Alþýðumaðurinn - 20.10.1971, Qupperneq 6
Útigöngufólk og sitthvað fleira
EIN AF nýjungum okkartíma er firringin. Orð þetta
skilja fóir enda lítils metið af flestum, þótt það sé
engu ómerkara en mengunin. Það býr hins vegar
við þröngan kost, af því erfitt er að fóta sig ó því,
enda hólt með afbrigðum og einatt notað af þrætu-
listarmönnum.
Samt er það svo með þetta
blessaða vandræðaorð, að því
skýtur æði oft upp í huga manns
sé þessi velferðarveröld okkar
augum barin. Hvarvetna má sjá
þess merki, að fólk sé að fjar-
lægjast eitthvað, sem áður var
hluti af því og menn höfðu tam-
ið sér að skoða sem óaðskiljan-
legan hluta sjálfs sín. Það er rétt
eins og ytri gæði þau, sem sósíal
ískar mannúðarhreyfingar eins
og verkalýðshreyfingin, börðust
fyrir, hafi á engan hátt fært
fólki auknari hamingju né vel-
sæld og ósjaldan heyrir maður
þær athugasemdir, að líklega
hafi allt verið unnið fyrir gýg,
hamingja manna hafi ekkert
aukizt, mannlífið ekkert batnað.
Þetta er uppgjafartónn og yfir-
leitt heyrist hann aðeins hjá
fólki í andartaks tryllingi þeim,
sem grípur fólk, þegar það hætt-
ir að vega og meta og hafnar
skynsemistýrunni, sem vitaskuld
verður að lýsa okkur meðan kost
ur er. Þegar rýnt er djúpt í kjöl-
inn, kemur fljótt í Ijós, að eng-
inn vill hafna þeim ytri gæðum,
sem hann hefur klófest.
★
Hippar
Þess vegna fæst engin lausn
á þeim vanda nútímafólks að
höndla hamingjuna, þótt horfið
sé til náttúrunnar að sið úti-
göngufólks og hlaupastráka okk-
ar tíma, hippanna. Enda er svo
komið nú með flest skyni borið
fólk í heimalandi hippa, Ame-
ríku, að það er að ranka við
sér og hefur tekið mark á mörgu
því, sem hippar hafa öðrum
mönnum betur komið auga á.
Að vísu er enn til slíkt fólk, að
það afgreiði útigöngufólk með
því, að það sé ekki annað en
óðir kommúnistar, en slíkt fólk
hefur alltaf brjálað sjálft sig og
aðra með alhæfingum sem slík-
um. Eitt af því, sem útigöngu-
fólk hefur beint athygli manna
að, er andleg leti og sinnuleysi.
Útigöngufólk þetta hefur ekki
fremur en annað þj óðbyltinga-
fólk svarað neinum spumingum.
Kostur þess felst fyrst og fremst
í nýjum spurningum, sem það
hefur vakið. Það kostar ekki
kapps um að afgreiða allt með
pennastriki, þótt vissulega megi
á meðal þess finna réttlínufólk,
sem með hitasóttarkenndum
ákafa kaldhamrar klisjur sínar,
oft fengnar að láni frá streitu-
fólki, þýðversku, sem týndi
sjálfu sér á bókasöfnum þýzkra
háskóla. Slíkt fólk er þó góðu
heilli í minnihluta meðal æsku-
fólks og ástæðulaust með öllu að
hrekja ungmenni með frunta-
skap yfir til slíkra öfga.
★
Lýðræði
Við skulum 'heldur rýna í
sumt það, sem það 'hefur spurt
um, svo sem eins og lýðræðið,
sem tölvert 'hefur komizt á dag-
skrá upp á síðkastið, meðfram
vegna vamarmálanna. Ég nenni
ómögulega að tala um varnar-
málin, svo sjálfsögð sem þau
virðast mér. Ég kem ekki auga
á nema tvær leiðir: að herinn
sitji hér áfram eins og verið hef-
ur eða hann hverfi úr landi og
við göngum þá um leið úr Nató,
því ekki sé ég hvernig við meg-
um halda andlitinu uppréttu, ef
við rekum stríðsmenn í burtu,
en heimtum um leið af þeim að
þeir forsvari okkur gegn fárskap
kommúnista.
