Ætli enginn orðin tóm séu lífsins forði. — Hún er list, sem logar af hreysti, lifandi sál í greyptu stáli, andans form í mjúkum myndum, minnissaga liðinna daga, flaumar lífs, í farveg komnir fleygrar aldar, er striki halda. Sólin deyr, en drottinn reisir dýrðarstóra vetrarhöll, þegir hrönn og helgir vindar, hlustar jörð og skuggafjöll; þúsund himinlampar lýsa lagarkringlu spegilvöll. Þú ert ung og ör í skapi, áfram vilt, en skortir margt: Frjálsir menn, er fremdum unna, færi þig í gull og skart! þú munt vaxa, þú munt sigra, þó að stríðið verði hart. Tungan geymir í tímans straumi trú og vonir landsins sona, dauðastunur og dýpstu raunir, darraðarljóð frá elztu þjóðum, heiftareim og ástarhríma, örlagahljóm og refsidóma, land og stund í lifandi myndum ljóði vígðum — geymir í sjóði. KOM HEITUR TIL MÍNS HJARTA Saga þín er enn í æsku, eyrar rósa, fjórðungsbót! Dafna þú í fullu frelsi, framatíma gakktu mót, stunda mennt og styrk þinn anda, stattu fast á landsins rót. Lifðu blessuð, Akureyri! Auðnu- við þig leiki -hjól, þó að tímans stríð og stormar sturli lýð og byrgi sól. Blessi þig með börnum þínum blessun guðs og líknarskjól! Kom heitur til míns hjarta, blærinn blíði! Kom blessaður í dásemd þinnar prýði! Kom lífsins engill nýr og náðarfagur, í nafni drottins, fyrsti sumardagur! ALÞÝÐUMAÐURINN 5

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.