Vesturland - 29.09.1951, Page 7
VESTURLAND
7
UTSVARS-
gjaldendur athugi, að þeim gefst hér með kostur á að greiða í næstu
viku, og í síðasta lagi fyrir næstu mánaðarmót, það sem á kann að
vanta, að þeir hafi staðið í skilum á réttum gjalddögum. Geri þeir það
ekki er allt útsvar þeirra fallið í eindaga lögum samkvæmt.
Kaupgreiðendur athugi, að þeim er skylt að greiða útsvór starfs-
manna sinna á réttum gjalddögum, og eins þótt vanrækt hafi verið
að taka útsvarið af kaupi, vinnulaunum eða aflahlut.
Kaupgreiðendur eru hér með aðvaraðir um að greiða bæjargjaldkera
tafarlaust öll útsvör, sem þeir hafa innheimt hjá verkamönnum, sjó-
mönnum og öðrum starfsmönnum.
Bæjargjaldkeri tekur við útsvarsgreiðslum.
\
lsafirði, 15. september 1951,
BÆJABSTJÓRI.
TILKYNNING
um olíukyndingartæki og notkun þeirra.
Bæjarbúar athugi, að óheimilt er að setja upp olíukyndingartæki eða
að . taka ný tæki í notkun nema með leyfi Björns Guðmundssonar,
slökkviliðsstjóra.
ísafirði, 20. september 1951,
BÆJARSTJÓRI.
Nr. 36/1951.
TILKYNNING
Fjárhagsráð liefur ákveðið nýtt hámarksverð á smjörlíki sem liér
segir:
Heildsöluverð án söluskatts ltr. 4,49 kr. 10,31
Heildsöluverð með söluskatti — 4,80 — 10,62
Smásöluverð án söluskatts — 5,49 — 11,37
Smásöluverð með söluskatti — 5,60 — 11,60
Reykjavík, 16. sept. 1951,
VERÐL AGSSKRIF STOF AN.
Tilkynnjng
frá Bókasafni ísafjarðar.
Lestrarsalur Bókasafns ísafjarðar verður opnaður mánudaginn 24.
Lestrarsalur Bókasafns Isafjarðar verður opnaður mánudaginn 22.
þ.m. kl. 1 e.h„ og verður eftirleiðis opinn sem hér segir:
Mánudaga kl. 1—3 og 8—10 e.h.
Þriðjudaga kl. 1—3 og 8—10 e.h.
Miðvikudaga kl. 1—3 e.h.
Fimmtudaga kl. 4—7 e.h.
Föstudaga kl. 1—3 og 8—10 e.h.
Laugardaga kl. 1—3 og 4—7 e.h.
Sunnudaga kl. 1—3 e.h.
Salurinn er öllum opinn, sem náð hafa 12 ára aldri og hlýða settum
reglum. Börn yngri en 14 ára fá þó ekki aðgang á kvöldin og; á öðrum
tímum ganga fullorðnir fyrir.
Bannað er að hafa með sér á lestrarsal sundskýlur, handklæði eða
annað lauslegt. *
BÓKAVÖRÐUR.
Nr. 34/1951.
Tilkynning
Fjárhagsráð hefir ákveðið eftirfarandi hámarksverð á brauðum
í smásölu:
Án söluskatts Með söluskatti
Franskbrauð 500 gr. kr. 2.62 kr. 2.70
Heilhveitibrauð 500 gr. — 2.62 — 2.70
Vínarbrauð pr. stk. — 0.73 — 0.75
Kringlur pr. kg — 7.66 — 7.90
Tvíbökur pr. kg. — 11.64 — 12.00
Séu brauð bökuð með annari þyngd en að ofan greinir, skulu þau
verðlögð í hlutfalli við ofangreint verð.
Á þeim stöðum, sem brauðgerðir eru ekki starfandi, má bæta sann-
anlegum flutningskostnaði við hámarksverðið.
Reykjavík, 8. ágúst 1951.
Verðlagsskrifstofan.
Gagnfræðaskólinn
á ísafirði
tekur til starfa I. okt. n.k.
Unglingar í bænum eru skólaskyldir í I. og II. bekk.
Innritun skólaskyldra nemenda fer fram fimmtudaginn
20. september kl. 4 síðdegis.
Utanbæjarnemendur ættu að senda umsóknir sínar sem
fyrst.
Inntökuskilyrði í þriðja bekk er unglingapróf með lág-
markseinkunninni 5 — og inntökuskilyrði í 4 bekk gagn-
fræðastigsins miðskólapróf með sömu lágmarkseinkunn.
Umsóknir sendist skólastjóra fyrir 20. september.
Framhaldsdeild með námsefni I. bekkjar menntaskóla
mun starfa við skólann eins og að undanförnu.
Inntökuskilyrði í deildina er miðskólapróf með eigi lægri
einkunn en 6 í landsprófsgreinum.
Þeir, sem ekki hafa innritast ennþá, tali við skólastjóra
sem fyrst.
ísafirði, 2. september 1951,
Hannibal Valdimársson
(skólastjóri).
Tilkynning
Skuldaskilasjóður útvegsmanna hefur falið útibúinu að
annast greiðslur á sjóveðskröfum (mannakaupi) vegna
skipa þessara félaga:
Samvinnufélag Isfirðinga
Njörður h.f.
Andvari h.f.
Hnífsdælingur h.f.
Reynir h.f.
Víkingur h.f.
Skutull h.f.
Utborgun er þegar hafin og geta lcröfuhafar, eða þeir er
hafa frá þeim fullgild umboð, vitjað peninganna.
LANDSBANKI ISLANDS
Útibúið á ísafirði.