Alþýðumaðurinn - 22.08.1969, Blaðsíða 8
í AUGSÝN:
FRANSKAR EFTIRPRENTANIR af listaverkum lieimsþekktra málara fást nú í
AUGSÝN HF.
SÍMI 2-16-90
t
F
Ljósmynd: Ljósmyndastofa Páls
Þýzka skólaseglskipið Gorch Fock ljósum prýtt í Akureyrarhöfn,
„Gorch Fock" í
VESTUR-ÞÝZKA skólasegl-
skipið Gorch Fock kom til Ak-
ureyrar sl. mánudagsmorgun —
og átti hér viðdvöl í 3 daga.
Með skipinu voru 72 kennarar
og um 200 sjóliðaefni. Meðan á
heimsókn á Ak,
heimsókn stóð fóru skipverjar
m. a. austur í Fnjóskadal, þar
sem farkostur þeirra voru góðir
hestar. Hið vestur-þýzka skóla-
skip var sjósett í ágústmánuði
árið 1958. Skipið hefur 23 segl
-----<X>C*=
og er mesti siglingahi-aði þess á
sólarhring um 200 sjómílur, en
mesti hraði á klst. um 30 km.
í skipinu er 890 ha. MAN disel-
vél, sem ekki er notuð nema
brýn nauðsyn beri til. Næsti við
komustaður Gorch Fock er
Tromsö í Noregi, en þaðan sigl-
ir það til Kiel í heimalandi sínu.
BYGGING SÚTUNARYERKSMIÐJU HAFIN
Sauðárkróki 15. ágúst. J. K.
ÞÆR fréttir eru helztar úr at-
vinnulífinu hér, að hafist hefur
Akureyri 20. ágúst. S. J.
UM kl. hálf átta í kvöld varð
lögreglan á Akureyri vör við að
reyk lagði upp úr verksmiðju-
hverfi SÍS á Gleráreyrum. Allt
slökkvilið bæjarins var þegar
kallað á vettvang, og þá er á
staðinn var komið var ljóst að
eldur var laus í endurbyggingu
gömlu sútunarverksmiðju
Iðunnar. Tók það slökkviliðið
rsOOC*--------
Fréttatilkynning frá
Fegrunarfélagi Ak.
FEGRUNARFÉLAG Akureyr-
ar beitir sér fyrir því í samráði
við forstöðumann Lystigarðsins
að sérstök leiðsögn verður veitt
um garðinn ög upplýsingar gefn
ar um starfsemina þar, laugar-
daginn 23. ágúst n. k. klukkan
2 til 6 e. h.
Á STJÓRNARFUNDI Fegrun-
arfélags Akureyrar 13. þ. m. var
eftirfarandi tillaga samþykkt:
Stjórn Fegrunarfélags Akur-
eyrar skorar á yfirvöld Akur-
eyrarbæjar, að þegar verði hirð
ing á gróðursvæðum bæjarins
stór bætt.
Senda skal áskorun þessa
bæjarstjóra og blöðum bæjarins
til birtingar.
Jón Kristjánsson.
verið handa um að steypa upp
sútunarverksmiðjuna, Sn sem
kunnugt er af fróttum hefur
um hálfan annan tíma að ráða
niðurlögum eldsins.
Þá er AM hafði samband við
Slökkvistöð bæjarins seint í gær
kveldi og innti frétta af tjóni af
eldsvoðanum var sagt að eigi
væri það ljóst á þessu stigi máls
ins, en tjón myndi hafa orðið
all verulegt og vitaskuld órann-
sakað hvað eldsvoðanum olli.
Vinna var þegar hafin í nýbygg
ingunni og mun því þessi nýi
eldsvoði í Iðunn þýða atvinnu-
missir fyrir starfsfólk verk-
smiðjunnar meðan viðgerð fer
fram.
NÚ í VIKUNNl hafði blaðið tal
af 2 bændum í sýslunni, þeim
Jóni Hjálmarssyni í Villingadal
og Gunnari Jósavinssyni að
Búðarnesi í Hörgárdal og innti
þá eftir heyskaparhorfum í sín-
um byggðarlögum.
Sagði Jón að telja mætti að
heyskapartíð hefði verið all
óhagstæð í inndölum Eyjafjarð-
ar það sem af væri sumri, hefði
slengt yfir skúrum nær dag
hvern, hins vegar hefðu ekki
þessar regnhryðjur náð niður í
undii'búningur þeirra fram-
kvæmda staðið yfir undanfarna
mánuði. Verður þetta stórt hús,
eða um tvö þúsund fermetrar
að flatarmáli. Eru notuð stál-
mót og öflugur krani, og~geng-
ur verkið allvel.
