Vesturland

Árgangur

Vesturland - 07.05.1966, Síða 6

Vesturland - 07.05.1966, Síða 6
6 Sjsrsi a/kssFMxxxn ssAoFSSÆFtsxiooai Slagoröagrýla... Framhald af 3. síðu Fimm ára framfaratímabil Um flest annað verða Sjálfstæðismenn sakaðir varðandi stjórn bæjarmálanna á árunum 1946—’51 en „framtaksleysi og stöðnun", enda eru þessi orð ritstjóra Isfirðins örgustu öfugmæli. Hitt væri sönnu nær að deila um, livort ekki hafi verið í of mikið ráðizt í verklegum framkvæmdum og umbótum í at- vinnu- félags- og menningarmálum á aðeins fimm árum. títgerð Hér að framan er getið framlaga bæjarsjóðs vegna kaupa á Svíþjóðarbátunum. Togarafélagið lsfirðingur hf. var stofnað með hlutdeild bæjarsjóðs og almennri þátttöku bæjarbúa og togararnir Sól- borg og ísborg keyptir. Bekstur togaranna gjörbreytti öllu atvinnulífi bæjarins til hins betra og aflaði bæjarbúum og bæjarsjóði beint og óbeint mikilla tekna og var mikil lyftistöng fyrir Isafjörð um ára- bil. Því miður hallaði á ógæfuhliðina fyrir togaraútgerðinni hér, sem annars staðar á landinu sökum aflabrests og togarafélagið varð gjaldþrota eins og mörg önnur togarafélög í landinu. Hér er tilfinnanlegur skortur á íbúðum, og þá sér í lagi leigu íbúðum og stendur það í vegi fyrir eðlilegum vexti bæjarins. Enginn vafi er á því, að fjöldi fólks vildi gjarnan setjast hér að ef húsnæði væri fyrir hendi. Hér er því um eitt stærsta og mest aðkallandi hagsmunamál bæjarins að ræða. Sjálfstæðismenn liafa ár eftir ár flutt tillögur um byggingu íbúðarhúsnæðis á vegum bæjarins og nú á síðustu árum fengið tillögur samþykktar í bæjarstjórn, en framkvæmdir hafa engar orðið ennþá. Á s.l. þremur árum, þ.e. 1963—’65 hafa verið teknar í út- svörum af bæjarbúum samtals 900 þús. krónur til byggingar íbúðarhúsnæðis, en öll þessi upphæð hefur horfið í rekstur bæjarfélagsins. Ritstjóri ísfirðings heldur e.t.v. að unga fólkið I bænum hafi ástæðu til að verðlauna vinstri flokkana fyrir dáðleysi í liúsnæðismálunum ? Aðrar framkvæmdir Hér að framan liafa verið talin upp nokkur af verkum bæjarfélagsins undir forustu Sjálfstæðismanna á árunum 1946 til 1951. Ótalin eru þó verk eins og lagning nýrrar vatsveitu frá Tunguá til bæjarins, aukning raforku með byggingu diselstöðvar, bygging hafnsögubáts og lögregluvarðstofu o.fl. Að lokum Kitstjóri Isfirðings er svo óheppinn að halda, að tsfirð- Staksteinar Rafveita Isafjarðar er sögð vera krötunum mikill þyrnir í augum og vilja þeir helzt að hún komizt undir yfirráð Raf- magnsveitna ríkisins. Er al- talað í bænum að kratar séu ákveðnir í að beita sér fyrir því að rafveitan verði seld eftir kosningar, ef þeir fá að ráða. Nýlega hefur Ragnari Ás- geirssyni héraðslækni á ísa- firði verið veitt embætti héraðslæknis í Hanfarfirði og mun hann taka við því emb- ætti innan skamms. Embætti héraðslæknis á Isafirði hefur verið auglýst laust til um- sóknar og er umsóknarfrestur til 10. maí, en embættið veit- ist frá 1. júní að telja. Þá hefur héraðslæknis- embættið á Patreksfirði verið auglýst laust til umsóknar og umsóknarfrestur til 11. júní, en embættið veitist frá 1. júní Hafnarbakkinn Hafin var bygging hafnarbakkans í Neðstakaupstað árið 1947. Nú 19 árum síðar, hefur hinum „framtakssömu“ vinstri flokkum ekki enn tekizt að ljúka byggingu hans, þar sem ennþá hefur ekki verið steypt plata nema á hluta hafnarbakk- ans og fullkomna lýsingu vantar alveg. Skólabyggingar Húsmæðraskólinn var byggður og gagnfræðaskólinn stækkaður. Byggingu sundhallar og íþrótthúss var að Ijúka þegar Sjálfstæðismenn tóku við stjórn bæjarmála árið 1946, svo að mikill þungi kostnaðar við þá byggingu kom á þessi ár. Það olli miklum