Alþýðumaðurinn - 22.04.1965, Qupperneq 8
Ellilaun og örorku-
bœtur hœkka
Tryggingaráð Tryggingarstofnunar ríkisins samþykkti á fundi
í s.l. viku að ellilaun og örorkubætur hækki um 5% 1. júlí 1964.
Eins og fram hefur komið í fréttum samþykkti Alþingi nýverið
frumvarp um breytingar á almannatryggingum, þar sem ráðherra
er heimilt að hækka þær, án samþykkis þingsins, ef nauðsyn krefur.
Tryggingaráð lýsti ánægju sinni yfir þessu frumvarpi og var því
samþykkt að öllu leyti.
/
Ellilaun og örorkubætur hækka því um 5% og gengur hækkunin
í gildi 1. júlí 1964 og virkar því í eitt ár aftur í tímann. Útborgun
á uppbótinni fer fram 1. júlí 1965.
Bifreðatriggingafélaf (. í B.
tdfir Hootrygging
Reynt verður að byrja á mónudag.
Á skírdag var haldinn stofn-
fundur hins nýja bifreiðatrygg-
ingafélags FÍB, sem hlaut nafnið
Hagtrygging h.f. Að stofnfund-
inum fengu aðeins aðgang þeir,
sem þegar höfðu greitt tillag sitt,
skv. loforðum um þátttöku, og
var fullt út úr dyrum í Tjarnar-
búðum.
Næsta skref er nú að láta skrá
félagið, fá tryggingarleyfi og
ganga frá endurtryggingum er-
lendis. Takist það í þessari viku,
hefur hið nýja bifreiðatrygg-
Aukið heilbrigðiscftirlit
Fundur haldinn í Fulltrúaráði
verkalýðsfélaganna á Akureyri
13. apríl 1965 telur að mjög
skorti á að heilbrigðiseftirlit sé
framkvæmt á vinnustöðum í
bænum, sérstaklega í verksmiðj-
um og öðrum vinnustöðum, þar
sem innivinna er daglega
stunduð
Leyfir fundurinn sér því að
skora á heilbrigðisnefnd bæjar-
ins, að auka eftirlit á vinnustöð-
um, og sjá um að heilbrigðis-
reglugerð bæjarins sé að öðru
leyti framfylgt.
ingafélag starfsemi sína næst-
komandi mánudag. Það er að
því leyti mikilvægt að það takist,
að bifreiðaeigendur verða að
segja upp tryggingu hjá öðrum
tryggingafélögum fyrir 1. maí,
annars eru þeir sennilega bundn-
ir hjá sínu félagi fyrir næsta ár.
En lögfræðingar munu telja, að
þar sem iðgjöld hafa hækkað
meira en 20%, sé hægt að segja
upp tryggingum án fyrirvara.
Skoðun bifreiða er byrjuð, en
fram til 1. maí þarf ekki að vera
greidd trygging fyrir náista ár.
I stjórn Hagtryggingar h.f.
voru kosnir: Arinbjörn Kol-
beinsson, læknir; Gísli Her-
mannsson, verkfræðingur; Velde
mar J. Magnússon, framkvæmda-
stjóri; Ragnar Ingimarsson verk-
fræðingur og Hilmar Garðars,
lögfræðingur. I varastjórn eru
Sveinn Torfi Sveinsson, verk-
fræðingur, úr Garðahreppi;
Páll Jónsson, gjaldkeri frá Kefla-
vík og Garðar H. Gunnarsson,
fulltrúi á Selfossi.
Loks má geta þess, að um
helgina var fundur um trygg-
ingamál bifreiða á Akureyri.
Nikil fomKnfi i Raufarbðjs
Fólk þurfti að grafa hús sín úr fönn.
Til Raufarhafnar hafa engin
skip komið í meir en mánuð, þar
sem ís lokar höfninni algerlega.
