Alþýðumaðurinn - 20.12.1976, Page 7
IM JÓLAHALD FYRR OG l\ltí
Kátt er á jólunum
Jólasiðir á íslandi hafa tekið
miklum breytingum í aldanna
rás og þó líklega aldrei meir
en hina síðustu áratugi, en
það kaupæði sem nú á dögum
fylgir jólunum mun ekki vera
eldr'a á íslandi en frá stríðsár-
unurn. Þó hefur ýmislegt hald
ið sér sem alltaf hefur fylgt
jólunum. Jólin eru ennþá há-
tíð ljóss og gróðurs eins og áð-
ur, þó rafljós hafi leyst kerta
ljósin af hólmi að miklu ieyti,
og gervijólatré séu víða kom-
in í stað lifandi trjáa. Jólin
hafa ávállt verið mikil gleði-
hátíð og er svo enn. Allt frá
fornu fari hafa heimboð mik-
ið tíðkast á jólum og var þá
oft glatt á hjalla og gjarnan
mikið drukkið og ekki síst var
mikið um neyslu heknabrugg-
aðs jólaöls, en til voru þeir
drykkjumenn, sem ekki brögð
uðu áfengi á aðfangadagskvöld
og jóladag. Jólin hafa ávallt
verið hátíð barnanna, enda
eðlilegt þar sem minnst er
komu Jesúbarnsins í þennan
heim á jólunum og hefur það
lengi verið venja að gleðja
börn á einhvern hátt á jólum
og voru kerti og spil algeng-
astar gjafa og er víst að þess-
ar gjafir sem þættu víst ein-
faldar nú, hafi ekki glatt börn
in minna en þær gjafir sem nú
eru gefnar, enda meðferð og
viðurværi barna dags daglega
á Islandi fyrr á tímum þannig
að ekki þætti boðlegt hjá nokk
urri siðaðri þjóð í dag. En
fleiri gerðu sér dagamun á jól
unum en mennskir menn. Þá
fóru álfar og huldufólk á
kreik og skemmtu sér í híbýl
um manna. Var þá vissast fyr
ir þann eða þá sem heima var
og gætti húsa þegar heimafólk
fór til kirkju, að láta ekki
glepjast og ganga í gleðina
með álfum, slíkt gat hefnt sín
grimmilega. Annað hvort
hlaut sá sem vildi með álfum
skemmta sér hinn versta dauð
daga, eða þá að hann missti
vitið. Þessar skemmtanir álfa
í mannh'eimum voru annað
hvort á jólanótt eða nýársnótt.
Fleiri yfirnáttúrlegar verur
brugðu á leik um jólaleytið.
Má þar fyrsta telja Grýlu
gömlu sem gerði sér þá glað-
an dag með því að éta kjötið
af óþægum börnum. Var þá
vissara fyrir börnin að vera
þæg og góð svo ekki þrifist sú
leiða og ljóta tröllkerling
Grýla. Grýlutrúin er ævaforn
og kemur Grýluheitið fyrir
sem tröllkonuheiti þegar í
Snorra-Eddu og einnig er
hennar getið sem óvættar
mikils í íslendingasögu Sturlu
Þórðarsonar. Grýla mun
fyrst hafa verið sérstaklega
bendluð við jólin svo vitað sé
á 17. öld í Grýlukvæði séra
Guðmundar Erlendssonar á
Felli í Sléttuhlíð. í kvæðinu
er hún líka bendluð við sér-
stakan áhuga sinn á börnum
og frá svipuðum tíma er Grýlu
kvæði séra St'efáns í Vallanesi
en hann telur Grýlu móðux
jólasveinanna. Grýla átti þrjá
menn og er Leppalúði þeirra
þekktaistur. Stóð hjónaband
þeirra um 5000 ára skeið og
áttu þau saman 20 börn og
auk þess átti Leppalúði barn
í lausaleik með vinnustúlku
er Lúpa hét, meðan Grýla lá
veik og var það sonur er
Skröggur var nefndur og varð
í engu föðurbetrungur. Auk
þessara barna eru Grýla og
Leppalúði sögð vera foreldr-
ar jólasveinanna en fyrsta rit
aða heimildin um þá er í
Grýlu'kvæði Stefáns í Valla-
nesi frá 17. öld og næst í orða
bók Jóns Grunnvíkings frá
1740 og hinni alræmdu Hús-
agatilskipun frá 1746. Þó eru
til ýmsar heimildir sem draga
faðerni þeirra og jafnvel ætt-
erni í efa. í fyrstu heimildum
er ekkert getið um fjölda
þeirra. Jón Árnason þjóð-
sagnasafnari telur þá hafa ver
ið annað hvort þrettán eða níu
og hefur hin fyrri sfcoðun ver-
ið almennari og er r'áðandi nú,
en þó er 'hin skoðunin þekkt
af vísunni alkunnu „Jóla-
sveinar einn og átta“. Jóla-
sveinar eru í fyrstu heimild-
um sagðir tröllslegir útlits og
hinir verstu viðsjálsgripir en
smátt og smátt þróast þeir
upp í að verða mun mann-
eskjulegri bæði í útliti og hátt
er'ni og gætir nú á dögum
áhrifa frá hinum engilsaxn-
eska Sainkti Claus, þó hald-
ast ennþá hin eldri íslensku
nöfn þeirra svo og fjöldi og
æ'tterni, þótt lítið séu nútíma
jólasveinar forynjulegir. Þess
má geta að víða í Evrópu trúa
börn að j ólasveinninn eigi
heima á íslandi og berast ár-
le'ga hingað hundruð bréfa til
hans og hefur Flugfélag ís-
lands séð um að svara þeim,
en víðast hvar í Evrópu er
jólasveinninn oftast bara einn
og þá oftast nefndur Sankti
Klás eftir hinum þekkta
verndardýrlingi bernskunnar
Sankti-Nicolas eða þá Jóla-
pabbi eins og í Frakklandi.