fjárhagslegum erfiðleikum, að framlög ríkissjóðs til skólabygginga voru mörgum árum eftirá. Nú er í smíðum áfangi að nýju bamaskólahúsi og greiðist byggingarkostnaður að jöfnu af bæjarsjóði og ríkissjóði, en nú þarf ekki að bíða árum saman eftir framlögum ríkissjóðs til skólabygginga. Um s.l. áramót nam byggingarkostnaður skólans rúml. 6 millj. króna. Þar af hafði ríkissjóður greitt 3,6 millj. kr. en bæjarsjóður 2,5 millj. króna. Hver er svo skýringin á því, að vinna við skólabygginguna hefur svo til verið stöðvuð allan s.l. vetur ? Ef til vill eiga slagorð ritstjóra ísfirðings um „fjárvana bæjarsjóð" við í þessu tilfelli ? Húsnæðisframkvæmdir Þegar Sjálfstæðismenn höfðu forustu um bæjarmálin var í sept. 1946 hafin bygging 12 íbúða sambýlishúss við Fjarðar- stræti. Jafnframt voru einstaklingar hvattir til að hefja íbúða- byggingar og nutu þeir aðstoðar bæjarfélagsins um útvegun teikninga, auk þess sem þeir fengu ókeypis möl og sand og aðstoð við grunngröft. Síðan Fjarðarstrætishúsin voru hyggð og vinstri ílokkar- nir tóku við forustu bæjarmála hefur engin íbúð verið reist á vegum bæjarfélagsins. ingar hafi gleymt fimm ára framfaratímabili Sjálfstæðis- manna 1946—’51. Honum skjátlast einnig ef hann heldur, að hann hræði unga fólkið í bænum frá því að kjósa Sjálfstæðis- flokkinn með því að veifa gatslitinni slagorðagrýlu. Að undanförnu hafa Sjálfstæðismenn verið í minnihlutaað- stöðu í bæjarstjórninni. Minnihlutinn ræður mestu um það, hvort starfsfriður ríkir í bæjarstjórninni. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa stutt öll framfara- mál bæjarfélagsins, sem fram hafa komið í bæjarstjórninni. þeir hafa haldið uppi málefnalegri gagnrýni, en forðazt persónuleg illindi. Sjálfstæðismenn hafa með framkomu sinni opnað leiðir til samstarfs og fengið samþykktar margar veigamiklar tillögur til hagsbóta fyrir bæjarfélagið. Til að koma samþykktum bæjarstjórnar í framkvæmd þarf öruggari forustu og þróttmeiri framkvæmdastjórn en verið hefur. Munið það ísfirzkir kjósendur, að stjórnmálaflokkur, sem vinnur af heilindum og drengskap að bæjarmálum, þegar hann er í minnihluta, er trausts verður og mun leggja sig allan fram, ef bæjarbúar veita honum umboð til aukinna áhrifa á gang bæjarmála. Ég skora á ísfirzka kjósendur að styðja framfarastefnu Sjálfstæðismanna og kjósa D listann í bæjarstjórnarkosning- unum. Högni Þórðarson. Leiðrétting við framboðslista 1 næstsíðasta blaði féll niður eitt nafn á lista Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðuflokksins í Eyrarhreppi. Var það nafn Leifs Pálssonar skipstjóra, sem skipar 12. sæti listans. Listi Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins í Eyrarhreppi er B-Iisti. Leiksýning í kvöld Súgfirðingar koma í heim- sókn hingað til Isaf jarðar um helgina og sýna gamanleikinn „Allt fyrir Maríu“ í Alþýðu- húsinu á laugardagskvöldið kl 9 e.h. Súgfirðingar sýndu þennan gamanleik hér fyrr í vetur við ágæta aðsókn og frá bærar undirtektir, og sýningar hafa verið víða á Vestf jörðum. n.k. —□— „Vestfirðingur segir 5. maí sl„ að listi Sjálfstæðisflokks- ins sé „andvana fæddur“. Já, einmitt, svo mæla börn, sem vilja. Sé þetta rétt hjá komma blaðinu, er víst ekki seinna vænna en að biðja um pláss fyrir þetta jóð í kistunni, sem framboðslisti kommanna verður jarðaður í sunnudiag- inn 22. maí n.k. af ísfirzkum kjósendum. ísafirði sími 416. Erum að taka upp Þríhjól Barnahjól Unglingahjól Fullorðinshjól Bamakerrur Barnavagna ásamt varahlutum □ Nýkomið fjölbreytt úrval af tækifærisgjöfum fyrir aldna og unga Neisti hf.

x

Vesturland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.