Alþýðumaðurinn - 21.10.1965, Qupperneq 1
ÁSKRIFTARSÍMI
ALÞÝÐUMANNSINS
ER 1-13-99
Leiðarinn: Er flokkaskiptingin orðin urelt?
Spjallað við TOGARASJÓMANN, sjá bls. 5
Skipuleggjnm ferð- I Fyrir hópa og
ir endurgjaldslaust | einstaklinga
LÖND O G LEIfilR. Sími 12940
Virðulegt afmælislióf hjá íþrótta-
f élaginu Þór sl. laugardagskvöld
E P L I — APPELSÍNUR — BANANAR
VERZLUNIN BREKKA
—1L/ VJL
ALÞÝÐUmAÐURINN
X.XXV. árg. - Akureyri, fimmtudaginn 21. október 1965 - 38. tbl.
Bæjarráð fellti samn-
ingsuppkastið
Málinu vísað til Kjaradóms
/=000<=
AM GAT um það í síðasta
blaði að samkomulag hefði
náðzt milli samninganefnda
varðandi launakjör starfsmanna
bæjarins. En svo fór að bæjar-
ráð fellti samningsuppkastið og
hefur nú kjarasamninganefndin
vísað málinu til Kjaradóms. í
samningsuppkastinu var gert
ráð fyrir 13% hækkun á nú-
verandi grunnlaunum og einnig
var gert ráð fyrir allmikilli til-
færslu á milli launaflokka.
Þess má geta að bæjarstarfs-
menn á Akranesi hafa fengið
samþykkta 13% hækkun.
=s
Cello-tónleikar
Erlings Blöndal
Bengtson
ERLING Blöndal Bengtson
hélt sem kunnugt er celló-
tónleika í Borgarbíói sl. sunnu-
dag en undirleik annaðist Árni
Kristjánsson. Var hinum
ágætu listamönnum vel tekið.
En þeir kynntu m. a. verk eftir
Bach, Chopin og 'Beethoven.
Félaginu bárust margar góðar gjafir, þar á með-
al 95 þús. kr., sem verja á til nýs íþróttasvæðis
Gamlir Þórs-félagar, nú búsettir í
Reykjavík, stofna Litla Þór
AM VILL gjarnan helga íþróttafélaginu Þór hluta af forsíðu, og
gjarnan taka það fram yfir stjórnmálaþras. Ölluni ber saman
um það að íþróttafélögin Þór og K. A. hafi gegnt þörfu og jákvæðu
hlutverki í sögu Akureyrar.
Það ber öllum saman um það,
að fagnaður Þórs sl. laugardags
kvöld hafi verið mjög til fyrir-
myndar í hvívetna, en þá hélt
félagið lokahóf sitt í sambandi
við fimmtíu ára afmæli sitt, en
á sunnudag hélt það góðan fagn
að fyrir yngstu félaga sína.
Haraldur Helgason.
\\\^
Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur gróðursett á aðra millj. trjáplantna
Mest allt gróðursetningarstarfið er sjálfboðavinna
Athyglisverð gluggasýning í verzlunarhúsi KEA
á vegum Skógræktarfélags íslands
ESSA dagana hefir Skóg-
ræktarfélag Eyfirðinga éft-
irtektarverða gluggasýningu í
Járn- og glervörudeild KEA í
Haínarstræti. Þar má m. a. sjá
litskuggamyndir frá íslenzkri
skógrækt og eru þær mjög íagr-
ar og athyglisverðar.
