Skutull - 07.11.1956, Page 1
XXXIV. árgangur. Isafjöröur, 7. nóvember 1956
RáSherrar Alþýöu-
flokksins
Isfirðingor h.f. biðnr nm 600 Þús. kr.
Bæjarstjórn samþykkti á aukafundi 1. þ. m. að verða við
erindi ísfirðings h.f. um 600 þús. kr. bæjarábvrgð til þess
að gera félaginu kleift að halda út skipum sínum til ára-
móta. Talið var af forráðamönnum félagsins, að rekstur-
inn mundi stöðvast, ef slík ábyrgð fengist ekki.
Útgerðin og verðbólgan.
í greinargerð með ábyrgðar-
beiðni togarafélagsins segir fram-
kvæmdastjóri þess, Ásberg Sig-
urðsson, m. a. frá því, að s.l. ár
hafi reksturshalli félagsins numið
1,5 milljón kr. án allra afskrifta.
Um dagstyrkinn, sem togararnir
fá, segir framkvæmdastjórinn, að
bróðurparturinn af honum hverfi
jafnóðum í kauphækkanir, verð-
hækkanir á olíum og aðrar almenn-
ar hækkanir, en þessi styrkur hef-
ir verið frá s.l. áramótum kr.
5000.00 á hvern úthaldsdag togar-
anna, eða kr. 1,5 millj. á skip á
ári. Almennt muni afkoman hjá
togurunum á þessu ári þessvegna
verða stórum lakari en s.l. ár, og
auk dýrtíðarinnar komi þar til
aflatregða í sumar og haust.
í þessu sambandi skulu lesend-
ur minnast þess, hvaða flokkur
það er, sem aðalábyrgðina ber á
þessi flóðöldu dýrtíðarinnar, sem
nú er að færa alla útflutningsfram-
leiðslu í kaf. Sá flokkur heitir
Sjálfstæðisflokltur, og hefir, síðan
stjórnarskipti urðu í landinu, ham-
ast gegn viðleitni nýju stjórnar-
innar til þess að stöðva dýrtíðina.
„Sárt eru leikinn, Sámur fóstri“.
Hvernig hefir þá dýrtíðarvél
Ólafs Thórs, sem uppfundin er tii
þess að gera þá ríku ríkari, verk-
að á aðalatvinnufyrirtæki ísfirð-
inga, togarafélagið, sem fyrv. bæj-
arfulltrúi kommúnista fól umsjá
,,hrekklausra“ flokksmanna Ólafs
Thórs hér í bænum?
Jú, Ásberg Sigurðsson segir, í
áðurnefndri greinargerð, að hjá
ísfirðingi h.f. sé nú svo komið, að
ekki verði hægt að koma skipun-
um út í næstu veiðiferð, ef um-
beðin ábyrgð fáist ekki. Klössun-
arkostnaður á ísborgu á þessu ári
hafi numið 800 þúsund kr., yfir-
dráttur í Landsbankaum hafi
hækkað verulega, og sé sá yfir-
dráttur tryggður með væntanleg-
um styrkjum úr Framleiðslusjóði,
sem félagið megi þó ekki án vera
vegna daglegs reksturs skipanna.
Lausaskuldir hafi stórlega vaxið,
en þó megi telja víst að kröfuhaf-
ar þeirra muni ekki gera aðför að
félaginu a. m. k. til áramóta, ef
umbeðin bæjarábyrgð fáist.
Þannig er þá dýrtíðarvél „hins
mikla stjórnmálamanns“ Ólafs
Thórs búin að leika skjólstæðinga
hans hér í bæ, sem ekki kunnu sér
læti, þegar örlögin höguðu því svo,
að þeir fengu vald yfir tveimur
togurum. Þeir glíma nú við him-
inháa örðugleika verðbólgunnar,
og hafa jafnvel orðið að lúta svo
lágt, að leita ásjár núverandi bæj-
arstjórnarmeirihluta, sem annars
á ekki upp á pallborðið hjá þeim
drambsömu herrum. En flokksfor-
inginn mikli, Ól. Th. og fjölskylda
hans, liefir sitt á þurru í heild-
sölubraski og herinangi, og er að-
eins með í útgerð á einu sltipi til
inálamynda, en gerði áður út 7
skip.