Það er önnur tegund lýðræð-
is, sem ungt fólk veltir nú fyrir
sér. Nokkurs konar vinnulýð-
ræði. Það tekur sjálft eftir því,
að það hefur firrzt vinnu sína,
hvort 'heldur hún er í skóla eða
á almennum vinnumarkaði. Það
veit ekki hvers vegna, en lætur
sér detta í 'hug að það kunni að
vera af því það hafi ekki nægan
skilning á því, sem það er að
gera, því finnst það vanta for-
sendur fyrir vinnu sinni. Þjóð-
félagið 'hefur látið undan hávær-
um kröfum þeirra á vitlausasta
máta, sem hugsast getur. í stað
þess, að þeir eldri og reyndari
reyndu að hlusta á fólkið, tala
við það og reyna að finna sam-
eiginlega lausn frá vandanum
hafa alls kyns félags- og sálfræð-
ingar verið á sjó dregnir, auk
þeirra manna, sem strax gáfust
upp á kennslu og hafa síðan orð-
ið vinnandi fólki til bölvunar
með kennsluskrám og reglu-
gerðafargani. í stað þess að
reyna að bæta andrúmsloft hef-
ur verið farið þannig að, jafnt
í skólum sem á vinnustöðum, að
fjármunum og lagabálkum hef-
ur bókstaflega talað verið stráð
yfir viðkomandi stofnanir. Unga
fólkið hefur oft áfellzt lýðræðis-
fyrirkomulag okkar fyrir það,
að í því væri ekki nægilegt svig-
rúm fyrir það, það ætti þess ekki
kost að vera með, taka ákvarð-
anir, stjóma o. s. frv. Hins veg-
ar er rík tilhneiging hjá því til
þess að skjóta sér undan ábyrgð
þeirri, sem þeirri vegsemd fylgir
að taka ákvarðanir í sjálfs sín
og annarra efnum.
Róftækni — vinnulýð-
ræði
Eitt er einkennandi fyrir rót-
tæka æsku á íslandi og það er
hvað hún er róttæk í munninum
en íhaldssöm þegar upp fyrir
munninn kemur. Þannig telja
forsprakkar kommúnista það
eina herlega lausn allra vanda-
mála að skipa starfshópa í stað
nefnda, auðvitað með þeim aug-
Ijósu rökum, að starfshópar
starfi en nefndir. svæfi. Auðvita-
að gætu slíkir starfshópar orðið
hið mesta þarfaþing, en það
gætu nefndimar líka orðið, því
í rauninni eru þær ekki annað
en starfshópur. Aðalatriðið er
ekki hvaða nafn við gefum þeim
hópi manna, sem saman kemur
til að leysa einhver mál. Hitt
skiptir mestu máli, að hópurinn
vinni sitt starf af skynsamlegu
viti og réttsýni. En vafasamt er
það og meira en það, að öll okk-
ar ráð og nefndir hafi slíkt að
leiðarhnoða við vinnu sína. Mér
dettur í hug í þessu sambandi
eitt stórt fyrirtæki í þessum bæ,
sem nú berst í bökkum. Með það
hefur verið farið svo, að það
hefur fengið fjármunitil rekst-
urs á þeim forsendum, að það
sé þjóðhagslega séð hagstætt,
hvað sem það nú þýðir. Hins veg
ar 'hefur ekki farið fram nein
könnun á allri starfsemi og
ósjaldan heyrir maður að allri
skuld er skellt á forstjóra, enda
finnst mörgum það tryggast, því
ófært er að móðga fjöldann. Ég
skal fúslega viðurkenna, að ég
er lítt kunnugur rekstri þessa
fyrirtækis og ætla mér ekki að
fella neinn dóm um það. Hins
vegar hefur hvarflað að mér sá
grunur, að þar geti verið að
finna þá meinsemd, sem ég tal-
aði um áður, þ. e. firringuna.
Menn vinna þá störf sín meira
og minna í tilgangsleysi oft sök-
um þess, að þeir gera sér ekki
grein fyrir að vinna þeirra er
annað og meira en 'brauðstrit.
Allir 'hljóta að viðurkenna, að
manni hlýtur þá fyrst að líða vel
á sínum vinnustað, að hann fái
fullnægju í starfi sínu og hann
finni að það beri árangur. Það
er ekki hægt að ætlast til þess,
hvorki í stóru fyrirtæki, skóla
eða samfélagi manna, að öllu sé
stjórnað „ofan frá“. Þar verður
að virkja alla jafnt, hvert svo
sem starf þeirra annars kann að
vera innan stofnunar.
