Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - sept 1997, Qupperneq 4
Ólöf Kristjánsdóttir, veislustjóri Síldarcevintýrisins 1997 skrifar:
Síldarævintýriö
á Siglufirði 1997
Um verslunar-
mannahelgina var
í sjöunda sinn
haldið síldarævintýri á
Siglufirði. Að þessu sinni
voru það Ferðamálasam-
tök Siglufjarðar ásamt
síldarsaltendum sem sáu
um framkvæmdina og
buðu til fjörlegrar hátíðar í
anda gömlu góðu síldarár-
anna. Undirbúningstími
var stuttur en við þekkjum
það Siglfirðingar hvernig á
að láta hendur standa fram
úr ermum. Þegar Jóna
Hilmars hringdi í mig og
bað mig að skrifa smágrein
í Siglfirðingablaðið og
segja frá því hvernig
Síldarævintýrið hefði
gengið í ár, var svarið hjá
mér stutt. Ævintýrið gekk
vel og nokkuð ljóst að æv-
intýrin gerast enn. Veð-
urguðirnir hefðu mátt vera
okkur hliðhollari, við vor-
um með sannkallað „sýnis-
horna“-veður þessa helgi
og lognið okkar hér heima
var ekki til staðar.
Við byrjuðum ævintýrið
með sannkallaðri menn-
ingarveislu. Siglfirðingur-
inn Ríkey Ingimundar-
dóttir heimsótti okkur
með mjög vandaða og fjöl-
breytta myndlistarsýningu.
Við opnunina sungu
systkinin Margrét Dóra
Arnadóttir og Björn H.
Guðmundsson (börn Jós-
efínu og Dóra á Hóli). Vil
ég nota þetta tækifæri og
þakka þeim systkinum fyr-
ir sönginn sem var frábær.
Síðan var byrjað að hita
upp fyrir hinar fjölmörgu
dansæfingar helgarinnar
og eins gott að vera vel
skóaður fýrir allt þetta
hopp og húllumhæ. Varð-
eldur var tendraður á
föstudagskvöld á Dagslóð,
þar voru sungnir síld-
arslagarar og slegið upp
bryggjuballi. Þar komu
líka siglfirskar konur og
dönsuðu línudans við
mikinn fögnuð viðstaddra
sem síðan dönsuðu síldar-
valda, línudans og fleiri
dansa við undirleik Harm-
onikusveitar Siglufjarðar.
Á laugardeginum var boð-
ið upp á sannkallaða tón-
listarveislu. Þar söng
Kvennakórinn okkar und-
ir styrkri stjórn Elíasar
Þorvaldssonar og komu
þær öllum viðstöddum í
sólskinsskap. Við fengum í
heimsókn félaga úr Leikfé-
lagi Ólafs^arðar sem því
miður urðu frá að hverfa
vegna rigningar en þá
stigu á stokk Vorboðar,
blandaður kór eldri borg-
ara. Þau slógu svo sannar-
4