Mænt á hjálp.
Hvert mæna þá hinir dyggu
þjónar Thórsaranna hér á hjálp í
neyð sinni? Þeir hafa þegar feng-
Ný
Skömmu eftir alþingiskosning-
arnar hófust viðræður um myndun
ríkisstjórnar rnilli Alþýðuflokks-
ins og Framsóknarflokksins ann-
arsvegar og Alþýðubandalagsins
hinsvegar.
Þær viðræður leiddu til þess að
hinn 24. júní s.l. tók ný ríkisstjórn,
undir forsæti Hermanns Jónasson-
ar, form. Framsóknarflokksins,
við völdum, en hún er skipuð full-
trúum fyrigjefndra flokka.
Ríkisstjórnin gerði með sér mál-
efnasamning, sem felur í sér
ákvæði og fyrirheit um víðtækar
umbætur í efnahagsmálum þjóðar-
innar og stórhuga atvinnulegar
ið fyrirgreiðslu bæjarstjómar-
meirihlutans, eins og um var beð-
ið, og í fyrrnefndri greinargerð
Ásbergs Sigurðssonar er það sagt
bemm orðum, að kröfuhafar lausa-
skulda ísfirðings h.f. mun a. m. k.
ekki gera aðför að félaginu til ára-
móta, því að þá sé búist við að rík-
isstjórnin skapi togaraútgerðinni
rekstursgrundvöll til frambúðar,
auk þess sem tekið hafi verið af
velvild og góðum skilningi þeirri
málaleitan togaraeigenda, að fá
hjá ríkisstjóminni 300 þús. kr. á
skip til að grynna á skuldasúp-
unni og aðrar 300 þús. kr. á skip
vegna klössunar skipanna.
Það er þá núverandi ríkisstjórn,
sem eftir fárra mánaða setu, á að
skapa útgerðinni „rekstursgrund-
völl til frambúðar“ og byggja upp
á skömmum tíma það, sem dýr-
tíðarvélin hans Ólafs Thórs hefir
í mörg undanfarin ár verið að mala
n'sður og leggja í rúst.
Síðan stjórnarskiptin urðu, hafa
þeir Ól. Th. og Bjarni Ben. keppst
við að telja þjóðinni trú um að
Framhald á 3. síðu.
ríkisstj
framkvæmdir og alhliða viðreisn
atvinnulífsins.
Er málefnasamningur ríkis-
stjórnarinnar í öllum aðalatriðum
byggður á kosningastefnuskrá um-
bótaflokkanna.
Hinni nýju ríkisstjórn hefir ver-
ið vel tekið af öllum almenningi
og nýtur hún trausts og stuðnings
vinnustéttanna til lands og sjávar,
eins og gleggst kom fram í sam-
bandi við verðstöðvunarlögin, sem
gefin voru út í sumar.
En íhaldið hefir algjörlega geng-
ið af göflunum við stjómarskiptin,
og hafa gengið svo langt í rógs-
skrifum sínum um ríkisstjórnina,
að það hefir ekki vílað fyrir sér,
Guðniundiir t. Guömundsson.
Gylfi Þ. Gislason.
órn
að gera íslendinga tortryggilega í
augum erlendra stórvelda, og það
í því máli, sem hlýtur að teljast
eitt helzta sjálfstæðismál hverrar
fullvalda þjóðar.
Svo mjög gremst nú leiðtogum
Sjálfstæðisflokksins, sem í sautján
ár hafa ráðið miklu um stjóm
landsins og sem ráðið hafa mestu
í fjármálum og atvinnumálum
þjóðarinnar, og setið þar yfir
hvers manns hlut af skipulögðu
pólitísku ofbeldi, að missa þá
valdaaðstöðu.
Hina nýju ríkisstjóm skipa, auk
Hermanns Jónassonar forsætisráð-
Framhald á 3. síðu.