Vesturland - 15.12.1933, Blaðsíða 1
VESTURLANI D
X. árgangur. ísafjörður, 15. des. 1933. 43—44. tölublað.
Línurnar skýrast,
Framsóknarflokkurinn klofnar. Jón í Stóradal og
Hannes reknir úr flokknum s. 1. laugardagskveld.
Tryggvi Þórhallsson og Halldór Stefánsson segja sig
úr flokknum á sunnudaginn. Fleiri úrsagnir sagðar
væntanlegar.
Von á nýrri flokksmyndun.
Síðastl. laugardagskvöld, rétt
fyrir þingslit, sem urðu eigi íyr en
fyrri hluta nætur, hélt þingflokkur
Framsóknar fund, til þess að ákveða
hvaða hegningu þeir Jón Jónsson
í Stóradal og Hannes Jónsson á
Hvammstanga skyldu taka út fyrir
þá þvermóðsku, er þeir höfðu sýnt
á aukaþinginu gagnvart blíðlátum
Alþýðuflokksins og Framsóknar
til sameiginlegrar stjórnarmynd-
unar, sem verða átti á þann hátt,
eins og Héðinn Valdemarsson lýsti
yfir i Alþýðublaðinu, að Framsókn
tæki upp nýja stjórnarstefnu, sem
Alþýðuflokkurinn gæti sætt sig við.
Hafði hegning þeirra frænda,
Jóns og Hannesar, oft verið rædd
áður í flokknum og voru mjög
skiftar skoðanir innan þingflokks-
ins um það hver hún skyldi vera,
því þeir höfðu I engu brotið í bág
við samþyktar reglur þingflokksins.
En þeir, sem ákafast létu í sam-
búðina við „sósa“, máttu eigi
heyra annað nefnt, en að Jón og
Hannes yrðu reknir. Mátti og raun-
ar alt af við slíku búast, því valda-
sjúkir menn standast eigi annað
reiðara, en að brugðið sé fæti fyrir
valdaáform þeirra, hversu óhrein
sem þau kunna að vera.
Úrslitin á fundi þingflokksins
urðu og þau, að samþykt var að
reka Jón og Hannes úr þingflokkn-
um með 6 atkv. gegn 9. 3 sátu
hjá. Þar sem við atkv.gr. þessa
kom eigi fram hreinn meirihluti
var leitað á ný um afstöðu þeirra,
sem hjá sátu, og skýrskotaði þá
einn þeirra þremenninganna(Þorst.
Briem ráðh. ?) til þess, að hann
hefði i miðstjórn flokksins greitt
atkv. með brottrekstri Jóns og
Hannesar og var því talinn með
meirihlutanum. Hinir, er hjá sátu,
voru Jörundur og Bernharð.
Móti brottrekstrinum greiddu
atkvæði: Ásgeir, Bj. Ásg.s., Hall-
dór Stefánss., Hannes, Jón í Stóra-
dal og Tryggvi Þórhallsson.
En með brottrekstrinum greiddu
þessir atkvæði: Jónas, Bergur, Bj.
Kristj.s., Einar, Eysteinn, Ingólfur,
Ingvar, Páll Herm.s. og Þorleifur.
Við brottreksturinn var þeim
Hannesi og Jóni einkum gefið að
sök, að þeir hefðu neitað að styðja
stjórnarmyndun Sigurðar Kristins-
sonar. En þeir hafa nú gefið út
yfirlýsingu um afstöðu sína og
segja að þetta sé rangt. Þeirhafi
aldrei neitað að styðja væntanl.
stiórnarmyndun Sigurðar, heldur
hafi þeir neitað að ganga að skil-
yrðum Alþýðuflokksins, eins og
þau láu fyrir.
Strax daginn eftir að þessi tfð-
indi gerðust sögðu þeir Tryggvi
Þórhallsson og Halldór Stefánsson
sig úr Framsóknarflokknum. Eru
miklar líkur sagðar til þess, að
þar muni fleiri á eftir fara, þótt
verða kunni á bið nokkur.
Er nú unnið að nýrri flokks-
myndun af hendi þeirra fráklofnu
og búist við, að þeir myndi nýjan
flokk, sem mun eiga að heita
Bændaflokkur.
í raun og veru eru þessir at-
burðir ekki jafn mikil nýlunda og
látið er. Að því hlaut að reka fyr
eða síðar, að Framsókn klofnaði,
því bersýnilegt var. að nokkur hluti
tlokksins fylgdi svo trúlega stefnu
sósíalista, að þar skildi lítið annað
en nafnið. Má gera ráð fyrir, að
sá hluti flokksins komist nú heim
til hinna þráðu fððurhúsa.
Er það og heillavænlegast áð
linurnar skýrist sem bezt. Annars
vegar séu borgaralegir flokkar,
sem vinni að forsjálegri fjárstjórn
og umbótum á borgaralegum
grundvelli, en hins vegar öfga og
eyðslu-flokkar, sem vilja bylta öllu
og breyta i einu vetfangi og lofa
gulli og grænum skógum, meðan
þeir eru að fá alþýðu manna til
þess að lyfta sér I valdastólinn.
Þjóðin er búin að fá nokkra
reynslu af starfi og stefnu flokk-
anna og á 1 ljósi þeirrar reynslu
að vera vorkunarlaust að velja á
milli þeirra.
Það verkefnið sem mest kallar
að og óumflýjanlega verðurað fást
bætur á, er hóflegri og skynsam-
Iegri fjárstjórn og viðreisn atvinnu-
| veganna, svo hægt sé að tryggja
öllu vinnufæru fólki sæmilega at-
vinnu og efla á þann hátt hagsæld
þjóðarinnar. 1 augum allra alvar-
lega hugsandi manna er þetta
verkeíni svo mikilvægt, að þjóðar-
heill krefst þess, að flokkaþrasið
þoki til hliðar meðan úr þvi er
leyst.
Mjólkurbúsmál Önflrðinga.
Eins og áður hefir verið skýrt
frá I „VI.“ athugaði Jónas Kristj-
ánsson mjólkurbústjóri á Akur-
eyri skilyrðin fyrir væntanlegu
mjólkurbúi Önfirðinga á Flateyri.
Leizt Jónasi vænlega á málið og
hvatti til framkvætnda. Er ráðgert
að framkvæmdir hefjist með vor-
inu. Er ætlunin, að byrja I frekar
smáum stýl, en koma þó upp
fullkominni mjólkurvinslustöð á
Flateyri.