Vesturland - 24.12.1959, Qupperneq 15
VESTURLAND
15
Frá Hvallátrum á Breiðafirði
í*essi mynd er frá Hvallátrum á Breiða-
firði. I»ar er búið miklu myndarbúi.
í Hvallátrum er útsýni gott um hinn svip-
mikla og fagra Breiðafjörð. En þó fagurt sé
í Breiðafjarðareyjum þá hafa margar þeirra
farið í eyði á undanförnum árum. Samgöngu-
leysið og erfiðleikar með alla aðdrætti eiga
þar að sjálfsögðu höfuðsökina.
Byggð er nú aðeins í Hvallátrum, Svefn-
eyjum, Skáleyjum og Flatey, en þar hefur
fólkinu fækkað á seinni árum.
Annar bóndinn í Hvallátrum Aðalsteinn Að-
alsteinsson er mjög hagur smiður og smíðar
hann báta á vetrum og þykja þeir traustir og
góðir. Smíðahús hans er húsið næst sjónum,
sem þið sjáið á myndinni.
Frá Æðey
Æðey við lsaf jarðardjúp er einhver fegursti
staður á Vestfjörðum. Hér er mynd frá höfn-
inni í Æðey og byggingum á eynni.
Æðey hefur í aldaraðir verið eitt af mestu
höfuðbólum Vestfjarða og er víðfræg fyrir
fegurð sína og einstaka gestrisni húsbænd-
anna.
I áratugi liafa þar ráðið ríkjum þrjú syst-
kini, Ásgeir, Halldór og Sigríður, en þau tóku
við búi af foreldrum sínum Guðmundi Rósin-
karssyni og Guðrúnu Jónsdóttur frá Arnar-
dal. Eftir að Guðmuiulur féll frá 1906, bjó
Guðrún með börnum sínum í Æðey um langt
árabil.
i-íííS-Síj
Fljótavík
Myndin sem hér birtist er tekin af Straumnesfjalli. Undan
Hvestunni sést í ósinn, sem rennur úr Fljótinu. Yzti liluti fjalls-
ins norðan Fljótavíkur heitir Kögur, en undir honum er Prest-
vík. 1 Fljóti voru þrír bæir: Atlastaðir, Tunga vestan óssins í
hvarfi við Hvestuna, og Glúmsstaðir framan við Fljótið. Hér
er nú allt í eyði. I sóknarlýsingu 1847 segir að í Fljótum muni
vera jafnverra veðurlag, en annars staðar á Islandi, „á sumr-
um tíðast óþerrar með þokufýlu og stórslögum af norðri.“
Mikil silungsveiði var í Fljótinu, sem stundum var nefnt
Fljótavatn, Glúmsstaðavatn eða Atlastaðavatn, og er sú veiði
nú eign Reykvíkinga, eða leigð þeim. Miklar starengjar eru
meðfram Fljótinu. (Ljósm. Ól. Gunnarsson).