Sumargjöfin - 23.04.1925, Blaðsíða 16

Sumargjöfin - 23.04.1925, Blaðsíða 16
16 SUMARG1ÖFIN mynd. En hins vegar eru kvikmyndir einhver allrabesta fræðsluaðferð í öllu góðu og nyt- sömu. Þess vegna eiga þeir, sem fræðslu- málum ráða, að nota kvikmyndir miklu meir, við kenslu en gert er. ]eg veit, að Biostjórarnir hjer gera sjer mikið far um að fá góðar myndir til að sýna, en samt sem áður eiga hlutaðeigandi yfirvöld að gefa nákvæmar gætur að því, hvaða myndir eru sýndar, ekki einungis vegna barnanna, heldur einnig vegna hinna fullorðnu. Kvik- myndir eru að verða mjög sterkur þáttur í menningu jarðar; varðar því miklu, úr hverju sá þáttur er gerður. Foreldrar! Látið börn yðar ekki rangla úti um götur og torg, knæpur og kaffihús fram á miðjar nætur og lengur. A nóttunni eiga þau að sofa. Næturrangl leiðir til alls- konar auðnuleysis og böls. A síðkvöldum og nóttum skríður ýmiskonar siðspilling úr híði sínu og læðist um götur, knæpur og kaffihús. Haldið börnum yðar frá þessum ósið. Hjer mætist einnig verksvið einstaklinga og yfirvalda. Heimta verður, að lögreglan að- stoði heimilin eftir mætti við þetta verk. Foreldrar! Látið börn yðar ekki læra að neyta tóbaks eða áfengis. Þjer vitið, að það gerir öllum ilt, en engum gott. Stórt skref er stigið í áttina til siðspillingar, þegar ung- lingurinn lætur í fyrsta sinn sígarettuna upp í munninn. Ein syndin býður annari heim. Hægara er að halda börnum yðar frá þessum löstum, ef þjer eruð laus við þá sjálf. Ef þjer haldið, að þjer getið ekki verið án þessara eiíurlyfja, þá kennið börnum yðar samt að þekkja verkanir þeirra á manninn, og komið þeim í skilning um, að þjer vönd- ust á þetta af barnaskap, og að þjer vissuð ekki þá, hvað skaðlegt þetta var. Hjer mæt- ist enn verksvið einstaklinga og yfirvalda. Löggjafar og landsstjórn eiga að gera alt, sem unt er, til að koma í veg fyrir að þjóðin neyti áfengis og tóbaks. Það er siðferðisleg skylda. Athugið siðleysið í því, að þjóðin ís- lenska hefir fjárhagsleg efni á að eyða ár- lega hátt á aðra miljón króna — út úr land- inu — fyrir áfengi og tóbak, en getur þó ekki, fátæktar vegna! reist landsspítala fyrir álíka upphæð í eitt skifti fyrir öll, og myndi þó að minsta kosti 2/s landsspítalaverðsins ekki borgast út úr landinu. Eða þær geysiháu fjárhæðir, sem fara fyrir allskonar hjegóma og glingur, en fátæktina hins vegar, þegar talað er um að vanti barna- skólahús. Þetta er stækkuð mynd af heimilisföður, sem drekkur út launin sín, en lætur konu og börn sín svelta og draga fram lífið í örbirgð og eymd. Að lokum vil jeg minnast örfáum orðum á barnafræðslu í skólunum. Það er afaráríðandi, að barnafræðslunni sje meira beint að mannúð og siðferði en gert hefir verið. Siðfræðin á að skipa æðsta sess í barnaskólunum. Kenning Krists er öruggur grundvöllur undir siðferði. En þess verður að gæta við kenslu í kristnum fræðum, að unglingarnir læri að koma kenningum Krists í samband við líf sitt og hegðun. Kenslan 4 að vera lifandi, en ekki dauð. Notið andann, en ekki bókstafinn. — Kennið eins og Kristur kendi sjálfur. Og látið börnin skilja, að kenning hans sje sönn. Sýnið þeim fram á, að þeim sje nauðsynlegt að líkjast honum. Hindrið ekki þroska þeirra með því að koma því inn hjá þeim, að eng- inn geti orðið Kristi líkur. Vantraustið veikir þrekið. Látið þau gera eins og þau geta. Það skaðar ekki, þó að þau setji markið hátt. Látið þetta vera aðalatriðið í kristindóms- kenslu, en gerið minna að því, að koma inn hjá börnum ýmsum aukaatriðum og kenning- um um Krist, sem smátt og smátt hafa mynd- ast á 20 öldum. Það skiftir minstu, hver hann er, sem segir sannleikann. Sannleikur- inn er hinn sami, hvaðan sem hann kemur. Reykjavík, 12. apríl 1925. Þorl. Ofeigsson.

x

Sumargjöfin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sumargjöfin
https://timarit.is/publication/613

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.