Bílfært hefur verið þangað og
vörur þannig fluttar til þeirra,
þar til um síðustu helgi, að aftur
tók að snjóa. Var vonzku. veður
suma dagana, stórhríð, og kingdi
niður miklum snjó. Allir veg.ir
urðu ófærir frá bænum, og urn
götur þorpsins er ófært öllum
fararlækjum, nema þá helzl
snjóbílum.
Víða eru komnir 4—5 metra
háir skaflar og einstaka enn
hærri, svo að hús hafa hreinlega
fennt í kaf og íbúar þeirra lenl
í erfiðleikum að komast út.
SKÍÐAMOT ÍSLAKDS Á AKUREYRI
Eitf- fjölmennasta og bezf heppnaða skíðalandsmót sem haldið hefur verið.
Skiðamót íslands, hið 27. í
röðinni, fór fram í Hlíðarfj alli
við Akureyri dagana 14. til 19.
apríl. Stefán Kristjánsson for-
maður Skíðasambands íslands
setti mótið með ræðu.
Skíðaráð Akureyrar sá um
alla framkvæmd mótsins og varð
bún því til mikils sóma. Mót-
stjórn skipuðu þessir menn:
Hermann Stefánsson, Haraldur
M. Sigurðsson, Jens Sumarliða-
son, Páll Steíánsson og Hermann
Sigtryggsson, en hann var jafn-
framt mótsstjóri. Yfirdómari var
Bragi Magnússon.
Á annað hundrað keppendur
voru skráðir til keppni, og var
keppni mjög tvísýn í mörgum
greinum, en í sumum urðu úrslit
mjög óvænt.
Helzlu úrslit urðu þessi:
15 hm. ganga 20 ára og eldri.
íslandsmeistari klst.
Kristján Guðmundsson í 1:05.38
Gunnar Guðmundsson S 1:09.29
Frímann Ásmundsson F 1:11.33
Alls voru keppendur 13 í þess-
ari grein, snjókoma var nokkur
á meðan gangan fór fram en
logn. Athygli vakti frammistaða
Stefáns Jónassonar, Akureyri, en
hann var 5. í röðinni, er langt
síðan að Akureyringar hafa átt
keppanda í göngu á landsmóti.
10 km. ganga 17—19 ára.
íslandsmeistari mín.
Sigurjón Erlendsson S 53.20
Skarphéðinn Guðm.s. S 54.31
Hafsteinn Sigurðsson I 55.04
Keppnin í 10 km göngu fór
fram sama daginn og 15 km
gangan og var veður hið sama.
Aðeins fimm keppendur voru í
þessari grein og lofar það ekki
góðu um framtíð skíðagöng-
unnar.
Slórsvig kvenna.
Brautin var 1700 m löng en
hlið 33, hæðin var 500 metrar.
Keppendur voru 8, en 3 luku
ekki keppni.
íslandsmeistari mín.
Árdís Þórðardóttir S 1.34.0
Hrafnhildur Helgad. R 1.50.7
Jóna Jónsdóttir í 1.53.7
Stórsvig karla.
Brautin var 2500 metrar, lilið
45 og hæð 650 m. Færi og veður
var ágætt.
Islandsmeistari mín.
Kristinn Benediktsson í 2.02.3
Reynir Brynjólfsson A 2.05.1
Jóhann Vilbergsson S 2.06.0
Keppendur voru alls 45. Eng-
um kom það á óvart að Krist-
inn skyldi sigra í þessari grein,
hann er einn af öruggustu svig-
mönnum okkar íslendinga, meir
kom það á óvart að Akureyring-
ar áttu nú 6 af 10 beztu mönn-
um í keppninni. Einkum var
frammistaða Reynis ánægjuleg,
enda fögnuðu áhorfendur hon-
um ákaft.
Stórsvig unglinga.
Brautin var 1800 m löng, hlið
35, hæð 500 m.
mín.
Arni Oðinsson A 1.36.3
Bergur Eiríksson R 1.40.4
Jónas Sigurbjörnsson A 1.45.2
Keppendur voru 27, margir
þeirra efnilegir skíðamenn. Ak-
ureyringar áttu 4 af 5 beztu
mönnum.