Þá má nefna ,,Jólaköttinn“,
sem var lítil ókennileg vera,
sem helst hafði fyrir stafni að
éta börn sem voru illa haldin
að klæðum og er þaðan runn-
ið „að fara í jólaköttinn", eða
„klæða jóla'köttinn“, sem enn
þá er oft sagt. Margsfconar
önnur hjátrú er tengd jólun-
um, og er of langt mál að
fara út í það allt hér. Þá þótti
til dæmis vænlegt að „sitja á
krossgötum“ en einnig þótti
Jónsmessan tilvalin til þeirra
hlu'ta. Þrettándinn er síðasti
dagur jóla og var fyrrum
mi'kill hátíðisdagur. Var þá
gjarnan mi'kið borðað og
drukkið. Þrettándanótt fylgdi
svipuð hjátrú og jóla- eða ný-
ársnótt í sambandi við bú-
ferlaflutninga álfa, setur á
krossgötum o. s. frv. Þrettánd
inn var svo afnuminn sem há-
tíðisdagur með danskri kon-
ungstilskipun þar eð hann
þótti vera leifar frá heiðni, en
aldrei hefur það aflagst með
öMu að halda upp á hann og
virðist það frekar fara í vöxt
nú á síðari árum að menn
„roti jólin“ hressilega þann
dag. Af þessum sundurlausu
molum, sem hér hafa verið
tíndir fram má sjá að þótt
mangt sé orðið breytt í þjóð-
lífi íslendinga, þá er ennþá
margt í jólahaldi þjóðarinnar
sem staðist hefur tímans tönn.
Ennþá gera menn sér daga-
mun á þessari hátíð hátíð-
anna, og ennþá eru á ferli álf
ar og tröll, jólaköttur og jóla
sveinar, og ennþá er Grýla
gamila á ferli með pokann
sinn, þótt heldur sé hún nú
orðin meinlaus greyið. Enn
þann dag í dag lýsa jólin upp
hið langa íslenska skammdeg
ismyrkur og minna okkur á
að brátt fara dagarnir að
lengjast og sölin að hækka á
lofti. R. A.
•I* »>»>»>vwvvv
i
x
X
I
i
I
X
:
t
X
❖
I
f
V
I
I
?
T
♦*♦
x
x
X
I
I
I
I
$
$
!
X
X
X
Gleðileg jól
►♦>*>♦:»»:♦»>•:»»>*>*:
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að Iíða
Ferðaskrifstofa Akureyrar
♦í**X**H*»X»»H*»H*»J‘»>»K‘»>*X*»J»»H*»J»»H»»J»»H*»J»*HmJ*
Gleðileg jól
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Norðlensk trygging hf.
Gleðileg jól
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Verslunin Drífa
*
|
I
'k
I
X
x
x
*
i
Gleðileg jól
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Olíufélag Islands
*>*>*:**>*>*>,h*»>»h»*>*>*>*>*>*>*>»>*>»h**>*:**>»>»h»»>*!»*:»»>*>*>»>*>*>*!
x
•:•
I
!
x.
Gleðileg jól
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Verslunin Esja, Norðurgötu 8
Gleðileg jól
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
AKO pokinn — Plasteinangrun hf.
♦*♦ *> •> •> «H* *> ♦> ♦> ♦> ♦> •> ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ .♦* ♦*• ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ **♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦
Gleðileg jól
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Hótel KEA
Gleðileg jól
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Skóverslun M. H. Lyngdal
!
!
r
!
!
?
?
y
y
y
X
X
y
y
y
y
!
!
y
t
x
x
X
t
i
X
..t'<
I
I
?
?
!
X
X
X
Y
X
X
X
Gleðileg jól
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Verkamannafél. Fram, Sauðárkróki
►♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦*♦♦•'♦♦*«♦*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦«
♦ ♦♦ .*’♦**♦•*♦**♦**♦•*♦**♦*•♦**♦**♦**♦**♦♦*♦•*♦•*♦•*♦**♦**♦**♦**♦**♦**♦••♦•*♦”♦"♦”♦”
Gleðileg jól
OG FARSÆLT ICOMANDI ÁR
Þöldcum viðskiptin á árinu sem er að líða
Bifreiðastöðin Stefnir
vvv*>*>*>*>*>*>*>*>*>*>*>
Gleðileg jól
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki
♦*♦♦*♦♦*.♦*♦♦*♦♦*>♦'♦♦*♦♦*♦
*.**♦**♦**«**♦**♦**♦**♦**.*
!
t
t
t
t
t
I
I
t
I
x
I
t
t
t
I
!
i
i
I
l
i
i
t
f
!
!
I
k
'! ♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦•♦♦*♦♦*♦♦*♦♦•♦♦•♦♦*♦♦*♦♦•♦♦!
JÓLABLAÐ
►♦♦.♦♦.-.♦•;**>*>*>*>*>*>*>*>*>*>*:**;-:**:**>*>*>*:**x.*x^x-x-
Gleðileg jól
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Almenna tollvörugeymslan