Vesturland

Volume

Vesturland - 24.12.1959, Page 9

Vesturland - 24.12.1959, Page 9
VESTURLAND 9 skömmu áður en það varð, kom fram einkennileg tillaga frá Bjarna rektor Jónssyni í Skálholti, um að leggja niður íslenzka tungu. Setti hann fram till. sína árið 1771, og má fullvíst telja að sú till. hafi ýtt undir ýmsa góða menn að spyrna nú við fótum og hefja íslenzkuna til vegs og virðingar á ný. 1791. Stofnaður Hausastaðaskóli (heimavistarskóli fyrir 10—12 börn) kosatður af Thorkelliisjóði. 1798. „Balle“ lærdómskver fyrir- skipað, samkv. Konungsbréfi, sem hin einasta bók til barnauppfræð- ingar á íslandi. 1812. Leggst Hausastaðaskóli niður. Barnaskólalaust er þá í landinu. 1830. Einkaskóli stofnaður í Reykjavík með styrk úr Thorkellii- sjóði. 1830. Rasmus Chr. Rask sendir til íslands stafrófskver, er nefnist Lestrarkver lianda heldri manna börnum. 1847. Bænaskrá til Alþingis um bamaskóla í Reykjavík. 1852. Barnaskóli í Stokkseyrar- hreppi hefur starf sitt og hefir starfað nær óslitið síðan. 1853. Lagt fram á Alþingi frumv. til tilskipunar um stofnun barnaskóla í Reykjavík. 1853. Stafrófskver handa minni manna börnum kemur út. 1870. Barnaskóli tekur til starfa á Akureyri. 1874. Stofnaður barnaskóli á ísafirði. Lengra held ég svo ekki í þess- ari upptalningu. Lestrar- og skriftarkunnátta almennings. Þá langar mig til að greina nokkuð frá því á hvern veg almenn menntun hefir verið á ýmsum öld- um, einkum lestrai’- og skriftar- kunnátta. Um kunnáttu fólks t. d. á 14., 15. og 16. öld er erfitt að fá fulla vitneskju. En þó má telja nokk- urnveginn víst, að fjöldi alþýðu- fólks hafi þá verið læs og allmarg- ir skrifandi. Margskonar handrit og afskriftir sagna og kveðskapar dreifðust þá um allt land. Og áð- ur en nokkur bók var prentuð hér á landi, lærðu menn að lesa á handritin. Má þá gera ráð fyrir, að margir hafi jafnhliða farið að draga til stafs. Dr. Páll E. Ólason hefir bent á atriði, sem nokkuð má af ráða hvernig skriftarkunnátta manna hefir verið á 17. öld. Það eru und- irskriftir bænda í hinum svonefndu köllunarbréfum, sem voru gefin út til handa presti þeim, er bændur vildu hafa. „Slík köllunarbréf hafa varðveitzt nokkuð“, segir Páll, „t. d. bréf frá sóknarmönnum í Miklaholtssókn, en þar mun mennt- un almennings aldrei hafa verið meiri en í meðallagi, — en undir- rituð nöfn 11 manna, öll eigin- hendi, ekkert handsalað. í Skorrastaðasókn í Norðfirði er ástandið verra. Þar eru af 22 nöfn- um aðeins 5 rituð eigin hendi, en 17 handsöluð. 1 þessu sambandi má einnig nefna hyllingarskjölin frá 1649, er þar í sumur hreppum greinilega gersópað öllum bændum til undirskrifta og eru nálega allir skrifandi. Þessi örfáu dæmi, sem hér eru tilfærð éftir dr. Páli draga fram þá staðreynd, að í sveitum landsins hefir skrift verið meira eða minna um hönd höfð. — Ég hefi aðeins nefnt 2 dæmi en dæm- in er dr. Páll tilnefnir, eru hvaðan- æva af landinu. — Það, að bændur gátu skrifað nöfn sin nokkum veginn lýtalaust, sannar að vísu ekki mikið um skriftarkunnáttu