Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 24.12.1959, Qupperneq 13

Vesturland - 24.12.1959, Qupperneq 13
VESTURLAND 13 Vil bðkuni og brðsum Mér datt í hug að gaman væri að kíkja 'inn í húsmæðraskólann og sjá hinar verðandi húsmæður að starfi. Ég brá mér því út í skóla og knúði dyra. Ein náms- meyjanna kom til dyra og gerði ég boð fyrir skólastjórann, Þor- björgu Bjarnadóttur. Hún bauð mér strax inn og leiddi mig í eld- húsið. Þar var hópur ungmeyja önnum kafnar við vinnuna. Ég veitti því fljótt athygli að þær voru að skera eitthvað út og innti ég Þorbjörgu þá eftir því hvað stúlkurnar væru að skera út. Hún kvað þær vera að skera út laufabrauð og kom ég þá auga á stóran hrauk af laufabrauði hjá stúlkunum. Ég tók Þorbjörgu tali. Þið haldið ennþá þeim þjóðlega sið að búa til laufabrauð? Já, við tökum alltaf einn dag fyrir jólin í laufabrauðsbakstur- inn. Það er að vísu ekki vestfirzk- ur siður að borða laufabrauð, en norðanlands þykja það engin jól ef ekki er bakaður heill stafli af laufabrauði. Það er gaman fyrir Vestfirðinga og Sunnlendinga að kynnast þessum norðlenzka sið. Og svo gefum við þeim aftur vest- firzka skötustöppu á Þorláksmessu og reynum að kynna þeim aðra vestfirzka hætti í matargerð. Verða margar stúlkur hérna í skólanum um jólin? Nei, ekki að þessu sinni. Þær fara allar heim til sín og við lok- um skólanum um hátíðarnar. Komast þær virkilega allar heim til sín? Flest allar. Nokkrar þeirra fara til kunningja sinna hér í nágrenn- inu. Annars er það nú sjaldgæft að við getum lokað skólanum um há- tíðarnar. Það fer eftir því hvaðan nemendurnir eru því að auðvitað er þeim velkomið að vera í skól- anum svo að þær þurfi ekki að leggja í ferðakostnað til að kom- ast heim til sín um jólin. Er þá nokkur jólaundirbúningur hjá ykkur? Já, mikil ósköp. Það er alveg eins og á stóru heimili. Áður en stúlkumar fara höldum við svo- kölluð litlu-jól. Hvernig fara þau fram? Það er nokkurskonar eftirlíking af hinum raunvemlegu jólum. Við bökum og brösum, búum til sæl- gæti og laufabrauð, sjóðum hangi- kjöt og setjumst síðan að krásun- um. Taka aðeins námsmeyjarnar og kennarar þátt í þessum litlu-jólum ykkar? Nei, skólanefndinni er alltaf boðið og svo líka stundakennur- um. Er þá ekki eitthvað gert til að skemmta gestunum? Jú, námsmeyjar æfa söng og smá leikþátt, sem oft er þá efni úr skólalífinu. Einn stór þáttur í undirbúningi litlu-jólanna er út- gáfa Jólablaðsins. Það kemur nú út í sjötta sinn. Hvernig er útgáfunni hagað? Er það prentað eða fjölritað? Nei, við höfum nú ekki gert það, því venjulega kemur efnið á síðustu stundu. Það er fært inn í bók, sem skólinn á. Einhver nem- andinn, sem góður er að teikna gerir forsíðuna og skólaskáldin leggja til efnið undir leiðsögu kennara. Eru þær margar hagyrðingar? Nei, þær eru það nú ekki, en þó skjóta oft upp kollinum sæmilegir stílistar og jafnvel hagyrðingar. Hvernig er félagslífi í skólanum háttað? HaldiÖ þið ekki einhverjar skemmtanir? Við höfum kvöldvöku vikulega. Aðra vikuna sjá námsmeyjar um skemmtiefni en hina kennarar. Svo höldum við okkar árshátíð, sem almennt gengur