Nýja stúdentablaðið - 01.10.1957, Qupperneq 3
NÝJA STÚDENTABLAÐIÐ
3
HÖRÐUR BERGMANN, stud. mag.:
asatns
Þegar vinstri félögin náðu meiri-
hluta í stúdentaráði haustið 1954
voru starfandi tvö alþjóðasamtök
stúdenta, sem venjulega eru nefnd
I.U.S (International Union of
Students) og Cosec (Coordinating
Secretariat). Þau fyrrnefndu voru
stofnuð í París 1946 af samtökum
þeirra þjóða sem börðust gegn
nazistum í síðari heimsstyrjöld-
inni en þau síðarnefndu í Edin-
borg 1952 eftir að alþjöðasam-
bandið hafði klofnað í sviftingum
kalda stríðsins.
Vinstrimeirihlutinn sameinaðist
um þá sjálfsögðu stefnu að hafa
vinsamleg samskipti við stúdenta
hvar sem er í heiminum og vinna
að samvinnu og sameiningu beggja
sambandanna með því að eiga að-
ild að þeim báðum. 1 samræmi við
þá stefnu gerðist stúdentaráð að-
ili að I.U.S. vorið 1955 sem auka-
meðlimur. 1 samningum milli sam-
takanna var ákveðið að S.H.I. væri
óbundið af pólitískum yfirlýsing-
um sem I.U.S. sendi frá sér, en
hefði þó full réttindi innan sam-
bandsins.
Samskipti stúdentaráðs og I.U.
S. urðu með ágætum. Tóku íslenzk-
ir stúdentar þátt í mótum, nám-
skeiðum og þingum I.U.S. og fengu
hlþtí stúdmta
meiri réttindi og áhrif innan sam-
takanna en margir aðrir aðilar
þeirra. Hefur Island t. d. alltaf átt
fulltrúa í framkvæmdanefnd sam-
bandsins. Ýmsir stúdentar sem
litið höfðu I.U.S. hornauga urðu
því fylgjandi við nánari kynni,
Vökumcinn ekki síður en aðrir.
Samskipti I.U.S. og stúdentaráðs
náðu svo hámarki með því að ráð-
ið samþykkti að Alþjóðaskákmót
stúdenta yrði haldið í Reykjavík
sumarið 1957, en skákmót þessi
eru haldin að frumkvæði I.U.S. og
hafa hlotið viðurkenningu Al-
þjóða skáksambandsins. Jukust
því vonir um, að takast mundi ein-
ing meðal íslenzkra stúdenta um
að vera í báðum alþjóðasambönd-
unum.
Eftir að Vaka náði meirihluta
í ráðinu síðastliðið haust bjugg-
ust þó ýmsir við, að rokið yrði til
að bera upp úrsögn úr I.U.S. Ekki
fór þó svo og var málið látið kyrrt
liggja, þar til er Ungverjar fóru
að berjast fyrir auknu lýðræði í
landi sínu. Enda þótt Vaka hefði
mikið af því gumað, að félagið vildi
ekki blanda stúdentaráði inní póli-
tísk mál tók meirihluti þess nú
fjörkippi mikla, þótt ekki hefði
hann fyrr né síðar blakað auga
fylgdu þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins Ragnhildi Helgadóttur
— flokkssystur sinni, þrátt fyrir
heiðarlega en máttlitla baráttu
hennar.
Ekki sáu Vökumenn ástæðu til,
að stjórn Stúdentaráðs gengi á
fund menntamálanefndar, þegar
frumvarpið var til umræðu á þingi,
þótt einstaka Vökumenn hafi hins
vegar rætt við þá þingmenn Sjálf-
stæðismanna, sem þeim voru kunn-
ugastir. Hitt ber að viðurkenna að
formaður stúdentaráðs fór ásamt
Hirti Gunnarssyni á fund Einars
Olgeirssonar og hafði samráð við
hann um aðgerðir Einars í málinu.
Hafi fulltrúi krata í ráðinu gert
eitthvað í málinu ihefur árangur-
inn ekki orðið meiri en vænta
mátti.
Hin nýju lög um Háskóla íslands
standa enn til bóta. Allar þær
greinar, sem stefnt er gegn aka-
demisku f relsi og heimila takmörk-
un aðgangs að Háskóla íslands
þurfa að hverfa. Þess vegna munu
fulltrúar Félags rótttækra stúd-
enta, sem kjörnir verða beita sér
fyrir niðurfellingu framangreindra
ákvæða og njóta þar tilstyrks allra
réttsýnna manna.
þótt stúdentar erlendir berðust
fyrir réttindmn sínum. Skorti
meirihluta stúdentaráðs nú hvorki
fé né áhuga, aldrei þessu vant, og
bauð til fundar í Gamla-Bíó og
skyldi þar heldur betur klekkja
á kommúnistum og fella ríkis-
stjórnina í leiðinni.
í framhaldi af þessu bar svo
meirihlutinn fram harðorða tillögu
í Ungverjalandsmálunum á fundi
ráðsins 19. des. s.l. Var tillagan
lögð í munn framkvæmdanefndar
I.U.S. og henni sett að samþykkja
hana óbreytta, ella segði stúdenta-
ráð sig úr samtökunum. Var þess-
um vinnubrögðum harðlega mót-
mælt af fulltrúum róttækra, en
því ekki sinnt og lyktaði þessu
máli með því að tillaga Vöku var
felld af framkvæmdanefndinni og
stúdentaráð þar með úr samtök-
unum. Var því svo komið að S.H.l.
sem í upphafi hafði gengið í I.U.S.
með því skilyrði að eiga ekki að-
ild að pólitískum yfirlýsingum
hafði sagt skilið við samtökin
vegna þess að þau höfðu ekki vilj-
að samþykkja pólitíska yfirlýs-
ingu. Þannig er hægt að fara ó-
trúlega gegnum sjálfan sig þegar
lannarleg pólitísk sjónarmið eru
látin ráða.
Að lokum skal minnt á að aðild
stúdentaráðs að I.U.S. rennur út
með eins árs fyrirvara þ. e. í
marz n. k. ef stúdentar taka ekki
í taumana í kosningum þeim sem
í hönd fara og koma í veg fyrir að
jráðið verðji virkur aðili að því
kalda stríði, sem leitast við að
skipta heiminum í tvær andstæðar
fylkingar. Þeir sem fylgja þeirri
stefnu Félags róttækra stúdenta
að eiga samstarf við stúdenta hvar
sem er og efla gagnkvæm stúd-
entakynni geta ekki gengið fram
hjá I.U.S. sem hefur innan sinna
vébanda meginhluta stúdenta í
Asíu, Afríku, A-Evrópu og víðar.
Stúdentar ættu að sameinast um
að bera klæði á vopnin og vinna
gegn sundrung í stúdentahreyfing-
unni með því að eiga aðild að báð-
um alþjóðasamtökunum og beita
sér fyrir aukinni samvinnu þeirra.