Nýja stúdentablaðið - 01.10.1957, Qupperneq 1
& rrcsA
21. árg. 1. tbl.
Okt. 1957.
310.
STUDENTABIABIÐ
ÚTGEFANDI: FÉLAG RÓTTÆKRA STMDENTA
Stúdentar! Tryggið vinstri samvinnu sigur -
kjósið i-Iistann!
í STÚDENTARÁÐSKOSNINGUNUM, sem nú fara fram, eru fleiri listar í kjöri en verið hefur
undanfarin ár, sakir þess, að nú náðist ekki samkomulag um sameiginlegt framboð vinstri félaganna
í háskólanum.
Eins og kunnugt er, hófst víðtækt samstarf Vökuandstæðinga í skólanum, er Vaka missti meiri-
hluta sinn í kosningunum 1953. Fyrir forgöngu Féiags róttækra stúdenta var þá gerður málefnasamningur
milli vinstri félaganna og hann síðan endumýjaður lítt breyttur á hverju hausti. Höfuðatriði þessa málefna-
samnings var, að vinstri félögin skyldu standa saman um að gera 1. des. að baráttudegi fyrir brottför
hins erlenda herliðs af landinu. Samningurinn var raunar miklu víðtækari, þótt ekki sé ástæða til að
rekja það hér.
Þetta samstarf varð með hverju ári víðtækara og árangursríkara og imdir stjóm vinstri meirihlutans
vom undirbúin mörg mál sem nú þykja stúdentum til mesta sóma, má' þar nefna Heimsmeistaramót
stúdenta í skák, sem haldið var liér í sumar.
Fað var Félag róttækra stúdenta, sem ávallt hafði forgöngu um þessa samstöðu vinstri félaganna,
alltaf það afl, sem hélt saman félögumun meðan meirihluti þeirra hélzt í ráðinu.
Fað var einnig fyrir forgöngu róttækra, að vinstri félögin tóku upp sameiginlegt framboð, og á síð-
asta hausti var svo komið að allir andstæðingar Vöku stóðu að sameiginlegu framboði.
Orsakir þess, að listi vinstri manna beið ósigurvom einkum t\7ær: Sjálfstæðisflokkurinn lagði alla
áherzlu á að vinna þessar kosningar, sem voru hinar fyrstu eftir að hann hrökklaðist úr ríkisstjóminni,
og á hinn bóginn var sigurvissa vinstri manna svo mikil að kosningaundirbúningur var ekki rekinn af
þeim krafti, sem þurft hefði að vera. Þetta sannast bezt á því að kosningaþátttaka varð mjög lítil, þótt
allt flokksapparat Sjálfstæðisflokksins væri í gangi.
Eftir ósigurinn lögðu fulltrúar róttækra í stúdentaráði allt kapp á, að þessi samstaða héldist og tókst
að vemda vinstri samvinnu allt kjörtímabilið.
Nú í haust sendu róttækir að venju öðmm Vökuandstæðingum boð um sameiginlegt framboð og
samstöðu eftír kosningar. ÖIl vinstri félögin kusu viðræðunefnd, en jákvæður árangur varð ekki af þeim
viðræðiun og sýnilegt áhugaleysi var um þetta mál hjá krötum og frjálslyndum. Þetta breytir í engu
afstöðu Félags róttækra til málsins og munu fulltrúar þess í stúdentaráði enn beita sér fyrir samvinnu
eftir kosningar á svipuðum málefnagmndvelli og áður, og telja má líkur á, að það mimi takast.
Benda skal á þá staðreynd, að sú breyting hefur orðið síðan í fyrra að hægri öflin hjá krötum og
frjálslyndiun móta nú stefnu þessara félaga í ríkara mæli en undanfarin ár. Aukið kjörfylgi þessara fé-
laga myndi styrkja þessi öfl. Þeir stúdentar innan þessara félaga, sem einlæglega vilja samstarf vinstri
félaganna í háskólanum, geta ekki sýnt þann vilja sinn á annan hátt en að kjósa róttæka nú í kosningunum
og knýja þannig hægri öflin í sínum félögum til vinstra samstarfs.
Aukið fylgi Félags róttækra stúdenta er eina raunhæfa krafan mn vinstra samstarf, þvi að nú sem
fyrr, eru það róttækir sem einir hafa tekið ábyrga afstöðu til vinstra samstarfs.
KJÓSIÐ VINSTRA SAMSTARF — KJÓSIÐ C-LISTANN!
LANDSBOKASAFW
210731
ÍSLANDS