Alþýðumaðurinn - 23.05.1969, Blaðsíða 7
REKSTRARHAGNAÐUR UTGERÐARFEL
- FIMMTIU SJUKRAUÐAR FRA FSA
(Framhald af blaðsíðu 1)
vinnulaun, eða svipað og öll
niðurjöfnuð útsvör verða í Ak-
ureyrarbæ á þessu ári, en ótalið
er, hvað félagið hefir greitt til
verzlana, verkstæða og annarra
þjónustuaðila í bænum, svo að
öllum má ljóst vera, hvílík ein-
stök búblessun Ú. A. hefir orðið
Akureyrarbæ á sl. ári.
Úthaldsdagar togaranna voru
alls 1432 á árinu. Þeir öfluðu
15.251 tonn, og langmestur hluti
aflans fór um hendur hraðfrysti
húss félagsins.
Félagið ef nú að stækka
vinnslusal hraðfrystihússins, og
er þess vænzt, að sú stækkun
komi í gagn í lok júnímánaðar
næsta og félagið geti þá veitt
allt að 50—60 manns fleirum
vinnu, og að sjálfsögðu afkastað
meiri framleiðslu, m. a. farið
meir inn á framleiðslu í vand-
aðri neytendapakkningum, en
slíkt á að gefa betri arð vinnu.
Þá er stjórn og framkvæmda-
stjórn félagsins mjög að svip-
ast eftir möguleikum til að end-
urnýja veiðiflota félagsins, en
það er nú orðið mjög aðkall-
andi.
Stjórn félagsins var öll endur
kosin, en hana skipa: Albert
Sölvason, formaður, Jakob Frí-
mannsson, Arnþór Þorsteins-
son, Steindór Jónsson og
Tryggvi Helgason.
í lok fundarins þakkaði bæjar
stjóri, Bjarni Einarsson, stjórn,
framkvæmdastjórn og starfs-
fólki félagsins öllu fyrir ágæt
störf og benti á þá miklu hag-
semi, sem bæjarfélaginu stæði
af rekstri Ú. A., svo sem hann
hafði farið úr hendi sl. ár, og
árnaði félaginu allra heilla. í
sama streng tók Bragi Sigur-
jónsson forseti bæjarstjórnar,
sem einnig ræddi nokkuð um
vöxt og viðgang félagsins al-
mennt og lauk lofsorði á stjorn-
endur þess og starfsfólk.
(Framhald af blaðsíðu 8).
hjúkrun.
I ræðu sinni sagði forstöðu-
kona m. a.: „Með ykkar hópi
hefir sjúkrahúsið brautskráð 50
sjúkraliða. 1 dag eru starfandi
hér 15 sjúkraliðar og með ykk-
HRINGFERÐ
MEÐ staðsetningu flugvélar á
Akureyri, sem annast flug m. a.
til ísafjarðar og Egilsstaða, opn
uðust möguleikar til hringferð-
ar um ísland.
Sé farið frá Reykjavík er
komið við á eftirtöldum stöð-
um: ísafirði, Akureyri, Egils-
stöðum, Hornafirði og þaðan til
ÓMAKLEG UMMÆLI.
Sá er ber ábyrgð á þessum
þætti hefur fengið réttmætar
ákúrur frá vinum og kunningj-
um fyrir það að ljá rúm skrifelsi
Reykvíkingsins um „ræktar-
leysi“ okkar hér nyrðra við
minningu Davíðs skálds frá
Fagraskógi — og hefi ég fundið
æ betur að þessar ákúrur eru á
fyllstan hátt réttmætar. Upp-
haflega fannst mér belgingur
bréfritara ekki það saknæmur,
að hann mætti ekki á þrykk út
ganga honum til skemmtunar.
AM biður hann vinsamlega, að
þá er hann sendir okkur norðan
mönnum kveðjur næst að kvitta
undir með fullu nafni. — Svo
skal spyrja hann hvernig gangi
með veggskjöld þeirra sunnan-
manna.
s b*> :jii»nwBmw^rHiTiap;
ÚTIVISTARSVÆÐI
AKUREYRINGA.
