Nýja stúdentablaðið - 01.01.1945, Side 2

Nýja stúdentablaðið - 01.01.1945, Side 2
NÝJA STÚDENTABLAÐIÍ) 2 Auðvaldið á heljarþröminni Vísindi hinna siðax-i alda gerbreyttu heimsmynd mannsins og hugmyndum hans um ýmis öfl mannlífsins og náttúru. Aragrúi fyrirbrigða, sem menn höfðu áður bjástrað við að skýra hvert í sínu lagi, voru nú leyst mörg í einu með undursamlegu lög- máli, sem gerði ofur einfalt það, sem áður virtist flókið, ljóst hverju barni það, sem áður var órætt spekingum. Dæmi slíkra lykla að dulmáli alheimsins eru þyngdai’lögmál Newtons, þró- unarlögmálin, samanburðarmálfræðin o. s.frv. Engri þessara kenninga verður haggað á grundvelli skynseminnar. Urn þær stendur ekki lengur styrr, þær eru orðin óvéfengjanleg eign mannlegrar þekkingar. Það var rnjög að vonum, að 1!). öldin léti mannkyninu eftir nokkra skýringu á óskapnaði þeim, sem samfélag manna sýnd- ist vera. En lögmál þess fundu þeir Marx og Engels eftir þrot- laust rannsóknastarf. Eyndinn maður hefur sagt, að hver ný liugmynd, sem til framfara horfi, verði að komast yfir þrjár torfærur: fyrst sé hún kölluð hlægileg, því næst, að iiún sé fjand- samleg trúarbrögðunum, og loks, að hún hafi legið í augum uppi. Allar vísindalegar nýjungar 19. aldar hafa nú komizt gegnum þennan hreinsunareld fávizkunnar, nerna hin síðasta, er talin var — marxisminn. Hún stendur nú við þriðja þröskuldinn. Kenningu marxismans er það að þakka, að við skiljum nú þau öfl, sem eru að vei'ki í samfélagi manna, og þurfum ekki lengur að standa ráðþrota gagnvart vanda þeim, sem steðjar að mann- kyninu í félagsmálum. En sitt er livað að þekkja lögmálin eða færa sér þau í nyt. Náttúrufræðingurinn Haldane segii-, að það sé náttúrulögmál, að við sýkjumst af tauga veiki, ef við drekk- um vatn, sem í eru taugaveikissýklar, en þetta lögmál beri dauðarin í brjóstinu, því að það hætti að vera til, ef við sjóðurn vatnið og sótt'hreinsum. Líkt er þessu farið með þjóð- félagsvandamálin. Stjórnmálamenn auðvaldsheimsins byrla okkur vatnið ósótthreinsað af ótrúlcgri þvermóðsku. Marxisminn sýnir ökkur, hvcrnig þjóðfélagið hefur unr ald- irnar hvað eftir annað tekið stakkaskiptum, breytt um form eftir breytilegum aðstæðum, sem cinkum mótast af framleiðslu- háttum á hverjum tíma. Allir sjá t. d. hve óhugsanlegt léns- skipulagið væri nú á dögum hinnar stórfelldu vélaiðju. En þjóðfélagið hefur því miður ekki haft fataskipti sín þegjandi og hljóðalaust. Sá hluti þjóðfélagsþegnanna, sem hið úrelta skipu- lag þrengdi mest að, hefur brotið niður gömlu þjóðfélagsformin og skapað önnur ný, sem heftu ekki vöxt hennar né viðgang. Þetta eru hinar svökölluðu þjóðfélagsbyltingar. Með þessum hætti hrundi lénsskipulag miðalda í byltingum borgax-anna á 18. og 19. öld, og við tók hið borgaralega auðvaldsþjóðfélag, sem við þekkjum öll svo vel. Nú er svo komið, að þetta þjóð- félag hæfir ekki lengur fi-amleiðsluöflum tímans. Iiin aðþrengda stétt, verkalýðui-inn, sem ber uppi framleiðsluna, hefur komið á tímabæru þjóðfélagsformi á sjöttungi hnattarins. Annars staðar er breytingin fyrir dyrum. Iíjól þróunarinnar verður sannarlega ckki stöðvað. Fasisminn, sem átti að leiða okkur á ný inn í myrkur miðaldanna, er farinn út um þúfur, eins og allir vita. En það er skylda hvers manns að stuðla að því, að þjáningar umskiptanna, fæðingarhríðir nýja samfélagsins, verði sem minnstar. Hvað veldur því, að niðurstöður þjóðfélagsvísindanna ná ekki að ryðja sér til rúms um heim allan sem kærkominn og hag- nýtur þekkingarauki? Svo er mál með vexti, að sá hópur rnanna, sem ræður yfir auðlindum og atvinnutækjum, telur sig hafa hag af að ríghalda í núverandi skipun mála. Þessi stétt, sem venjulega er kölluð yfirstéttin, hefur skapað hugmyndakerfi, ríkisvald og siðalög í samræmi við hagsmuni sína og þarfir. Þar sem þessi stétt ræður yfir útbreiðslutækjum, blöðum, útvarpi og uppeldistækjum, svo sem skólum, fær hún því til lciðar komið, að hugsjónum hennar er með margvísleg- um uppeldisáhrifum þrykkt svo rækilega inn í hug hvers manns, að þær renna saman við siðgæðisvitund hans. Að vilja afnema þá skipun mála, sem tryggir henni völd, er því sama og glæpur, hagsmunir hennar ákveða, hvað skuli teljast rétt eða rangt. Fyrir J)á sök eina verður henni auðvitað ekki kollvarpað mcð „löglegum“ hætti. Þótt ])ví sé sleppt, að víðast hvar innsiglar yfirstéttin vald sitt með her eða ríkislögreglu, þá hefur hún enn fleiri tæki í höndum til að hjúpa veruleikann þokum, sem almenningur á erfitt með að grilla í gegnum. Einstaklingurinn hrærist hér mitt í verðandi þróunarinnar, veit ekki, að hann er herra hennar, lætur sjónir sínar nema við smámuni og skortir yfirsýn. Það er stundum kallað, að menn sjái ekki skóginn fyrir trjám. Likt fer allt of mörgum í viðhorfinu til þjóðfélagsmálanna. Valdastéttin elur auðvitað óspart á ])essum sjónarhætti, þvi að tilvera hennar byggist á því, að nægu ryki sé slegið í augu fjöldans. Þekkingunni á þjóðfélagsöflunum mætti hins vegar líkja við leiti, þaðan sem sæi yfir skóginn. Þá villa ekki lengur um cinstakir stofnar. „Hugstola mannfjöldans vitund og vild er villt um og stjórnað af fám“, kvað Stephan G. Step'hansson og brást ekki skarpskyggnin. — Þjóðfélagsblindan cr enn út- breiddur sjúkdómur, því er verr, og ]iótt undarlegt megi virð- ast, engu síður meðal svokallaðra menntamanna. Það þykir að vonum ekki vansalaust fyrir stúdent að kunna ekki einhver skil á þróunarkenningu Darwins eða þyngdarlögmálinu. En hversu margir þeirra hafa látið undir höfuð leggjast að gera

x

Nýja stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/608

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.