Skutull

Árgangur

Skutull - 13.01.1968, Síða 6

Skutull - 13.01.1968, Síða 6
6 SKUTULL Þurrafhlöður Hellesens eru í notkun um allan heim. Til vinstri er svertingjakona hjá kaupmanni, sem selur Hellesens-rafhlöður í Senegal í Vestur-Afríku. — Til hægri er norsk Sama-stúlka í Tromsö-héraði — meira en 300 km. norðan heimsskautsbaugs — að skipta um rafhlöður í transistorviðtækinu sínu. Á þessu ári eru 80 ár, síðan daninn Wilhelm Hellesen fann upp þurrafhlöðuna eftir marg ra ára tilraunir. í dag kemur mönnum víða um heim nafn- ið Hellesen í hug, þegar nefndar eru þurrafhlöður. Þótt smátt væri byrjað 1887, hefir starfsemin verið í sí- felldum vexti, og í dag eru starfsmenn verksmiðjanna tveggja í Danmörku um 1000 talsins. A/S Hellesens hefir fylgzt mjög náið með tækniþróun- inni og framkvæmt hagræð- ingu jafnóðum og þurft hefir. Þannig hefir t.d. verið unnt að fækka rafhlöðutegundum að mun. Fyrir tiltölulega fá- um árum framleiddi Hellesens um 1000 mismunandi rafhlöðu gerðir, en þeim hefir verið fækkað í innan við 100 al- þjóðlega viðurkenndar gerðir, sem fullnægja rafhlöðuþörfum af öllu tagi. Nýtízkulegar verksmiðjur fyrirtækisins, sem eru skipu- lagðar og teiknaðar af tækni- fræðingum þess, geta fram- leitt alls um 200 milljónir raf hlaðna á ári. Hellesens selur framleiðslu sína í um 100 löndum og mæt ir vaxandi samkeppni fyrst og fremst með ströngum kröfum til mikilla gæða framleiðsl- unnar. Öll hráefni eru efna- greind nákvæmlega í rann- sóknarstofum fyrirtækisins, svo að samsetning þeirra sé samkvæmt settum reglum, þegar framleiðsla úr þeim er hafin. Gæðamat fer fram á hverju framleiðslustigi, svo að einungis rafhlöður, sem fullnægja þeim ströngu kröf- um, sem Hellesens hefir jafn- an gert til framleiðslu sinnar, eru settar á markað. Uppfinning W. Hellesens hef ir í vaxandi mæli orðið ómiss andi orkulind í daglegu lífi við starf og leik — í transi- storviðtækjum, segulbands- tækjum, leikföngum, kvik- myndatökuvélum, rakvélum o.s.frv. En þurrafhlaðan er einnig mikilvæg í ýmsum sér- hæfðum tækjum, t.d. lækn- ingatækjum, björgunarvest- um, upptökutækjum, herbún- aði o.þ.h. Framtíðin býður vafalaust upp á marga og merka mögu- leika fyrir þessa litlu, færan- legu rafstöð. Hjnskapur Þann 15. nóv. sl. voru gefin saman í hjónaband ungfrú María Sigríður Guðröðsdóttir og Halldór Hafliðason, bóndi í Ögri í Ögurhreppi. Þann 18. nóv. sl. voru gefin saman í hjónaband ungfrú Guðmunda Margrét Brynjólfs- dóttir og Hilmar Friðrik Þórðarson, Engjaveg 9, ísa- firði. Þann 17. des. sl. voru gefin saman í hjónaband ungfrú Sóley Gestsdóttir og Baldur Kjartansson, Njálsgötu 50, Reykjavík. Þann 24. des. sl. voru gefin saman í hjónaband brúðhjón- in: Kristjana Jóhannesdóttir og Hréiðar Einarsson, sjómað Til solu neðsta hæðin í húsinu Túngata 21 á ísafirði. Bæring G. Jónsson. ur, Hnífsdal; ungfrú Guðrún Ásgeirsdóttir og Þórir Axels- son sjómaður, Silfurgötu 11, Isafirði. Þann 26. des. sl. voru gefin saman í hjónaband ungfrú Guðný Helga Kristjánsdóttir og Svavar C. Kristmundsson iðnnemi, Grundargötu 6, Isa- firði. Þann 30. des. sl. voru gefin saman í hjónaband brúðhjónin ungfrú Jóhanna Unnur Reim- arsdóttir og Jón Elís Vagns- son útgerðarmaður, Hnífsdal; ungfrú Ásgerður H. Annas- dóttir og Ómar Guðbrandur