Alþýðumaðurinn - 17.10.1969, Qupperneq 1
VerzIiS 1 sérrerzlun.
ÞaS ttyggir gæSin.
TÓBAKSBÚÐIN
Brekkugötu 5 . Sími 12820
ALLT TIL MATARGERÐAR
VERIÐ VELKOMIN
EYRARBÚÐIN - opið til kl. 20.00.
FRAMKÖLLUN — KOPIERING
HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (96)11520
PEDROM YNDIR Akureyri
Jafnaðarmenn í Norðurlandskjördæmi eysfra
Fjölsækið kjördæmisráðsfundinn 25.-26. þ. m.
EINS og getið var um í síðastaf
blaði verður kjördæmisþing A1
þýðuflokksins haldið að félags-
heimilinu Strandgötu 9, annari
hæð, dagana 25.—26. október
næstkomandi. Öllum jafnaðar-
Þingið stendur í 2 daga, en
eigi hespað af á einum degi, senl
á undanförnum áruni.
Tveir góðir gestir koma að
sunnan, þeir Benedikt Gröndal
alþingismaður og Örlygur Geirs
Á þinginu mun verða rætt
um breytt skipulag flokksins og
framtíð Alþýðumannsins, auk
annarra mikilvægra mála, er
e. t. v. marka spor til samein-
39. árgangur — Akureyri, föstudaginn 17. okt. 1969 — 25. tölublað
Nýmæli í fargjalda-
málum innanlands
SÉRSTÖK afsláttarfargjöld fyrir aldrað fólk og unglinga gengu í
gildi um sl. mánaðarmót. Venjuleg fargjöld hækka, en fjölskyldu-
afsláttur og hópferðafargjöld verða áfram í gildi.
Flugfélag íslands hefir ákveð
ið að taka upp það nýmæli að
veita farþegum sem eru á ungl-
ingsaldri og öldruðu fólki af-
slátt af fargjöldum með flug-
vélum félagsins í innanlands-
flugi. Afslættinum, sem nemur
25% , verða unglingar á aldr-
inum 12—18 ára að báðum ár-
um meðtöldum, aðnjótandi, svo
og aldrað fólk sem náð hefir 67
ára aldri. Þeim sem hyggjast
notfæra sér þessi ódýru fargjöld
fyrir unga og aldna, er bent á
að sýna nafnskírteini eða önnur
persónuskilríki, sem sanni ald-
ur þeirra er þeir kaupa farmiða.
Vegna hækkaðs reksturs-
kostnaðar á flestum sviðum hef
ir Flugfélag íslands nú orðið að
hækka fargjöld á innanlands-
leiðum. Nemur hækkunin um
15% að meðaltali. Hins vegar
verða áfram í gildi hin vinsælu
fjölskyldufargjöld þar sem for-
svarsmaður fjölskyldunnar
greiðir fullt fargjald en aðrir
fjölskylduliðar sem ferðast með
honum greiða hálft gjald.
Þá verða áfram í gildi hóp-
ferðafargjöld á innanlandsleið-
um en þau eru 10% til 20%
ódýrari en venjuleg fargjöld og
fara eftir stærð hóps og tilhög-
un ferðar.
Guðmundur Hákonarson.
ingar lýðræðisjafnaðarstefnu á
íslandi.
Núverandi stjórn kjördæmis-
ráðsins skipa: Valgarður Har-
Benedikt Gröndal.
mönnum í kjördæminu er
heimil þátttaka og væntir AM
þess fastlega að jafnaðarmenn
allt frá Þórshöfn eystra til Ólafj)
fjarðar vestra fjölmenni á þing-
ið — og leggi með því sinn skerfi
fram til sóknar jafnaðarstefn-
unnar í kjördæminu.
Örlygur Geirsson.
son formaður Sambands ungra
jafnaðarmanna og jafnframt
framkvæmdastjóri Alþýðu-
flokksins. Auk þeirra munu
flytja framsöguræður, Bragi Sig
urjónsson alþingismaður og
Guðmundur Ilákonarson forseti
bæjarstjórnar Húsavíkur.
*s
Lögð verði höfuðáherzla á úfrýmingu atvinnuleysis
=S
ALÞYÐUMAÐURINN
MUN ekki koma út í næstu
viku — en að öllu forfallalausu
mun næsta blað koma út 31.
október.
11. þing Alþýðusambands Norð
urlands var haldið á Akureyri
dagana 5.-6. október sl. Þing-
ið sátu 50 fulltrúar frá 16 verka
lýðsfélögum í Norðlendinga-
fjórðungi, en alls eru nú innan
vébanda Alþýðusambands Norð
urlands 20 félög með tæplega
5000 manns. Þingforsetar voru
kjörnir Oskar Garibaldason frá
Siglufirði og Jón Karlsson frá
Sauðárkróki, en ritarar Árni
Björn Árnason, Akureyri og
Kolbeinn Friðbjarnarson, Siglu
firði.
I skýrslu stjórnar kom fram,
að starf sambandsins hefur ver-
ið all umfangsmikið frá því síð-
asta þing var haldið, en á marg
N
Óbreyft forsetakjör á Alþingi
ALÞINGI var sett þann 10. okt.
sl., að aflokinni guðsþjónustu í
Dómkirkjunni, er séra Pétur
Sigurgeirsson á Akureyri fram-
kvæmdi.