undir nafninu Grísagildi, frá gamalli tíð. Þá fá námsmeyjar að bjóða herrum. Hvernig verja þær frístundum sínum? Frístundirnar eru nú ekki mjög margar á virkum dögum. Klukku- tíma útivistarleyfi, sem þær eiga að nota til útivistar. Svo eru helg- arnar, en þá fá þær frí frá há- degi á laugardag og fram á sunnu- dagskvöld. Þær, sem eru áhuga- samar í handavinnunni nota frí- tímann til að sauma og vefa og svo auðvitað líka til að lyfta sér eitthvað upp á skemmtunum í bænum. Ballleyfi hafa þær einu sinni í mánuði. Tími til lestrar fyr- ir utan námsbækurnar er lítill, en ef þær hafa löngun til að lesa góð- Ég v.ar á gangi í Hafnarstræti þegar ég sá hvar Daníel Sigmunds- son hvarf inn í smíðastofu sína í húsi Jóns heitins Ólafs. Ég smeygði mér inn á eftir honum til að vita hvort hann gæti ekki lagt okkur eitthvað til í jólablað Vest- urlands. Heyrðu Daníel, segðu mér eitt- hvað skemmtilegt úr félagslífinu hér í bænum á þínum ungdómsár- um. Ég minnist fyrst áranna, sem ég starfaði í skátafélaginu Ein- herjar með Gunnari Andrew og fé- lögum mínum, sem þá voru í fé- laginu. Á þessum árum réðumst við í að innrétta annan endann í Dagheim- ilinu, sem bærinn eignaðist síðan. Þangað fluttum við úr kjallar- anum hjá Bárði Tómassyni í Tún- götunni, en það herbergi sem við höfðum þar kölluðum við Grenið. Það nafn var svo á þeim vistar- verum skátanna, þangað til þeir eignuðust Skátaheimilið. Innréttingarnar á Dagheimilinu önnuðumst við alveg sjálfir. Man ég þar sérstaklega eftir þeim Sigga Baldvins, Erling Hestnes, Halla Ó1 og Halla Magg, Gísla og Magga Kristjáns og svo auðvitað Gunn- ari Andrew, sem alltaf var höf- uðið. ar bækur, þá er svolítið bókasafn í skólanum, sem þær hafa aðgang að. Og svo auðvitað dagblöðin. Ég þakka Þorbjörgu fyrir sam- talið og veittan beina. Þegar ég kem út fyrir dyr skólans eru dá- lítill hópur yngissveina á gangi fyrir framan skólann í von um að ungu stúlkurnar líti þá hýru auga. ★ Hvernig var starfinu svo háttað hjá ykkur skátunum? Fyrst og fremst var starfað í flokkum, síðan voru útilegur, ferðalög og skíðin á veturna. Árið 1937 fórum við á fyrsta landsmót skíðamanna, sem haldið var í Hveradölum, svo að þetta varð því fyrsta sveitin, sem fór héðan á skíðalandsmót. Um áramótin fórum við að æfa undir þetta mót. Þá var farið af stað klukkan sjö á morgnana, en þegar líða fór að mótinu fórum við af stað klukkan sex og urðum við að fá frí úr vinnunni í einn tíma og byrjuðum að vinna klukkan níu. Þá vorum við búnir að hlaupa allt framundir Valhöll eða fram á Sandfell. Hverja æfingu enduðum við með baði áður en við fórum til vinnu. Þessum æfingum héldum við áfram fram að mótinu, sem var haldið um miðjan marz. Þeir, sem fóru á þetta mót voru Tryggvi Þorsteins, Halli Magg, Maggi Kristjáns, Guðmundur Hall- grímsson, Sigurður Jónsson (Þór- ólfssonar) og Daníel, og svo bætt- ist Bolli Gunnarsson í hópinn í Reykjavík. Síðustu dagana fyrir mótið bjuggum við í Skíðaskálanum í Hveradölum og vorum þar við æf- ingar. Þetta var dýr ferð á þessum „Þar hamast Árni, Geiri, Danni“

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.