Góður borgari í Akureyrar-
bæ kom að máli við AM í gær
— og sagði að það gerði ekkert
til þótt ráðamenn Akureyrar
væru að því spurðir, hvort mein
ingin væri að aðalútivistarsvæði
Akureyringa ætti að vera um
aldur og ævi austur í Fnjóska-
dal, þ. e. Vaglaskógi? Hann
sagðist ekkert vera að lasta
Vaglaskóg, það væri yndislegur
staður, en oft væri hann mörg-
um algert bannsvæði, þar væru
haldin í síauknum mæli alls-
konar mót — og væri fólki mein
aður aðgangur nema fyrir 100
krónur eða meira gjald. Við eig
um yndislegt Iandssvæði rétt
hjá okkur, sem bíður eftir því
að fögru útivistarsvæði, grið-
land þeirra Akureyringa, er
að hlúð verði að því og það gert
unna útivist þar sem án skatt-
greiðslu er hægt að komast í
snertingu við móður jörð. Ég á
hér við Naustaborgarsvæðið í
bæjardyrum okkar, þar væri
hægt að skapa „Heiðmörk“ Ak-
ureyrar. Þetta svæði bíður upp
á fjölbreytilegt landslag — og ef
jafn næmar hendur og þær sem
gerðu „GARÐINN FRÆGAN“
(þ. e. Lystigarðinn) gengju til
liðs mið móður náttúru, þyrftu
Akureyringar ekki í framtíð-
inni að aka austur fyrir heiði í
leit að griðlandi, sem þá er
s==
ur vei*ða þeir 24. í Kristneshæli
starfa 4 sjúkraliðar héðan, á
Siglufirði 1 og í ýmsum sjúkra-
húsum sunnanlands 6. Fjórir
sjúkraliðar héðan hafa verið við
hjúkrunarnám og má því segja
að minnsta kosti 39 af þeim 50
UM ÍSLAND
Reykjavíkur. Flogið er milli
allra staða nema Egilsstaða og
Hornafjarðar, en sá kafli er
ekinn í áætlunarbíl.
Hægt er að hefja ferðina á
hverjum þessara staða sem er,
og í hringferðunum geta fer-
þegar stanzað á viðkomandi
stöðum að vild.
kannski bannsvæði, þá að er
komið. Ofanritað er ekki orð-
rétt það sem borgarinn sagði,
en ég vona að undirritaður hafi
þó túlkað að mestu skoðanir
hans. En við röbbuðum saman
út á götu og engin orð voru fest
á blað. Því miður er ég það lítill
Akureyringur enn, að ég þekki
ekki Naustaborgir. En nú er ég
staðráðinn í því, ef guð og lukk
an lofar mér að tóra fram í
græn grös, að una þar eina vor-
bjarta nótt. Einu kynni mín frá
Naustaborgum eru þau, að í'
gamla daga, þá er ég var ungur
kom ég við þar á sumarhátíð
Sjálfstæðisflokksins, ásamt Jóni
og Guðrúnu, Sigríði o. fl. ung-
mennum. Sjálfstæðisflokkurinn
átti þar þá hermannabragga og
þar var stigin dunandi dans og
baldnar hallelújaræður á milli.
Þoka birgði allt útsýni — og því
var eigi séð ásýnd Naustaborga,
nema óhrjálegur braggi Sjálf-
stæðisflokksins. Vonandi er
þessi braggi horfinn af ásýnd
Naustaborga nú, ekki þar fyrir
að ég eigi slæmar minningar
um fyrstu og einu komu mína
þangað til þessa. Við fórum öll
til baka miklu ákveðnari sósíal-
istar en við höfðum verið áður.
s. j.
ÞAKKIR TIL SÓLNES.
AM birti í síðasta blaði
klausu, þar sem frá var skýrt að
bæjarstjórn vor hefði veitt
Indriða Úlfssyni 14 þús. kr.
bæjarstyrk svo að hann gæti
komist í skenuntireisu til Sví-
þjóðar á vegum Skólastjóra-
félags fslands. Mér fannst þessi
klausa ágæt, en gjarnan hefði
þó mátt minnast á það að einn
......
sjúkraliðum, sem héðan hafa
verið brautskráðir vinni við
hjúkrunarstörf. Það má teljast
nokkuð gott, þegar litið er á,
að þetta eru allt konur að Jó-
hanni Konráðssyni undanskild-
um.“
Hinir nýju sjúkraliðar eru:
Anna Sigurbjörg Jóhannesdótt-
ir, Kringlumýri 22, Akureyri.
Ástrún Einarsdóttir, Stóra-
Steinsvaði, Norður-Múlasýslu.