al- mennt, ef ekki mætti jafnhliða benda á fjölda handrita, sem án efa hafa verið rituð af alþýðu- mönnum. Til eru frásagnir er- lendra höfunda, sem styðja þá skoðun, að margir íslenzkir al- þýðumenn hafi verið læsir og skrifandi á miðöldum. Absalon nokkur Beyer, prestur og rithöf- undur í Björgvin, sem hafði náin kynni af íslendingum, segir í rit- gerð um Island m. a. þetta: „í þessu land (þ. e. íslandi) er hraust þjóð, mennileg og frjáls- mannleg, vel fallin til að læra alls- kyns listir. Með þessari þjóð er það almenn venja, að börnum sé kennt að lesa og skrifa, bæði konum og körlum, og ungum sveinum er haldið að því að læra lögbók lands- ins utanbókar, halda þeir báðum höndum á baki sér og greina lög- bókina alla eftir bálkum, þá eftir kapítulum og inna síðan hvern kapítula eftir greinum." Rit það, sem þetta er tekið úr, er samið á árunum 1567—-1570. Er kemur fram á 18. öld virðist lestrar- og skriftarkunnáttu held- ur hafa hrakað. Hið helzta sem stuðst verður við í því efni eru skýrslur Harboes eftir að hann hafði kynnt sér ástandið í þessum málum í 4 ár. - Skulu hér tilfærð ýmis atriði, er sýna ástandið í ýmsum sóknum. Á Tjörn á Vatns- nesi voru 19 börn, aðeins 8 læs. Þess er ennfremur getið, að prest- urinn þar sé því nær bókarlaus, átti ekki Biblíuna. — 1 Glæsibæ og Lögmannshlíð 32 börn, tæpur helmingur læs, stúlkumar einkum fákunnandi. Þingmúli í Múlasýslu: 100 sálir í söfnuðinum, þar af 70 ólæsir. — Þar stendur ennfremur þetta: Presturinn hafði vanrækt söfnuðinn, aðeins hirt um að prédika. Dvergasteinn: 128 sálir, 85 ólæsir, 43 læsir. Presturinn gamall maður, kvartar yfir fáfræði og veraldarhyggju, en óskar þess þó eins að fá tekjur sínar auknar. Holt undir Eyjafjöllum: 347 sálir, 270 ólæsir, 77 læsir. Presturinn hefir ekkert um söfnuðinn að segja, hefir vanrækt störf sín og er óheppilegur þjónn kirkjunnar. Gaulverjabær og Stokkseyri: Fjöl- mennasti söfnuður á íslandi: 970 manns, þar af 721 ólæsir, 249 læs- ir. Þessi dæmi eru tekin af verri endanum, og mætti tína mörg fleiri af svipuðu tagi. Auk þess, sem þetta er skýrsla um almenna kunnáttu í lestri, fá- um við vitneskju um annað atriði, sem sé það, að öll alþýðufræðsla hefir verið eða átt að vera í hönd- um prestanna. Prestar hafa víða fengið mjög harða dóma í skýrsl- um Harboes. Þess er getið, að þeir hafi verið fáfróðir, snauðir af bók- um (sumir áttu ekki einu sinni Biblíuna), hirðulitlir og ólærðir. Um marga er þess getið, að þeir hafi ekki þekkt söfnuði sína, en talið að ástandið væri viðunandi. Þótt það hafi verið afleitt, að þeir hafi verið montnir vindbelgir og fimbulfambarar eða sofandalegir og flutt algerlega óskiljanlegar ræður. Enn er þess getið um mjög marga, að þeir hafi verið siðspillt- ir og drykkfelldir. Nú skulu nefnd nokkur dæmi í viðbót bæði af betra og verra tag- inu. — í Möðruvallasókn í Eyja- firði um 50 börn, flest læs. — I Húsafellssókn í Borgarfirði 50 læsir, 25 ólæsir. — 1 Hítardals- prestakkalli var rúmur helming- ur fullorðinna læs, og árið 1797 voru