Þar má einnig líta sterklega
Kjördæmisþing |
Aiþýðuflokksins í Norður- j
: landskjördæmi eystra verð- j
: ur háð hér á Akureyri n.k. j
: sunnudag í litla salnuni í :
: Sjálfstæðishúsinu, og hefst j
j kl. 2 eftir hádegi. Þess er fast ;
: lega vænzt að flokksmenn i
: sem víðast að úr kjördæm- j
; inu sæki þingið.
stofna úr Hallormsstaðaskógi cg
lifandi tré prýða gangstéttina
fyrir utan sýningargluggann og
er öl!u mjög smekklega fyrir
komið cg hlýíur þessi sýning að
vekja eftirtekt allra er gefa sér
tóm til að staldra við og virða
fyrir sér sýninguna. Þar gefst
innsýn í starf þeirra vöku-
manna, er gera vilja land okk-
ar gróðursælla. Það er Skóg-
ræktarfélag Islands er stendur
fyrir þessari sýningu. í tilefni
þessarar sýningar var rakin að
nokkru starfsemi Skógræktar-
félags Eyfirðinga. Uppeldisstöð
félagsins í Kjarnalandi, en und-
irbúningur að henni var hafin
1947, annar nú eftirspurn eftir
trjáplöntum til ej’firzkra skóg-
ræktarfélaga. Vert er að geta
þess að mestallt gróðursetninga
starfið er unnið í sjálfboða-
vinr.u, en á vegum félagsins er
nú búið að gróðursetja á aðra
milljón trjáplantna, en innan
Skógræktarfélags Eyfirðinga
eru nú 11 skógræktarfélög og
er félagatalan 736.
Hinu hálfrar aldar gamla fé-
lagi bárust margar góðar gjafir
m. a. frá K. A., helzta keppinaut
Þórs á Akureyri, var það mjög
fagur gripur, sem væntanlega
verður veittur íþróttamanni árs
ins. Margar aðrar gjafir voru
félaginu færðar, t. d. gáfu gaml-
ir Þórsfélagar hér á Akureyri
70 þúsund krónur. En kannski
var mesta ánægjuefnið stofnun
„Litla Þórs“ í Reykjavík, en það
eru þurtfluttir Þórsarar, búsett-
ir í Reykjavík er stofnuðu Litla
Þór og færði það Þór að gjöf 25
þúsund krónur. Tuttugu og
fimm af stofnendum félagsins
eru enn á lífi og voru átta þeirra
staddir í afmælishófinu og voru
þeir ásamt þeim er fjarverandi
voru gerðir að heiðursfélögum.
Stjórn Þórs skipa 10 menn. í
aðalstjórn eru: Haraldur Helga-
son form., Jón P. Hallgrímsson
ritari, Herbert Jónsson gjald-
keri, Víkingur Björnsson spjald
skrárritari og Páll Stefánsson
varaformaður. Meðstjórnendur
eru formenn hinna ýmsu deilda
félagsins: Páll Jónsson fyrir
knattspyrnudeild, Sigurður Her
mannsson Handknattleiksdeild,
Reynir Brynjólfsson skíðadeild,
Reynir Hjartarson frjálsíþrótta-
deild og Ævar Jónsson fyrir
körfuknattleiksdeild.
í Þór eru nú um 750 íélags-
menn og á þessum merku tíma-
Jens Sumarliðason.
mótum, er þegar hafin nokkur
undirbúningur að nýju íþrótta-
svæði er félaginu hefir verið út-
hlutað í Glerárhverfi. Er það
von AM að í framtíðinni verði
Þór, sem hingað til, þróttmikið
og öflugt félag, er gegna muni
í framtíðinni veigamiklu hlut-
verki fyrir höfuðstað Norður-
lands.
Vetri heilsað I
SQMARID er liðicS og það i
kvaddi með hlýjum lauf- :
vindum, það var fremur kalt, ;
en veitti þó marga sólskins- :
daga og segja-má að það hafi :
verið fremur gjöfult til lands ;
og sjávar. Nú með vétrar-
komu greinir veðurspá frá
snjókomu á Vestfjörðum.
AM vonar að veturinn verði
þjóðinni Ijúfur fremur en
ægivaldur. Með þeirri ósk
bíður AM öllum lesendum
sínum gleðilegs vetrar og
þakkar þeim fyrir samstarf-
ið á sumrinu.
AM horfir fram á vetur-
inn með bjartsýni og við
væntum þess að þið gerið
það einnig lesendur góðir.
Frá afmælishófi Þórs í Sjálfslæðishúsinu síðastliðið laugardagskvöld.
Ljósmynd. N. H.