Vesturland - 13.08.1959, Side 4
4
VESTURLAND
Isafjörður 13. ágúst 1959
Ritstjóri og ábyr’gðarmaður:
Matthías Bjamason.-
Skrifstofa Uppsölum, sími 193.
Afgreiðsla og auglýsingar: Hafsteinn O. Hannesson, Hafnarstræti
12 (Uppsalir). Heimasími: 10. — Verð árgangsins kr. 50,00.
Réttlætísmál hefur náð fram að
ganga - Sjálfstæðisflokkurinn verð-
nr forystuflokkur næsta kjortimabil
Alþingi það ,sem nú situr, lauk
fyrir tveimur dögum afgreiðslu
stjórnarskrárfrumvarpsins um
breytta kjördæmaskipun, og mun
að því loknu efnt til nýrra kosn-
inga til Alþingis, sem mun verða
seint á þessu hausti. Þá verður
kosið eftir hinni nýju kjördæma-
'skipun og mun Alþingi þá verða
réttari mynd af þjóðarviljanum, en
verið hefur nokkur síðustu kjör-
tímabil.
Einn stjórnmálaflokkur, Fram-
sóknarflokkurinn, hefur barist af
mikilli hörku og óbilgirni gegn
kjördæmabreytingunni og hefur
framkoma leiðtoga þess flokks
fjarlægt hann frá skynsamlegu og
nauðsynlegu samstarfi við aðra
flokka.
Leiðtogar Framsóknarflokks-
flokksins hafa á siglingu sinni
tapað stefnunni og hrekjast nú
einir og yfirgefnir á sínu gamla
skipi fjarri öðrum skipum.
Ástand þeirra er en hættulegra
fyrir það að skip þeirra er lé-
Iegt og haffærisskírteini þess
er gefið út með tímabundinni
undanþágu.
Framsóknarflokkurinn er með
óskynsamlegum aðgerðum að ein-
angra sig í íslenzkum stjórnmál-
um. Ef hann heldur áfram að þess-
ari sömu braut á hann á hættu
að verða áhrifalaus og utanveltu
með öllu.
Framsóknarflokkurinn getur
ekki neitað þeirri staðreynd, að
þegar hann hefur haft stjórnar-
forystu á hendi og Sjálfstæðis-
flokkurinn verið utan ríkisstjórn-
ar þá hefur það endað með skelf-
ingu. Þannig var það árið 1939 og
aftur árið 1958. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur þá komið til hjálpar og
byggt upp það sem hafði hrunið
á meðan Framsóknarflokkurinn
réði.
Þó að Framsóknarflokknum hafi
heppnast í síðustu kosningum að
villa allmörgu fólki sýn í kjör-
dæmamálinu þá getur hann á eng-
an veg búist við að halda sama
atkvæðamagni í kosningunum í
haust og hann hafði í sumar.
Með því að nú er tekin upp
ný og réttlátari kjördæmaskip-
un, þá mun þingfylgi Fram-
sóknarflokksins minnka veru-
lega. Framsóknarflokkurinn er
á fallandi fæti. Allar líkur
benda til að Sjálfstæðisflokkur-
inn, sem er stærsti flokkur
þjóðarinnar, verði enn öflugri á
þingi eftir kosningarnar í haust,
en hann er nú, muni fara með
forystu í stjórnmálum landsins
næsta kjörtímabil.
Framundan bíða erfið verkefni
úrlausnar. Þar þarf að gera stór
átök. Við verðum að koma í veg
fyrir áframhaldandi verðbólgu og
treysta verðgildi íslenzku krón-
unnar. Framleiðsluatvinnuvegimir
verða að bera sig í normal árferði.
Það verður að færa saman ríkis-
báknið og stemam stigu við eyðsl-
unni. Spamaðurinn verður að
byrja ofan frá — hjá þeim sem
stjórna, — þá fyrst tekur almenn-
ingur mark á sparnaðarhjalinu.
Við verðum að lifa sjálfstæðu lífi
í efnahagsmálum.
Allir íslendingar óska þess að
kalda stríðinu í alþjóðamálum
verði sem fyrst lokið og frið-
samleg samskipti þjóða á milli
verði með eðlilegum hætti. Þá
neyðumst við ekki til að hafa
erlent herlið lengur í landi okk-
ar.
ENGINN STJÖRNMÁLA-
FLOKKUR í LANDI OKKAR
ER JAFN FÆR TIL AÐ HAFA
FORYSTU ÞJÓÐMÁLANNA Á
HENDI OG SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKURINN.
Islenzka þjóðin mun í kosn-
ingunum í haust auka fylgi
Sjálfstæðisflokksins og á þann
hátt stuðlar hún að því að
þjóðin fær sterka stjórn, sem
ekki mun hika við að bjóða erf-
iðleikunum birginn.
SJÁLFSTÆÐISMENN TRÚA
Á BETRI OG BATNANDI
TIMA OG FRAMTIÐ LANDS
SINS OG ÞJÓÐAR.
o o o
Q löRMQn VSqH
Iþróttasvæði í Tungudal — Sundlaug og sólbaðsbirgi —
Tennis- og badmingtonvellir — Ferðamannabær og ný
atvinnugrein — Hótel þarf að rísa — Ferðamenn sumar
og vetur — Þessar hugmyndir verða að veruleika.