★
Atómsprengjan og
tómstundirnar
Svo ég víki þá enn að úti-
göngufólki því, sem mér verður
svo tíðrætt um, þá 'hefur það
beint athygli yfirvinnufólks, sem
við flest erum á íslandi, að því
átakanlega tilgangsleysi, sem
hrjáir okkur mitt í öllu velferð-
ardóti okkar. Það er einnig sum
part af þeirra frumkvæði, sem
menn velta nú meira fyrir sér
atvinnulýðræði og 'hvernig
höndla megi meiri lífsuppfyll-
ingu á vinnustað sem utan faans.
Þórarinn heitinn Bj ömsson
sagði eitt sinn, þegar mikið var
rætt um atómsprengjuna: „Ég
óttast ekki sprengjuna, en ég er
dauðhræddur við tómstundirn-
ar.“ Þetta er af miklu viti og
speki sagt og fullkomlega sam-
boðið slíkum húmanista sem
hann var. Hann horfði með ugg
á það, hvernig fólk var að ein-
angrast frá samfélaginu, hvernig
fór að gæta vaxandi upplausnar
og menn fjarlægðust æ meir
það, sem áður hafði verið fast-
ur þáttur þeirra. Lýðræði okkar
Ávnrib
í DAG, 20. október, á Kristján
Halldórsson á Klængshóli í
Skíðadal 85 ára afmæli. Undir-
ritaður þakkar Kristjáni fyrir
hugljúf kynni allt frá bemsku-
dögum. — Jafnframt læt ég þá
ósk mína flakka — að ef auðna
ræður geti ég spjallað við Kris-
ján í ró og næði fyrir jólablað
A. M. En ég leyfi mér, Kristján,
að biðja blað jafnaðarmanna á
AÐFARANÓTT sl. þriðjudags
lézt að heimili sínu hér í bæ
Emil Andersen, verðgæzlustjóri.
Með Emil er til moldar hniginn
mætur 'borgari fyrir aldur fram.
Emil tók mjög virkan þátt í
starfi templara og Sj álfsbj argar,
en undanfarin ár einnig leik-
starfsemi.
með öllum sínum kostum og göll
um er 'búin töluverð hætta af
sinnuleysi og því tilgangsleysi,
sem margir kvarta undan, þvi
maður án marks og miða í lífinu
er eins og skip án rár og reiða,
hann rekur undan ofsafengnustu
veðrunum og sterkustu straum-
unum. Hann 'hlýtur því að verða
öfgastefnum að 'bráð.
..—-------------
Frá Sjálfsbjörg
Okkar vinsæla FÉLAGSVIST
'hefst að Bjargi n.k. fimmtudags-
kvöld kl. 8.30 (á morgun). Fé-
lagar fjölmennið og takið með
ykkur gesti.
Stjórnin.
i —— ———
Góð auglýsing
gefur arð
bcill A
Akureyri fyrir heillaóskir mín-
ar, þótt ég verði að uppljóstra
því, að þú ert óforhetranlegur
Framsóknarmaður.
Beztu árnaðaróskir, Kristján
— og ég flyt þér og konu þinni
og dætrum beztu kveðjur.
Lifðu 'heill, Kristján, og hafðu
þökk fyrir allt liðið.
A. M. sendir ástvinum hans
hugheilar samúðarkveðjur og
óefað munu vinir hans minnast
hans nánar í næsta blaði. — Ég
þakka Emil fyrir persónuleg
kynni — og er þess fullviss að
hans bíður góð heimkoma hand-
an landamæra lífs og dauða.
S. J.
6 _ alþýðumaðurinn
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EMIL HELGI ANDERSEN,
Byggðavegi 93, Akureyri,
andaðist að heimili sínu 18. þ. m. — Jarðarförin ákveðin
síðar.
Erla Hallsdóttir,
Anna Halla Emilsdóttir,
Björk Emihdóttir, Þröstur Emihson,
. Sœmundur E. Andersen, Lillian Andersen,
Margrét Emihdótir, Júlíus Thorarensen
og barnabörn.
Sigurjón frá Hlíð.
N
Mcetur borgari Idtinn