Forsetakjör fór fram sl. mánu
dag, og var þar um enga breyt-
ingu að ræða frá fyrri árum.
Birgir Finnsson var kjörinn
forseti sameinaðs Alþingis með
31 atkv. Eysteinn Jónsson hlaut
19 atkv. Fyrsti varaforseti var
kjörinn Olafur Björnsson og
annar varaforseti Sigurður Ingi
mundarson.
Forseti efri deildar var kjör-
inn Jónas G. Rafnar, en vara-
forsetar þeir Jón Þorsteinsson
og Jón Árnason.
Forseti neðri deildar var kjör
inn Sigurður Bjarnason, en
varaforsetar Benedikt Gröndal
og Matthías Á. Matthiesen.
an hátt einkennzt af erfiðleik-
um og vonbrigðum, þar sem
mikið atvinnuleysi hefði verið á
sambandssvæðinu og reynzt
erfiðara en oft áður að halda
uppi kaupmætti launa. Þó væru
ljósir punktar í þessu ástandi,
svo sem samningurinn um líf-
eyrissjóði og bygging orlofs-
heimilanna, sem væri stórvirki
og risaskref fram á veg í félags-
legu tilliti.
Nckkrar breytingar voru
gerðar á lögum sambandsins
með tilliti til skipulagsbreytinga
A.S.Í.
Sérstök ályktun var gerð um
atvinnumál á sambandssvæð-
inu, þar sem höfuð áherzla er
lögð á leiðir til að útrýma at-
vinnuleysinu. Ennfremur var
gerð kjaramálaályktun, en þar
segir m. a., að þingið telji að
verkalýðshreyfingunni beri að
undirbúa almennar samnings-
uppsagnir á næsta vori með það
að markmiði sem lágmark að fá
bættar hinar beinu skerðingar
síðustu 2ja ára á öll almenn
laun og jafnframt að ná fram
atvinnuöryggi.
Björn Jónsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Einingar á
(Framhald á blaðsíðu 7)
Bragi Sigurjónsson.
aldsson námsstjóri á Akureyri
forniaður og Björn Friðfinnsson
bæjarstjóri á Ilúsavík og Hregg
viður Hermannsson héraðslækn
ir í Ólafsfirði.
Sjá nánar auglýsingu í blað-
inu í dag.
N
Sláfriín lýkur upp úr helginni
Húsavík 15. okt.
G. II.
SLÁTRUN sauðfjár mun ljúka
hér á Húsavík upp úr næstu
helgi — og mun um 36000 fjár
verða leitt á blóðvöllinn að
þessu sinni. Vænleiki dilka mun
vera með betra móti, en vænstii'
hafa þeir verið úr hásveitunum,
t. d. úr Mývatnssveit.
Afli rýr.
Afli hefur verið mjög rýr að
undanförnu — og ógæftir síð-
ustu daga hafa hamlað mjög
veiðum smærri bátanna.
Hitaveitð fyrir Akureyri
S\\v
s
Kvöldsölur opnaSar á ný
HEIMILD til þess að kvöldverzl
anir í bænum hefðu opið til hálf
tólf á kvöldin kom til annarrar
umræðu á bæjarstjórnarfundi
sl. þriðjudag og var heimildin
samþykkt með 6 atkv. gegn 5.
Með heimildinni greiddu at-
kvæði eftirtaldir bæjarfulltrú-
ar: Ingibjörg Magnúsdóttir S,
Gísli Jónsson S, Vilheim Þor-
steinsson S, Þorvaldur Jónsson
A, Valgrður Haraldsson A og
Haraldur Ásgeirsson Aþbl. —
Á móti voru: Stefán Reykjalín
F, Sigurður ÓIi Brynjólfsson F,
Arnþór Þorsteinsson F, Haukur
Árnason F, og Ingólfur Árna-
son, vinstri samtökum.
í HAUST deildi AM á ráða-
menn Akureyrar, að þeir
væru tómlátir hvað snerti
rannsóknir á því að fullkann
aðir yrðu möguleikar á því
hvort mögulegt reyndist aðl
koma upp hitaveitu liér á
Akureyri ef nægur liiti find-
ist í nágrenni bæjarins, og
var í því sambandi minnzt á
stórhug nágrannahæja í
þessu- efni, svo sem á Húsa-
vík og Dalvík. Einnig var
varpað fram, hvort liin völd-
ugu olíufélög reyndust þessu
nauðsynjamáli Akureyringa
„negativ“ bak við tjöldin.
Nýverið flutti Ingóifur
Árnason bæjarfulltrúi fram
tillögu, sem einróma hefur
verið bæði samþykkt í bæjar
ráði og bæjarstjórn, að fram
fari frandialdsathugun á
virkjun jarðhitans að Laugar
landi á Þeiamörk, með það
fyrir augum að fullkannað
verði hvort nægur jarðhiti sé
fyrir liendi til hitaveitufram
kvæmda fyrir Akureyri.
AM þakkar Ingólfi f yrir
forgöngu hans um þetta
nauðsynjamál Akureyringa
innan veggja hæjarstjórnar
Akureyrar. — Meira um
þetta mál síöar. — s. j.
RABBAÐ YIÐ REYNIRAGNARSSON - sjá bls. 5