Iþróttasvæði í Tungudal.
Enginn kaupstaður á landinu á
jafn fagurt landssvæði í aðeins
fjögra km. fjarlægð og Isafjörður.
Er ekki tilvalið að gera þar í fram-
tíðinni knattspymuvöll á sléttum
túnum dalsins neðan og utan við
Kornustaði með áhorfendasvæði í
hallanum upp af vestanmegin dals-
ins. Slíkt iþróttasvæði er tilvalið
og fjarlægðin frá kaupstaðnum er
svo lítil að hún skiptir engu máli.
Sundlaug og sólbaðsskýli.
Fyrsta framkvæmdin í Tungu-
skógi ætti að vera bygging sund-
laugar við Buná á þeim stað, sem
göngubrúin er. Laugina mætti hita
upp með rafmagni og ætti Rafveit-
an að ieggja orku til upphitunar
t.d. á næturna þegar minnst raf-
orkunotkun er. Sólbaðsskýli ætti
að reisa í nánd við laugina.
Tennis- og badmingtonvellir.
Á túnunum ætti að gera tennis-
og badmingtonvelli og góðan hand-
boltavöll. Á þessu dás-amlega svæði
ætti ísfirzk æska að geta unað í
frítímum sínum og sömuleiðis þeir,
sem fullorðnir eru. Þessar hug-
myndir kosta mikið fé og átak að
framkvæma. Bæjarstjórnin ætti að
fá góðan arkitekt til þess að skipu-
leggja þetta svæði og það sem
■alira fyrst.
Ferðamannabær og ný
atvinnugrein.
Ef þetta kæmist í framkvæmd
og smekklegur veitingaskáli væri
byggður á hæðinni utan Bunár, þá
myndi Tungudalur lokka til sín
fjölda ferðamanna og það gæti
orðið ný atvinnugrein að veita
ferðamönnum þjónustu. Það eykur
á fjölbreytni í atvinnumálum og
gerir lífið margbrotnara og
skemmtilegra fyrir þá sem hér búa
á hvaða aldri sem þeir eru.
Nýtt hótel þarf að byggja.
Það þarf að byggja nýtt og
glæsilegt hótel á ísafirði, en gott
hótel er undirstaða þess að ferða-
fólk komi hingað til dvalar. Tilval-
inn staður fyrir hótelbyggingu hér
í bænum er á lóð Útvegsbankans
við Mjallargötu og Hafnarstræti.
Ferðamenn sumar og vetur.
Gott hótel, fagur staður með
þægindum eins og Tungudalur get-
ur orðið er ákjósanlegt fyrir sum-
arferðafólk. En ísafjörður getur
ekki síður orðið ferðamannabær að
vetrinum. Hér er dásamlegasta
skíðaland sem fyrirfinnst á öllu
landinu, Seljalandsdalurinn. Það
vantar skíðalyftu og skáli Skíða-
félagsins er afbragðsstaður til að
dvelja í og þar mætti hafa ágæta
greiðasölu fyrir skíðafólk.
Þessi hugmynd þarf að verða
að veruleika.
Sumum mun, ef til vill þykja
þessar hugmyndir draumórakennd-
ar. En þegar menn athuga þetta
nánar, þá er það ekki. Þessi mál
á að taka stig af stigi og stefna
að þessu marki, sem hér hefur ver-
ið sett fram. ísafjörður þarf á
meiri fjölbreytni að halda og þetta
er ein leið til fjölbreyttara at-
vinnulífs. Isfirðingar hugsið um
þessi mál og komið með nýjar
hugmyndir.
o o o
Nýr ritstjóri viö
Morounblaðið
Nýlega lét einn af ritstjórum
Morgunblaðsins, Einar Ásmunds-
son, af störfum við blaðið. 1 hans
stað hefur verið ráðinn ritstjóri að
blaðinu Matthías Jóhannessen,
cand. mag. Hann er 29 ára garhall
og hefur unnið sem blaðamaður
við Morgunblaðið s.l. sjö ár.
o o o
Staksteinar
Framhald af 8. síðu.
Islands. Þeim hefur verið mjög vel
tekið, eins og sjálfsagt er, og þeir
hafa fengið að kynnast sjónarmið-
um íslendinga í landhelgismálinu
og þeirri þýðingu, sem útfærsla
landhelginnar hefur fyrir framtíð
sjávarútvegsins á íslandi. Vonandi
verða slíkar heimsóknir til mikils
gagns fyrir málstað okkar, því
allir sanngjarnir menn, og brezkir
líka, hljóta að viðurkenna okkar
rétt, ef þeir líta á málin af sann-
girni og velvilja.
# * «■
Togararnir:
Isborg fór á veiðar 1. ágúst s.l.
Sólborg fór á veiðar 8. ágúst.
Hún lagði á land hér á ísafirði
300 tonn af karfa 30. júlí og 6.
ágúst 56 tonn af karfa. Aflann
fékk hún við Vestur-Grænland
í fyrri veiðiferðinni.