Mosfellsblaðið - 01.09.1998, Page 4
Þann 8. ágúst s.l. vom gefin saman í Lágafellskirkju af séra Jóni Þorsteinssyni þau
Berglind Helgadóttir og Karl Emilsson. Þau munu byggja sér hús að Ökrum í
Mosfellsbæ.
Löggubrúðkaup. - Þann 12.sept.s.l.voru gefin saman í Lágafellskirkju af sérajóni
Þorsteinssyni þau Þórajónasdóttir og GuðmundurÁsgeirsson. Þau eru lögreglu-
menn í almennri deild lögreglunnar í Reykjavík, en búa í Mosfellsbæ.
Frá Hitaveitu Mosfellsbæjar
Þeir gjaldendur sem enn hafa ekki greitt
gjaldfallna hitaveitureikninga em hvattir
til að gera skil hið fyrsta.
Hitaveita Mosfellsbæjar
Frá lögreglunni í Mosfellsbæ
Hl foreldm bama og unglinga
Foreldrar/forráðamenn barna og unglinga eru minntir á að þeir bera ábyrgð á að
reglur um útvistartíma séu virtar. Því miður virðast sumir forráðamenn vera
áhugalitlir um hvað börnin þeirra eru að gera. í haust hefur lögreglan nokkrum
sinnum þurft að hala afskipti af börnum og unglingum vegna brota á útivistar-
reglum. í slíkum tilvikum er haft samband við foreldra og þeir látnir sækja böm
sín eða börnunum ekið heim. Lögreglusk)'rsla er síðan rituð um rnálið og afrit
sent til Félagsmálastofnunar Mosfellsbæjar.
Ekki leyfa unglingasamkvæmi nerna einhvern fullorðin sé á staðnum. Eftirlits-
laus unglingasamkvæmi fara oít úr böndunum. Þar byrjar oít áfengisdrykkjan og
þar er unglingnum oft boðin fyrsta hasspípan eða jafnvel eitthvað sterkara fíkni-
efni.
ÚTVISTARREGLUR ERU EKKITILAÐ ÞÓKNAST YFIRVÖLDUM, ÞÆR ERU SETT-
ARTIL AÐ VERNDA UNGA FÓLKIÐ OKKAR. ÞAÐ ER REYNSLA ÞEIRRA SEM
VINNAAÐ MÁLUM UNGA FÓLKSINS AÐ MEIRI LÍKUR ERU ÁAÐ UNGLINGAR
SEM ERUAÐ FLÆKJAST UMAÐ NÆTURLAGI LENDI í VANDRÆÐUM, ÁNETJIST
ÁFENGI EÐA FÍKNIEFNUM, LENDI í HÖNDUM VAFASAMRA MANNA EDA FARI
ÚT í AFBROT.VIÐ HÖFUM SÉÐ OF MARGA GÓÐA KRAKKA FARA ILLA ÚT ÚR
SLÍKU.
YFIR VETRARTÍMANN SKULU BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI VERA KOMIN
INN KL 20.00 Á KVÖLDIN. UNGLINGAR 15 ÁRA OG YNGRI SKULU
VERA KOMININN KL. 22.00.
llmferðin við Vannárskóla
Lögreglan hefur í haust verið með eftirlit með umferðinni við Varmárskóla á
morgnana. Nokkuð hefur borið á því að þeir sem em að aka börnunum í skól-
ann hafa ekki virt umferðarmerkingar og hefur lögreglan áminnt allmarga öku-
menn. Ef ökumenn fara eftir merkingum gengur umferðin betur og minni líkur
em á að slys verði.Munið endurskinsmerkin á börnin og Ijósin á reiðhjólin.
Lausaganga hunda
Of algengt er að sjá lausa hunda hér í bænum og em hundaeigendur minntir á
að slík lausaganga er bönnuð. Stærsti hluti hundaeigenda passar vel upp á sína
hunda en þeir sem ekki virða reglurnar skemma fyrir hinum. Komið hafa upp
dærni þar sem lausir hundar hafa veist að og jafnvel glefsað í börn. Nýlega var
hundur aflífaður sem beit barn í andlitið. Þeir sem ekki hafa tíma eða getu til að
passa upp á hunda sína ættu að láta það vera að halda hund.
Krotamr tcknir
Óvenju mikið var um veggjakrot s.l. vetur og vor. Lögreglan í Mosfellsbæ hefur
náð til flestra krotaranna og með aðstoð foreldra þeirra hefur þessi ósiður minnk-
að vemlega.
Ilarðvítug níðubrot
í 19 skipti hafa verið brotnar rúður í biðskýlinu móts við Kjarna. Ungu stúlkurn-
ar á myndinni við skýlið segja að best sé að hafa það rúðulaust.
Víðar hafa verið brotnar rúður bæði í eigu bæjarins og einkaaðila. Lögreglan
óskar sérstaklega eftir að rúðubrot og önnur skemmdarverk séu tilkynnt til lög-
reglustöðvarinnar, svo lögreglumenn hafi yfirsýn yfir öll slík mál.
o MosfcllsblaðlA