Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - sept 1997, Qupperneq 9

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - sept 1997, Qupperneq 9
er Fagrakinn. Norðan við hana er Hinrikshnjúkur. Inn á bak við hann gengur Kálfsdalur suðaustur í fjallgarðinn, úr honum eru hest- færar götur í Nesdal. I Kálfsdal er Kálfsdalsvatn. Norðvestan í Hin- rikshnjúk er Kálfseggin vestan Kálfsdals, en austan hans fjallsegg- in norður að Núpaskálum sem eru um miðja fjallseggina, norður á Núpinn. Niður undan Kálfsdal eru Kambalágar og nyrst í þeim heitir Kúalaut. Neðan við Kambalágar er Selvíkin. Þar á dálitlum höfða niðri við sjóinn er Selvíkurvitinn, innsiglingarviti. Á bakkanum skammt frá vitanum eru seltóftir frá Staðarhóli. Þar norður af eru Nesskriður og nálægt þeim miðj- um heitir Helluhryggur, eru þar landamerki milli Staðarhóls og Sigluness. Nokkru norðar er Vindbelgur, lítill vogur inn með Klettsnefi, og þar norðar er Geitanes. Upp af Geitanesi, norðarlega á Núpnum, er dálítil hæð er nefnist Dagmálshyrna. Nesnúpur er 581 m á hæð. Jörðin Siglunes hefur oft verið setin af mörgum ábúendum í senn og nú fyrir skömmu var reist ný- býli á Reyðará. Löngu áður hafði þar verið búið. Við Siglunestá eru grynningar og steinótt, suðvestur af tánni eru smáklettar við fjöruna er kallast Slysfarir. Fram af Tánni er Hellu- steinn og Hellan, grynningar norðvestur af tánni. Svarthöfða- steinn er norðvestur af Nestá. Austur með landinu eru þessi ör- nefni: Norðari-Krókur, þá Dýavík- ur, þá Fúluvík, þá Reyðarárland austur að Héðinsfjarðar-Hesti, en svo heitir nyrsta fjallið vestan Héð- insfjarðar. Áþessari mynd má sjá hluta af fjallahring SiglujjarÖar 9

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.