Heimilið og KRON - 01.06.1940, Page 3

Heimilið og KRON - 01.06.1940, Page 3
HEIMILIÐ og KRON Sigurður Kristinsson sextugur Sigurður Kristinsson, forstjóri Sambands Isl. samvinnufélaga varð sextugur að aldri 2. júlí. Hann er kominn af kjarnmiklum bændaættum eyfirskum og þingeyskum, og koma mjög saman ættir hans og samvinnu- frömuðanna þingeysku,þeirra Jakobs Hálf- dánarsonar og Benedikts á Auðnum. Sigurð- ur gekk í þjónustu Kaupfélags Eyfirðinga 26 ára gamall, árið 1906, gerðist fram- kvæmdastjóri þess 1918 til 1923, að hann tók að sér forstjórn Sambands ísl. sam- vinnufélaga, að Hallgrími bróður sínum látnum, og hefir hann gegnt því starfi ó- slitið síðan. Hann hefir því um nálega hálfan fjórða tug ára helgað samvinnu- málunum líf sitt allt og starf. Tvennt er það einkum á vettvangi sam- vinnumálanna í starfstíð Sigurðar Krist- inssonar, sem ástæða þykir til að benda á í þessum fáu línum. Það tvennt bar sam- tímis að höndum, að Hallgrímur Kristins- son, sem með eldmóði sínum og ósleiti- legu starfi hafði orkað geysilegum vexti samvinnuhreyfingarinnar í landinu, féll frá og að félögunum hafði borizt á hendur hinn mesti vandi í allri sögu þeirra: vandi hins allsvarðandi viðnáms, sem hófst með verðhruninu 1920 og 1921. Sókn- arstarfið, þegar málefni horfa til vaxtar og framgangs, er glæsilegt átakastarf og að vísu háð þeim mikla vanda, að eigi sé framar sótt en að varnir séu traustar. Hins vegar er því nálega ávallt svo háttað, að í vel heppnaðri vörn er fólginn sá eig- inlegi sigur. Sigurður hlaut, umfram aðra menn, þann vanda að stýra samvinnufé- lögunum gegnum kreppuna og halda fremstu sóknarstöðvum, sem unnist höfðu 51

x

Heimilið og KRON

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilið og KRON
https://timarit.is/publication/609

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.