Alþýðumaðurinn - 28.08.1962, Blaðsíða 8
Davíð
Stefánsson
frá Fagroskógi
f. 21/1 1895 að Fagraskógi við Eyjafjörð. — Búsettur á Akureyri
frá 1925.
SIGLING INN EYJAFJÖRÐ
Verja hinn vígða reit
varðtröllin klettablá,
máttug og mikilleit,
Múlinn og Gjögratá.
Hljóti um breiða byggð
blessun og þakkargjörð
allir, sem tröllatryggð
taka við Eyjafjörð.
Blika sem brennheitt stál
björgin og djúpin köld.
Bjart var um Austurál
oftar en þetta kvöld.
Blástur frá bláum hval
blandast við fuglaklið,
blævakið bylgjuhjal
boðar mér drottins frið.
Loks eftir langan dag
lít ég þig, helga jörð.
Seiddur unr sólarlag
sigli ég inn Eyjafjörð.
Ennþá, á óskastund,
opnast mér faðmur hans.
Berast um sólgyllt sund
söngvar og geisladans.
Ástum og eldi skírð
óskabörn birtast mér.
Hvílíka drottins dýrð
dauðlegur maður sér!
Allt ber hér sama svip;
söm er hin gamla jörð.
Hægara skaltu, skip,
skríða inn Eyjafjörð.