4x10 km 'boðganga.
íslandsmeistari klst.
Skíðafélag Siglufjarðar
Skíðaborg 3.15.13
Skiðaráð ísafjarðar 3.18.13
Skíðafélag Fljótamanna 3.19.56
* Svig karla.
íslandsmeistari sek.
Kristinn Benediktsson 1 99.31
Hafsteinn Sigurðsson í 102,99
Svanberg Þórðarson Ó 103.76
Brautin vár 450 m löng, hlið-
■in 56 og hæð 150 m. Meðan á
keppninni stóð gekk á með hríð-
aréljum og grófst brautin all-
mikið þegar á leið. Fjölmargir
luku ekki keppni, enda var braut-
in erfið en skemmtileg. Kristinn
var mjög öruggur í báðum ferð-
um, en Jóhann Vilbergsson, sem
náði beztum tíma í fyrri um-
ferð, féll tvívegis í þeirr.i síðari,
en náði samt 6. sæti.
Svig kvenna.
íslandsmeistari sek.
Ardís Þórðardóttir S 68.76
Sigríður Júlíusdóttir S 73.49
Jóna Jónsdóttir I 77.96
Brautin var 370 m löng, hlið
27. Keppendur alls voru 7.
Svig unglinga. sek.
Arni Oðinsson A 85.77
Jónas Sigurbjörnsson A 87.95
Tóinas Jónsson R 91.21
Brautin var 390 m löng með
36 hliðum. Keppendur voru 26.
Stökk.
Islandsmeistari stig
Björnþór Ólajsson Ó 231.0
Sveinn Sveinsson S 221.0
Geir Sigurjónsson S 202.8
Veður var frémur óhagstætt
til keppni, norðan kaldi og hríð.
Björnþór sigraði nokkuð óvænt
í stökkinu, sem alltaf hefur verið
grein Siglfirðinga, liann átti
lengsta stökkið, 38 m. Sveinn
Sveinsson varð íslandsmeistari
á síðasta landsmóti. Keppendur
í stökki voru aðeins 7.
Stökk 17—19 ára.
stig
Haukur Jónsson S 213.2
Sigurjón Erlendsson S 145.2
Fleiri kepptu ekki.
30 km ganga.
íslandsmeistari klst.
Gunnar Guðmundsson S 1:31.59
Trausti Sveinsson F 1:32.50
Kristján Guðmundss. I 1:34.58
Keppendur voru alls 10.
Flokka-svig.
sek.
Sveit ísfirðinga 448.16
Sveit Siglfirðinga 457.71
Sveit Reykjavíkur 485.87
Sveit Ólafsfirðinga 528.03
Sveit Akureyringa hætti keppni.
1 alpatvíkeppni karla varð
sigurvcgari Kristinn Benedikts-
son, en í alpatvíkeppni kvenna
Árdís Þórðardóttir.
í norrænni tvíkeppni sigraði
Sveinn Sveinsson S.
Á þessu skíðalandsmóti var
keppt um 11 meistaratitla, hlutu
Siglfirðingar 6 þeirra, ísfirð-
ingar 4 og Ölafsfirðingar 1.
Verðlaunaafhending fór fram
í Sjálfstæðishúsinu að kvöldi
annars páskadags.
Mikill mannfjölda lagði leið
sina upp í fjall mótsdagana, og
fylgdist með keppninni, og eins
og fyrr var sagt var framkvæmd
mótsins með miklum ágætum,
var greinilegt að mikið hafði
verið til alls undirbúnings vand-
að og margar hendur unnu fórn-
fúst starf til þess að gera kepp-
endum og áhorfendum sem bezta
aðstöðu og ánægju á mótinu. Sú
nýlunda var á þessu móti, að
notuð voru sjálfvirk tímatöku
tæki frá Svissneska fyrirtækinu
Omega, og reyndust þau af-
bragðsvel.
ALÞÝDU
rvi A I N N