þar aðeins 3 ólæsir. Vest var ástandið í Hvammssókn í Norður- árdal, þar voru 65 læsir, en 242 ólæsir, og á Borg á Mýrum 140 læsir en 300 ólæsir. — 1 Stranda- sýslu virðist ástandið hafa verið allgott. Sérstaklega í Staðarpresta- kalli. Þar voru nær allir læsir. BókaJkostur á lieiinilum. Þá skal minnst á aðra rannsókn, er Hallgrímur Hallgrímsson, fyrv. bókavörður gerði, en hún er um bókaeign íslendinga fyrir og um aldamótin 1800. — Eftir heimild- um húsvitjana og skiptibóka rann- sakaði hann alla bókaeign rúmlega 1000 heimila. Bregður það ágætu ljósi yfir þennan tíma. Á einum 7 heimilum, af þessum 1000 er þess getið, að engin bók sé til á bænum, enda voru húsbænd- ur ólæsir. Vídalinspostilla var til á yfir 900 heimilum og Passíu- sálmarnir nærri á hverju heimili og víða 2 eða 3 eintök. Aðrar bæk- ur 18. aldar í almenningseign voru helzt þessar: Grallarinn, Biblían og Nýjatestamentið, Sjöorðabók Vídalíns og föstuprédikanir, Hall- grímskver, Sálmabókin og Fræðin. Af dæmum hér að framan um lestrarkunnáttu og bóka kost, má sjá, að ekki hefir lestrarkunnátt- an verið beisin, né um auðugan garð að gresja í bókmenntunum. En er við öðru að búast. Langvinn ánauð og áþján leiguliða undir Guðjón Kristinsson höfðingja, innlenda sem útlenda, drap dug úr fólkinu. Það átti einskis úrkost um menntun og frelsi eða fjárráð. Sveitirnar kringum Bessastaði lágu í margar aldir undir þungum hnefa höfuðsmannsins og litlu betra var innlent höfðingja vald víða um land. Engin furða er því, þó öreigarnir á þessum stöðum hafi verið lengi að rétta úr kútn- um og má heita merkilegt, að eigi skyldi hafa tekizt að drepa niður alla fróðleiksfýsn almennings. Ný öld. En það lifir lengi í gömlum glæðum og nú reis ný öld, eftir að myrkur og vonleysi hafði grúfað yfir landi og þjóð. — 19. öldin hófst. Það var öld frelsis og vona. Þá eignaðist þjóðin dugandi menn, framsýna og framsækna. Fyrstur kom Magnús Stephensen, sem með ótrúlegum dugnaði vann að útgáfu fræðslurita fyrir almenning, þrátt fyrir skilningsleysi margra. — I sömu andrá má nefna skáldið Bjarna Thorarensen, sem orti þjóðsöng 19. aldarinnar, „Eld- gamla ísafold". Hann varð her- göngulag í baráttunni fyrir frelsi og betri kjörum. Þá komu kvæðin „ísland, far- sælda frón,“ „Ó, fögur er vor fósturjörð" auk fjölda annarra ljóða ,sem öll þjóðin nam og söng af lífi og sál. Með því söng hún í sig aukinn kjark. — Og með vaxandi kjarki hófst sókn á sviði mennta- og fræðslumála þjóðar- innar. — Þeim fjölgaði stöðugt sem lærðu að lesa, enda þótt skriftin yrði út undan fyrst í stað. Fróðleiksþorsti almennings var mikill og þær fáu bækur sem út komu voru lesnar upp til agna. Þegar Bókmenntafélagið var stofnað 1816 fékk það strax um 400 félaga og er Norræna fomrita- félagið hóf göngu sína 1825 og ákvað að gefa út fomsögurnar, gerðust 1000 íslendingar áskrif- endur að sögunum. Er Ný félagsrit komu út fyrst fengu þau strax um 550 kaupend- ur. — Þetta sýnir að bókaútgáfu

x

Vesturland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.