Alþýðumaðurinn - 11.03.1965, Síða 6
6
Herronótt Menntashilans i Reyhjmíli i htMin
Akureyringar fengu skemmti-
léga lieimsókn í lok sl. viku.
Hópur nemenda úr Menntaskól-
anum í Reykjavík kom hingað
og sýndi skólaleikinn, Herranótt
ina, sem hann heitir nú sam-
kvæmt æfafornri skólavenju. —
Leikurinn var Grímudans eftir
Ludvig Holberg, einn af þessum
sígildu gamanleikjum, sem koma
áhorfendum í gott skap, og hafa
alltaf einhvern boðskap að flytja
að baki gamninu. Má segja um
liinn gamla meistara, að hann
haldi vinsældum sínum á hverju
sem gengur um tízku og stefnur.
Og sjaldan eða aldrei nær Hol-
berg sér betur niðri en þegar
hann er flultur af fjörugri æsku,
sem naumast kann sér hóf í leik-
gleði sinni. Og satt að segja virð
ist mér engir skólaleikir takizt
betur heldur en þegar unga fólk-
ið lúlkar orð hins gamla háð-
fugls.
I stutt máli sagt, skólaleikur
þessi var með ágætum, svo að
sjaldan hafa leikhúsgestir
skemmt sér innilegar og betur.
Fór þar saman skemmtilegt efni,
vel gerð leiktjöld, en þó umfram
allt ágæt túlkun leikendanna. Þar
var í senn Ijóst, að margir þeirra
eru gæddir ágætum hæfileikum
og hafa hlotið góða þjálfun leik-
stjórans. Fjörið var takmarka-
iaust, stundum ef til vill ögn
meira en alvöruleikendur hefðu
leyft, en þannig eiga skólaleikir
að vera, tilgerðarlaust fjör, þar
sem leikið er af ánægjunni yfir
því að vera lii og fá að skemmta
sjálfutn sér og öðrum. Hinir
góðu og skemmtilegu gestir eru
farnir heim aftur, skyldan kall-
ar þá til alvarlegri starfa. Eg
ætla ekki að lýsa leiþ neins ein-
staks, en þó get ég ekki varist
því að nefna Þórhall Sigurðsson,
sem leikur þjóninn Henrik. Eg
held hann gleymist manni seint.
Að endingu þakka ég gestun-
um komuna, og ánægjulega
slund í lilbreytingarleysi vetrar-
ins, sem fékk mann til að gleyma
hafís og önn dagsins þótt ekki
væri nema tvær klukkustundir.
Sl. Std.
!5
Lum
PENNINN ER ÞAÐ VERKFÆRI, SEM
ALMENNAST ER NOTAÐ.
Þess vegna er það engin tilviljun, að menn velja BALLO-
GRAF-EPOCA við daglegar skriftir, þegar miklar kröfur
eru gerðar til þess að penninn sé rétt lagaður fyrir hendina,
riti hreina og skýra skrift og blekið renni létt og jafnt íir
pennanum.
Öllu þessu fullnægir EPOCA-penninn. Þess vegna vill eng-
inn án lians vera, sem einu sinni hefur notað hann. —
Enginn annar penni en BALLOGRAF-EPOCA hefur nú odd úr ryðfriu
stúli, sem er ný uppfinning og veldur byltingu í skriftækni — lengri
skrift, hreinni og fallegri.
Ballograf býr einnig tii aðrar tegundir af kúlu])ennum.
Heildsala:
ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO. H.F.
Reykjavik.
Regfinmnnnr á
kjöruni laun-
þegfa i þróuð-
um ogr vanþró-
uðrm löndum
Þróunin á vinnumarkaðinum
í ýmsum löndum á árinu 1964
hné í sömu átt og ár.ið áður: hatn
andi kjör launþega í iðnaðar-
löndunum og sama breiða bilið
milli ástandsins í iðnaðarlöndun-
um og vanþróuðum löndum. Þess
ar upplýsingar er að finna í yfir-
liti, sem Alþjóðavinnumálastofn-
unin (ILO) hirti á dögunum.
í iðnaðarlöndunum varð á ár-
inu 1964 enn frekari efnahagsleg
útþensla, auknar framkvæmdir,
minna atvinnuleysi og hækkandi
iaun, segir í „The Yearbook of
Labour Statistics 1964.“ í nokkr
um löndum dró talsvert úr út-
þenslunni undir lok ársins.
Hin ófullkomna skýrsla, sem
er fyrir hendi um vanþróuð lönd,
sýnir, að í þessum löndum er
víðtækt atvinuleysi. Svo að
segja alls staðar í þessum lönd-
um eykst vinnuaflið, sem er á
boðstólum, mun örar en mögu-
ieikarnir á framkvæmdum. —
Kjör verkamanna versna líka
vegna mikillar verðbólgu.
Almennar framkvæmdir j uk-
ust í nálega öllum löndum —
undantekningarnar voru Italía,
Malawi og Zambia. í flestum iðn
aðarlöndum vó þó samdráttur í
landbúnaði upp á nióti þessari
þróun. Þessi samdráttur var til-
finnanlegastur í Bandaríkjunum,
Danmörku, Finnlandi, Italíu, Jap
an, Kanada og Puerto Rico. í
Danmörku starfa nú aðeins 15 af
hundraði vinnuaflsins að land-
húnaði, en árið 1955 var hlut-
fallstalan 23 af hundraði.
Atvinnuleysi var mjög lítið
eða minnkaði til muna í iðnaðar
löndunum. í Bandaríkjunum og
Bretiandi var hið langa skeið
vaxandi atvinuleysis rofið. Þó
er atvinnuleysi í Bandaríkjunum
enn kringum 5 af hundraði. Dan
mörk er einnig meðal þeirra
landa þar sem atvinnuleysi hef-
ur minnkað verulega. Launa-
hækkunin nam rúmlega 5 af
hun'draði í Argentínu, Dan-
rnörku, Hollandi, Irlandi, Italíu,
Japan, Jógóslavíu og Mexikó. í
4 öðrum löndum námu launa-
hækkanir 2-5 af hundraði, en
kaupmáttur launþega jókst um
tæpa 2 af hundraði í Ástralíu,
Colomhíu, Finnlandi og Nýja-
Sjálandi. Á Filippseyjum lækk-
uðu launin um rúma 5 af hundr-
aði, og á Ceylon og í Suður-Kó-
reu um 3 af hundraði eða þar
um bil.