Heimilið og KRON - 01.06.1940, Síða 7

Heimilið og KRON - 01.06.1940, Síða 7
HEIMILIÐ OG KRON tvennskonar gífurleg máttarvöld og tak- ast á um skipulag í stjórnarháttum þjóð- anna. Annars vegar einvaldarnir á megin- landi Evrópu, sem hafa nú brotið undir sig ráð flestra Evrópuþjóða; hins vegar Bretar með nýlendur sínar og Bandaríkin að bakhjalli. Styrjöldin hefir verið rekin með nýjum stórvirkari tækjum og þvílík- um hraða, sem auðkennir öngþv.eiti það og æsihugsanir, sem að baki standa. Má og telja, að hver dagur, sem upp rennur yfir hið hrjáða mannkyn, flytji því ógnanir um ný og ný stórslys, hefndarverk og tortím- ingu. Hversu sem kann að fara um úrslit þessara átaka og hversu sem með fullum rétti má deila á einræðið og á lýðræðið, eins og því hefir verið háttað og er háttað enn í dag, þá fer það ekki á milli mála, að frumskilyrðið til einstaklingsþroskunar og þroskunar mannkynsins alls er frelsið, athafnafrelsi, skoðanafrelsi, ritfrelsi og málfrelsi. Enginn maður tekur nokkurn- tíma nýtilega ákvörðun fyrir sjálfan sig, sína nánustu eða fyrir sína þjóð, án þess hann eigi full ráð á sínum eigin huga og megi sjálfur stjórna sínum athöfnum. Ég hefi talið þennan formála nauðsynleg- an inngang að þeim kjarna málsins, sem ég vildi biðja þetta rit að flytja lesendum sínum. En hann er sá, að skipulag sam- vinnunnar er fyllsta lausnin, sem enn hefir fundist á þeim stórkostlegu vandræðum, er mennirnir frá öndverðu hafa átt við að stríða í sambúðinni á þessari jörð. Undir- staða og kjörorð samvinnustefnunnar er hið gamla, einfalda kærleiksboðorð Jesú Krists: „Það sem þér viljið að mennirnir geri yður, það skuluð þér og þeim gera.“ Samvinnan, hvort heldur er í verzlunar- málum eða í atvinnu- og framleiðslumál- um byggist á því að unna náunga sínum þess hins sama hlutar og hver og einn óskar sjálfum sér til handa. Samvinnan er réttlætið í framkvæmd, hún er náungans HEIMILIÐ OG KRON Útgefandi: Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis. Ábyrgðarmaður: Guðm. Tryggvason. Afgreiðsla: Skólavörðustíg 12. — Sími 1727. Áritun: „Heimilið og Kron“, Skólav.st. 12. Verð kr. 1,00 árg. Prentsmiðjan Edda h.f. L----—-----— ----—.—------—.—.—----- kærleikur í raun, hún er vörn gegn of- beldi og arðsviftingu, og hún er sókn á hendur æfagömlu ranglæti og villimennsku í sambúð mannanna. Skipulag samvinn- unnar er fyllsta skipulag lýðræðisins. Það er ekki lýðræði í orði kveðnu, sem hefir þessa helgu hugsjón aðeins að yfirvarpi og til misbeitingar, til þess að afla sjálfum sér valda og til þess að kúga og ofsækja hvern þann mann, er þykir í vegi standa, hún er ráð til raunverulegrar kærleiks- sambúðar á jörðunni. Lesendur góðir! Að þessu sinni læt ég nægja það, sem hér er ritað, og ég bið yður að íhuga þessar línur. Ég hefi ritað og hugsað um þessi mál um tvo tugi ára og öðlast óbifanlega sannfæringu um yfir- burði samvinnustefnunnar framyfir allar aðrar tilraunir mannanna til bættra sam- búðarhátta. Ég trúi ekki á byltingar. Með þeim er unnt að breyta ástæðum í bili, en þær hafa ekki í sér fólgin skilyrði til raun- verulegs mannkyns-uppeldis. Þroski ein- staklinga og þjóða fæst aðeins með sam- starfi, þar sem fylgt er hinu áðurnefnda boðorði: „Það sem þér viljið að mennirnir geri yður, það skuluð þér og þeim gera.“ Jónas Þorbergsson. Mnnið 5% í pöntiin, tckjnafgaiigar efíir árið. 55

x

Heimilið og KRON

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilið og KRON
https://timarit.is/publication/609

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.