Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Apr 1991, Page 1
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ
f
FRETm
í REYKJAVÍK
Apríl 1991
OG NÁGRENNI
BRÉF
Síldarball eða árgangaendurfundir?
Enn og aftur steðjum
við á SÍLDARBALL í
Félagsheimili Seltjarn-
arness nú þann 27.
apríl n.k. Fyrir dansi
leikur hljómsveitin
Sambandið sem
hefur getið sér gott
orð á dansleikjum
víða, og menn muna
frá Stapa sl. haust.
Miðaverðið er kr.
1.500,- sem er í anda
þjóðarsáttar. Veitingar
verða síldarréttir eins
og verið hefur.
Það færist sífellt í vöxt
að heilu árgangarnir
taki sig saman og noti
síldarballið sem upp-
hitun fyrir fyrirhugað-
ar ferðir til Siglufjarðar
í tilefni alls konar
afmæla sem þessi og
hinn árgangurinn á.
Þessir árgangaendur-
fundir á Siglufirði hafa
færst svo í vöxt að
heita má að Hóll sé
upppantaður á hverju
ári strax að vori.
Fréttabréfið vill hvetja
alla þá árganga sem
eru að hittast og ætla
að hittast að láta vita
til að hægt sé að koma
því í vorblaðið.
Einnig má minna
forráðamenn árganga
á að gera nú skoðana-
könnun á Hóli eða
Höfninni hvort allir í
viðkomandi árgangi
eru í Siglfirðingafélag-
inu því þá er auðveld-
ara að ná til allra
gegnum blaðið.
Fréttabréfið vill að
sjálfsögðu hvetja alla
Siglfirðinga og velunn-
ara þeirra að taka nú
tangógallann og
dreifbýlis-
diskóblöðrurnar út úr
skáp og skella sér á
enn eitt villt, tryllt og
taumlaust síldarball
og geta geymt í
minningunni gömul
kynni sem gleymast ei.
Félagsgjald
endurvakið
3. grein laga Sigl-
firðingafélagsins í
Reykjavík og ná-
grenni, sem stofnað
var 14. okt. 1961
hljóðar svo:
„Félagar geta allir
Siglfirðingar og
aðrir velunnarar
Siglufjarðar orðið,
sem búsettir eru í
Reykjavík og ná-
grenni. Árstillag
hvers félaga skal
vera kr. 50.00,-."
Þetta árstillag mun
ekki hafa verið
innheimt.