Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Sep 1997, Page 6

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Sep 1997, Page 6
Örnefnaskrá í fjallahring Sigluíjaróar - eftir Gunnlaug Sigurðsson fyrrverandi bæjarfulltrúa á Siglufirði Siglufjörður er vestastur af þremur fjörðum er skerast inn í landið milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar. Lengd hans mun vera um 8-9 km. Nyrst að vestan við fjarðar- mynnið er fjall sem Strákar nefnist (fræðimenn sumir kalla fjallið Stróka) og er 675 m hátt og eru að norð-austan snarbrattir blá- grýtisklettar, frá toppi að sjó nið- ur. Suðaustan í toppi fjallsins er allstór skál grasigróin, sem nefnist Ófæraskál. Sunnan við skál þessa eru all- stór klettastykki er nefnast Ófæra- stykki. Niður undan því miðju er Miðstrandagil. Sunnan við Stykki þessi er önnur grösug skál er nefn- ist Selskál. Niður úr henni gengur Selgil til sjávar. Sunnan við það niður undir sjó eru gamlar seltóft- ir frá Hvanneyri. Suður og upp úr Selskál er Hvanneyrarhyrna. Suð- austanvert í Hvanneyrarhyrnu er alldjúpt skarð er nefnist Gróu- skarð, en hnjúkurinn austan við skarðið Gróuskarðshnjúkur. Þá tekur við allstór dalur er nefnist Hvanneyrardalur, nú oftast kall- aður Hvanneyrarskál eða Skál. Voru þar allmiklar slægjur frá Hvanneyri til forna. Norður úr dal þessum, vestan til í Hvanneyr- arhyrnu og vestan Stráka- hyrnu, er oft gengið til Engi- dals, og er það kallað „að fara Gjár“. Nokkrar lækjarupp- sprettur eru í dalnum er mynda Hvanneyrará. Dalsbrúnin nefn- ist Hvanneyrar- brún. Sunnan við dal- inn er Hafnarhyrna, all- mikið fjall, og suðvestan í fjallatoppnum, neðan við eggina, eru dældir er nefnast Fífla- dalir. Niður undan þeim nyrsta eru klettasnasir sem heita Gimbra- klettar. Ur syðsta Gimbrakletti er talið að verið hafi áður fyrr landa- merkjalína milli Hvanneyrar og Hafnar og þá beint til sjávar. Hefur þá suðurhluti Siglufjarðareyrar ver- ið í Hafnarlandi. Nú er merkja- línan úr klettinum í Búðar- hólanef, eða bakkaendann sunnan við Suðurgötu 10 og þaðan í stefnu á Skútuvarir. Sunnan Gimbrakletta er Háiseti og Breiðimelur. Þá taka við tvö djúp gil, er ganga frá fjallsbrún að fjalls- rótum. Nefnast þau Strengsgil, en hrygg- urinn milli þeirra Strengur. Vestan við fjall- seggina eru Leir- dalirnir. Sunnan við Streng er Blýkerling- armelur, en sunnan hans er klettaskál er nefnist Jör- undarskál eða Nautaskál. f fjall- segginni upp úr skálinni er lítið vik er nefnist Steindyr. Er þar miðaft- ansmerki frá Höfn. Þarna vestan við fjallseggina eru Lambadalir. Neðan við Jörundarskál eru Nauta- Myndin sýnir Hringsjá á Alfhóli skálahólar, þar er nú skíðastökk- pallur, nefndur Stóri-boli. Nefnist allt þetta einu nafni Hafnarfjall. Sunnan við Hafnarfjall er Dala- leiðin, sem liggur upp Skjöld, en Skjöldur er milli tveggja djúpra gilja. Lækirnir úr giljunum renna saman við Skjöld og nefnast Snóksá en hún er landamerki milli Hafnar og Skarðsdals. Ofan við Skjöld eru Skjaldarbringur. Liggur vegurinn eftir þeim til Úlfsdala. Rétt við veginn, skammt frá Dalaskarði, er Styrbjörnsdys. Gamlar sagnir telja Styrbjörn þann er dysin er kennd við hafa verið frá Dölum. Hafi hann hnuplað byrði sinni af matvælum úr útihúsi Hafnarbónda. Veitti bóndi honum eftirför og drap hann og urðaði þar sem nú er dysin. Næst sunnan við Dalaleiðina er fjallið Snókur, allmikill klettóttur tindur, og getur oft verið illur yfir- ferðar að framan, en sléttur ofan, og er þaðan fagurt útsýni. Framan í Snók, á milli klettabeltanna, eru götuslóðar. Nefnist sá neðsti Ausu- gata. Liggur hún yfir bolla í fjall- inu, er Ausa nefnist. Næst er Hvít- bergsskeiðin og liggur yfir Hvít- bergsgil, neðan undir Hvítbergi, sem er klettur við enda gilsins. Op er að sjá í klettinn og verpa þar hrafnar ár hvert. Efst er Breiðaskeið en vestar og ofar er allhátt fjall er nefnist Efrafjall. Er það fjallhryggur norðan af Illveðurshnjúk. Nær hann norður undir Dalaskarð. 6 7

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.