Geirþrúður Sigurðardóttir,
Hafnarstræti 78, Patreksfirði.
Guðfinna Óskarsdóttir, Suður-
götu 68, Siglufirði. Guðný Ósk-
arsdóttir, Laufási, Fáskrúðs-
firði. Guðný Anna Theodórs-
dóttir, Austara-Landi, Öxar-
firði. Hanna Lísbet Jónmunds-
dóttir, Hrafnstöðum, Dalvík.
Kolbrún Sigurpálsdóttir, Lundi,
Varmahlíð, Skagafirði. Ragn-
heiður Snorradóttir, Hjarðar-
haga, Öngulsstaðahreppi, Eyja-
firði.
bæjarfnlltrúi okkar, Jón G. Sól
nes, maldaði í móinn og taldi
þessa styrkveitingu furðulega,
en þakkir til Sólnes falla
kannski ekki í góðan jarðveg
hjá ritstjóra AM, en því ekki að
prófa manngildi hans.
Reiður Akureyringur.
EFTIRMALI AM.
Blaðið þakkar bréfið og er
ljúft að koma þakklæti til Sól-
nes til skila — og vill jafnframt
skrifa undir það. Ritstjóri AM
ber engan óvildarhug til Sólnes,
en honum var ókunnugt um að
hann hefði gagnrýnt þessa bæj-
arframfærslu. Veit ég vel, að
Sólnes hafa verið send skeyti á
síðum AM — og jafn lífsreynd-
ur maður og Sólnes mun vita
það eftir áratuga langa högg-
orustu, já og líka vináttu við
Jakob stórfursta í KEA, að eng
inn er annars bróðir í leik. En í
skottið á eftirmálanum ætla ég
þó að gagnrýna Sólnes. Ekki
fyrir það, að hann vildi eigí
taka í hönd mér í veizlufagnaði
eins þekktasta iðnfyrirtækis á
Akureyri, þá er það minntist
merks áfanga í starfssögu sinni.
Heldur fyrir liitt — að liann
skyldi ekki bera fram þá tillögu!
að hinn glæsilegi liúsakostur
Oddeyrarskólans yrði boðinn
endurgjaldslaust undir sam-
kundu Skólastjórafélags ís-
lands. Með þessu er ég eigi að
vantreysta sósíaldemókratisku
loftslagi í ríki Erlanders í. Garða
ríki, að það sé neikvætt fyrir
leiðandi krafta íslenzkra skóla-
mála. Nei, engan veginn, heldur
hitt, að með slíkri ráðstöfun
hefðum við Akureyringar stuðl
að að því af myndarskap að
Indriði Úlfsson hefði í forsæti
örþreyttra skólastjóra á íslandi
getað sannað það hve heilnæmt
það sé og góð afslöppun að anda
að sér klóakylmi niður með
Strandgötu á heitum sumar-
degi. Já, og kannski hefði líka
Hótel KEA og Sjálfstæðishúsið
notið góðs af — og þess ber
einnig að geta að skólstjórar að
sunnan af Stór-Reykjavíkur-
svæðinu hefðu sparað sér drjúg
an pening í ferðakostnað, ef
skóli Indriða á Akureyri hefði
verið valinn í stað samastaðar
hjá Erlander á Svíagrund.
..................^
SUMARSKÓFATNÁÐUR
HERRASANDALAR, ódýrir.
STRIGASKÓR, uppreimaðir, allar st.
KVENSKÓR úr hanzkaskinni.
HERRASKÓR, gataðir.
ADIDAS-KNATTSPYRNUSKÓR.
SKÓBÚÐ KEA
TILKYNMNG
til viðskiptamanna útibús Landsbanka íslands,
Akureyri.
Vinsamlegast atliugið að frá og með föstudegin-
um 16. maí breytist símanúmer bankans og verð-
ur framvegis:
2 18 00
LANDSBANKI ÍSLANDS, útibúið á Akureyri.
NÝ HÍISCACNAVERZLUN:
AUGSÝN
heitir nýja húsgagnverzlunin á Akureyri.
Hún er í Strandgötu 5, þar sem áður var vefn-
aðarvörudeild KVA.
Fjölbreyttasta ÚRVAL HÚSGAGNA
alveg í miðbænum.
Gerið svo vel að líta inn.
AUGSÝN H.F.
SÍMI 2-16-90