Þá er hafin framleiðsla hjá
Samverk h.f. á nælonsokkabux
um og eru þær væntanlegar á
markað innan skamms. Ekki er
nema sa. helmingur af véla-
kosti þeirrar verksmiðju kom-
inn í gang, en fljótlega mun hún
starfa með fullum afköstum.
Þegar þessi tvö fyrirtæki
verða komin í gang að öllu leytí
munu starfa þar 70—90 manns
og gera margir sér þá vonir um
að útrýfnt verði að mestu því
árvissa atvinnuleysi, sem verið
hefur ríkjandi hér yfir vetrar-
mánuðina. Annars er atvinnu-
ástandið varla nógu gott nú því
að frystihúsin fá ekki nægilegt
hráefni. Drangey er búin að
liggja í hálfan mánuð hér við
(Framhald á blaðsíðu 5)
fjörðinn og þar hefði heyskapur
gengið ágætlega.
Gunnar í Búðarnesi hafði
svipaða sögu að segja og Jón,
kvað hann heyskap hafa gengið
erfiðlega í Fram-Hörgárdal sök
um regnskúra er gengið hefðu
yfir, áleit Gunnar að svipað
væri um Öxnadal að segja.
AM hefur einnig fregnað að
skúrasamt hafi verið í Svarf-
aðardal og hafi af þeim sökuni
hey hrakist — og þá einkum á
þeim bæjum er súgþurrkun er
ekki fyrir hendi.
ALÞYÐUMAÐURINN
39. árgangur — Akureyri, föstudaginn 22. ágúst 1969 — 20. tölublað
Hafin bygging tollvörugeymslu
MÖL og SANDUR annast aðalframkvæmdir
I SÍÐUSTU VIKU hófust fyrstu
framkvaemdir við byggingu toll
vörugeymslu á Akureyri, þ. e.
bygging vörugeymslu og skrif-
stofuhúss Almennu tollvöru-
geymslunnar h.f., en húsið er
byggt á 10 þús. fermetra svæði
austan við Hjalteyrargötu. Fyr-
irtækið Möl og sandur annast
aðalbyggingaframkvæmdir. Hús
ið verður um 1155 fermetrar —
og er fyrsti áfangi þeirra bygg-
inga er þarna eiga að rísa. Áætl
að er að hin nýhafna bygging
muni kosta um 8 milljónir kr.
og mun verða stefnt að því að
byggingin verði fokheld orðin í
nóvembermánuði.
Með þessum framkvæmdum
er stefnt að þvi að Akureyri
verði í framtíðinni innflutnings
miðstöð fyrir Norðurland — og
þar með verði rofin einokun
höfuðborgárinnai' varðandi inn
flutning til landsins.
Hluthafar Almennu tollvöru-
geymslunnar eru nú orðnir um
60 — og eru þar á meðal helztu
innflytjendui' á Akureyri og
einnig helztu skipafélög, er ann
ast vöruflutninga til landsins.
Formaður fyrirtækisins er
Valdimar Baldvinsson heildsali.
AM fagnar þessum fram-
kvæmdum og telur þær í'aun-
hæfa stefnu til mótvægis gegn
of sterku höfuðborgarvaldi.
Ungfrú Eyjafjarðarsýsla var kjörin sl. laugardag að Laugarborg í
Eyjafirði, en eyfirzkar blómarósir voru mjög tregar til þátttöku í
keppninni — og gáfu sig aðeins 4 frani, en þó ekki fyrr en forstöðu-
kona Fegurðarsamkeppni íslands, frú Sigríður Gunnarsdóttir, hafði
skorað á stúlkur að gefa sig fram til þátttöku. Ungfrú Eyjafjarðar-
sýsla vr kjörin Helga Ingólfsdóttir frá Neðra-Rauðalæk á Þela-
mörk, 17 ára blómarós, sem enn er heima í föðurgarði. Onnur varð
Þorgerður Jónsdóttir frá Borgarhóli, 21 árs að aldri. Helga Ingólfs-
dóttir mun því mæta fyrir Eyjafjarðarsýslu í Fegurðarsamkeppni
íslands er fram fer næsta vor. — AM sendir Helgu sínar beztu
heillaóskir. Ljósmynd: Ljósmyndastofa Páls