Vesturland - 11.01.1949, Side 1
Bæjarstjórn telur félagsmálaráðuneytið
skuldbundið til þess að veita bænum
stuðning við framkvæmd áætlunar um
útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis.
Samþykkir að hefja byggingu 12
nýrra íbúða. Þrír bæjarfulitrúar
kratanna sátu hjá.
Á bæjarstjórnarfundi, sem haldinn var s.l. miðvikudag,
var samþykkt svohljóðandi tillaga frá bæjarráði:
„Bæjarráð leggur til að haldið verði áfram á þessu
ári framkvæmd áætlunar þeirrar, sem bæjarstjórn
gerði sumarið 1946, um útrýmingu heilsuspillandi hús-
næðis í bænum og hlotið hefur samþykki félagsmála-
ráðuneytisins. Verði í því skyni hafin bygging 12
nýrra íbúða af svipaðri gerð og þær, sem bærinn hef-
ur hyggt við Fjarðarstræti og nú er að verða lokið.“
Með þessari tillögu greiddu atkvæði allir hæj arfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins, þeir Sigurður Bjarnason, Sigurður Halldórsson,
Marzelíus Bernharðsson og Matthías Bjarnason. Ennfremur full-
trúi sósíalisla, Haraldur Guðmundsson og einn bæjarfulltrúi Al-
þýðuflokksins, Grímur Kristgeirsson. Þrír af bæjarfulltrúum
kratanna, þeir Birgir Finnsson, Sverrir Guðnmndsson og Har-
aldur Jónsson sátu hjá. Var tillagan þannig samþykkt með 6
samhljóða atkvæðum að viðhöfðu nafnakalli.
Útrýming heilsuspillandi
húsnæðis.
Eins og kunnugt er hófst nú-
verandi meirihluti bæjarstjórn
ar handa um það, þegar er Al-
þingi hafði vorið 1946 sam-
þykkt lög um opinbera aðstoð
við íbúðarhúsa, byggingar í
kaupstöðum og kauptúnum, að
undirbúa framkvæmdir sam-
kvæmt lögunum. Var i því
skyni safnað skýrslum um
heilsuspillandi húsnæði í bæn-
um. Hafði heilbrigðisnefnd for-
ystu um þá rannsókn. Leiddi
hún i ljós að 26 íbúðir i bænum
voru heilsuspillandi og má þó
gera ráð fyrir að einhverjar
hafi ekki verið athugaðar. Þá
höfðu a.m.k. 6 fjölskyldur orð-
ið húsnæðislausar við hinn
hörmulega húsbruna á Felli er
varð þá um vorið.
Áætlun um byggingu
32 íbúða.
Með tilliti til þessarar rann-
sóknar gerði bæjarstjórn áætl-
un um byggingu 32 nýrra í-
búða og hlaut hún staðfestingu
f élagsmálaráðuneytisins með
því að ráðuneytið leyfði bæn-
um að hefja byggingu 12 íbúða
við Fjarðarstræti. Hlýtur að
verða litið svo á að ráðuneytið
hafi samþykkt áætlun bæjai’-
stj órnai'innar urn byggingai’-
framkvæmdir samkvæmt lög-
unum þar sem það leyfði henni
að hefja framkvæmd hennar
og gerði engar athugasemdir
við hana né rannsókn þá, sem
fram fór á heilsuspillandi hús-
næði.
Bæjarstjórn er þessvegna í
síixum fulla i'étti nú, er fyi'sta
hluta áætlunar hennar, hinum
12 íbúðum við Fjarðarstræti,
er að verða lokið, þegar hún
samþykkir að halda franx-
kvæmd hennar áfram enda
þótt Alþingi liafi vorið 1948
frestað þriðja kafla umræddra
laga. Engin sanngirni væri í
því að svipta Isafjarðarkaup-
stað, sem er eina bæjarfélagið,
sem lögin hefur framkvæmt,
stuðningi þeirra eftir að félags-
málaráðuneytið hefur sam-
þykkt framkvæmdaáætlun
samkvæmt þeim. Verður því
að vænta þess að ráðuneytið,
sem forsætisráðherra, Stefán
Jóhann Stel’ánsson veitir for-
stöðu, standi við skuldbinding-
ar sínar gagnvart Isafjarðarbæ
í þessum efnum, þannig að bæj
arstjórn geti haldið áfram á-
ætlun sinni um útrýmingu
heilsuspillandi húsnæðis í hæn-
um með því að hefja byggingu
12 nýrra íbúða eins og hinna
glæsilegu íbúða, sem er að
verða lokið við Fjarðarstræti.
Hafa þær þó tafist nokkuð
vegna synj unar á innflutnings-
leyfum fyrir gólfdúkum,
hreinlætistækjum o.fl.
Þáttur kratanna í bæjar-
stjórn.
Ekki gátu bæjarfulltrúar
kratanna, þeir Birgir og Sverr-
ir setið af sér tækifæri til þess
að verða sér til skammar í
sambandi við umræður uni til-
lögu bæjarráðs um að halda
byggingarframkvæmdum á-
fram, enda þótt einn flokks-
manna þeirra, Grímur Krist-
geirsson flytti hana. Komst
Birgir m.a. þannig að orði að
þessi tillaga væri flutt til þess
„að koma forsætisráðherra í
hobba.“
Sverrir sagði: „Ég er hissa á,
Framhald á 3. síðu.
Þeir vinna eið.
Truman Bandarikj af orseti
vinnur embættiseið sinn 20.
jan. n.k., og tekur þar með
formlega við æðsta embætti
Bandaríkjanna. Mikil hátíða-
höld eru fyrirhuguð í sam-
bandi við embættistökuna.
Hefjast þau með því, að
Alben W. Barkley varaforseti
ekur til bústaðar forsetans og
síðan aka þeir saman til Capi-
tol Hill. Er áætlað að 1 milj.
manna muni hylla þá á Penn-
sylvanía Avenue. Skönnnu fyr-
ir hádegi vinna þeir embættis-
eiða sína á palli, sem reistur
hefur verið fyrir framan þing-
höllina, að viðstöddum æðstu
embættismönnum og sendi-
herrum erlendra ríkja.
Siðan mun Truman ávarpa
þjóð sína og verður ræðu hans
útvtrpað um allt landið.
Albeu W. Barkley
varaforseti Bandaríkjanna.