Ellertsson, Isafirði. Þann 31. des. sl. voru gefin saman í hjónaband brúðhjón- in ungfrú Soffía Vigdís Sig- ríður Sævaldsdóttir og Gunn- ar Þórarinsson sjómaður, Hnífsdal; ungfrú Friðgerður Hallgrímsdóttir og Magnús Amórsson verkamaður, Sund- stræti 27, Isafirði. Sóknarpresturinn, séra Sig- urður Kristjánsson, gaf öll brúðhjónin saman. Tilboö óskast í mjólkurflutninga fyrir Mjólkursamlag Is- firðinga. Flutningar þeir, sem um er að ræða em: Flutningur mjólkur frá bændum í Hólshreppi, Eyrarhreppi og Súðavíkurhreppi til mjólkur- stöðvarinnar og pakkaðrar mjólkur þaðan til Súðavíkur, Hnífsdals og Bolungarvíkur, þrjár ferðir í viku eftir 1. marz n.k. Gengið er út frá því að mjólkin verði komin til stöðvar kl. 1 e.h. Flutningur mjólkur frá bændum vestan Breiðadalsheiðar og pakkaðrar mjólkur frá stöðinni til Flateyrar, þrjár ferðir í viku eftir að vegur opnast. Mjólkin verði komin til stöðvar um kl. 9 árdegis. Flutningur mjólkur frá bændum í Súganda- firði til stöðvarinnar og pakkaðrar mjólkur frá henni til Suðureyrar, þrjáf ferðir í viku eftir að vegur opnast. Nánari upplýsingar um tilhögun ferða og mjólkurmagn geta þeir, sem hugsa sér að gera tilboð, fengið á skrifstofu Kaupfélags Isfirðinga. Gera má tilboð í einstaka liði þessara flutn- inga eða þá alla sameiginlega. Tilboðum sé skilað á skrifstofu K. 1. fyrir 1. febrúar n.k. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða 'hafna öllum. Stjórn Mjólkursamlags ísfirðinga. Þorrablót Þar sem Átthagaíélag Djúpmanna hefur breytt sínu áhrifasvæði og tekið Álftfirðinga með, svo og af öðrum ástæðum, höfum við ákveðið, að Þorra- blótið verði nú og framvegis, aðeins á vegum Átthagafélags Djúpmanna og er fólk, sem telur sig Súðvíkinga löglegir þátttakendur þar í. Djúpmannamótið verður auglýst síðar. F.h. skemmtinefndar Átthagamóts Súðvíkinga, Símon Helgason. Tilkpning Frestur til að skila skattframtölum til skrifstofu minnar á ísafirði og til umboðsmanna í hrepp- unum í Vestfjarðaumdæmi rennur út 31. þ.m. Þeir sem hafa atvinnurekstur með höndum þurfa þó eigi að hafa skilað skattaframtölum og reksturs- reikningum fyrr en fyrir febrúarlok. Frekari framtalsfrestur verður alls ekki veittur nema alveg sérstaklega standi á, enda hefur fjár- málaráðuneytið lagt svo fyrir að hraða skuli fram- lagningu skattskráa. Þeir sem nauðsynlega þurfa á framtalsfresti að halda ,verða að sækja bréf- lega um frest til skattstjóra eða umboðsmanns hans, og fá samþykki fyrir frestinum. Lögð er áherzla á það, að fólk geri sjálft vandlega skattframtöl sín og skili þeim fullfrágengnum á réttum tíma. Þeir sem á aðstoð þurfa að halda verða að leggja fram allar nauðsynlegar upplýsing- ar, svo sem um upphæð tekna og skulda og reikn- inga vegna viðlialdskostnaðar húsa, enda ber öllum að leggja fram í Iaunamiðaformi hverjum sá kostn aður hafi verið greiddur. Vakin er athygli á ákvæðum laga nr. 90/1965 um viðurlög, allt að 25% hækkun, hafi skattframtal eigi borist á réttum tíma. Dagana 30. og 31. þ.m. verður skattstofan á fsa- firði opin auk venjulegs skrifstofutíma kl. 5—10 e.h. Framtalsaðstoð verður veitt þeim, sem þess þurfa með til 31. þ.m. Isafirði, 5. janúar 1968. SKATTSTJÓRINN í VESTFJARÐAUMDÆMI.

x

Skutull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.