Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 24.12.1959, Qupperneq 12

Vesturland - 24.12.1959, Qupperneq 12
12 VESTURLAND Hnifsdælingar framleiða útflutnings verð- mæti fyrir 10 miiljónir króna á ári Fréttamaður Vesturlands brá sér út í Hnífsdal og átti stutt sam- tal við Einar Steindórsson, oddvita Eyrarhrepps. Vilt þú ekki Einar segja okkur eitthvað frá högum ykkar Hnífs- dælinga ? íbúar hér í Hnífsdal eru nálega 300 manns. Ibúatalan hefur verið svipuð á undanförnum árum. Fólki hefur ekki fækkað hér í dalnum og lítið er um það að fólk flytjist héð- an suður áland. Hér hefur verið byggt töluvert af íbúðarhúsum á undanförnum árum og nú síðast liðið sumar var hafin bygging á þremur nýjum íbúðarhúsum. Þá er og í byggingu félagsheimili. Hvernig hefir atvinna verið hjá ykkur? Atvinna hefur verið með ágæt- um á þessu ári, en hraðfrystihús- ið er aðalatvinnurekandinn á staðnum. Héðan hafa verið gerðir út þrír bátar tveir 60 tonna og einn 40 tonna. Sá síðast taldi hefur nýlega verið seldur til ísafjarðar. Þá er von á nýjum 94 tonna stálbát, sem byggður er í Austur-Þýzkalandi. Eigandi hans er Mímir h.f., en það félag átti þann bát, sem seld- ur var til ísafjarðar. Hann verður væntanlega kominn fyrir jól og verður þá kominn á veiðar um ára- mótin. Þá var síðastliðið sumar byggð hér rækjuverksmiðja, sem er útibú frá Niðursuðuverksmiðj- unni á ísafirði, sem Böðvar Svein- bjömsson rekur. Þessi verksmiðja Rætt við Einar Steindórsson oddvita Eyrarhrepps skapar nokkra atvinnu. Einkum þá fyrir konur og unglina. Hefur verið nokkur skortur á fólki, sjómönnum eða verkafólki? Okkur tókst að ráða á alla bát- ana svo að segja eingöngu heima- menn í þetta skiptið. Áður höfum við orðið að ráða fleiri og færri aðkomusjómenn. Hraðfrystihúsið skortir nú kvenfólk meira en áður en segja má að ekki vanti verkamenn eins og stendur . Atvinna hefur verið næg í Hnífsdal allt árið, bæði við fram- leiðslustörfin og byggingavinnu. Afkoma fólks er því mjög sæmi- leg. Þið framleiðið mikið af útflutn- ingsverðmætum. Já, í ekki stærra plássi. Það er ekki ennþá búið að gera upp árið 1959 en ég hygg að framleiðslan verði svipuð og síðastliðið ár. Á árinu 1958 nam útflutnings- verðmætið 9,5 millj. króna. Hefur hraðfrystihúsið staðið í einhverjum framkvæmdum á ár- inu? Nei, það hefur ekki verið, en nú í haust voru frystivélar og frysti- kerfi hússins yfirfarin og endur- bætt að miklum mun. Ennfremur Einar Steindórsson fóru fram endurbætur á beina- mjölsverksmiðjunni. Hefur hreppurinn þá staðið í framkvæmdum ? Ekki miklum. Þó var endur- byggð vatnsveita í Bakkahlíð vegna aukinna íbúðarhúsabygg- inga á svokölluðum Bökkum en ný- byggingin er öll í þeim hluta þorpsins. Því veldur staðsetning frystihússins, sem er við Hnífs- dalsbryggju, sem liggur um það bil einn kílómeter fyrir innan þorpið. Þá er einnig í ráði, að byggja nýja vatnsþró, þegar á næsta ári, miklu stærri heldur en þá sem fyr- ir er eða um 120 teningsmetra. Liggja nú þegar fyrir teikningar og útboðslýsing á þeim mannvirkj- um. Þá má geta þess að sveitasjóð- ur Eyrarhrepps á allar þær bygg- ingalóðir, sem hin nýju íbúðahús eru byggð á. Þessar lóðir keypti hreppurinn af Landsbankanum á ísafirði um 1940, en þær eru úr landi jarðarinnar Bakka í Hnífs- dal. 1 þessari landareign hrepps- ins eru túnblettir í erfðaábúð, sem taka verður fyrir byggingalóðir á næstu árum ef sama áframhald verður á íbúðahúsabyggingum. Nú þegar er ákveðið að taka eitt tún- ið undir götu og byggingalóðir á vori komanda, segir Einar að lok- um og kveður. Smælki „Þú getur búist við því að verða bráðum ekkja,“ sagði spákonan við viðskiptavininn. „Eiginmaður þinn deyr bráðum hryllilegum dauða.“ Konan andvarpaði og spurði: „Get ég verið alveg fullviss um það.“ o o o „Mamma, hversvegna hefur pabbi ekki hár á höfðinu," spurði barnið. „Pabbi þinn hugsar svo mikið.“ „En af hverju hefur þú þá svona mikið hár mamma?" „Þegiðu barn og haltu áfram að borða matinn þinn.“ o o o Tveir kúrekar sátu á knæpu og ræddu um dauða vinar síns. „Hvernig bar dauða Bills að,“ spurði annar. „Hann datt ofan af aftökupalli.“ Hvað var hann að gera þar?“ „Það átti að fara að hengja hann.“ Hnífsdalur

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.