Vesturland - 05.12.1970, Side 1
XLVH árg.
Isafirði, 5. des. 1970.
17. tölubl.
Framboð Sjðlfstæðisflokksins t Vestf.kjördæmi ákveðið
Matthías Bjarnason
Þor\r. Garðar Kristjánsson
Ásberg Sigurðsson
Arngrímur Jónsson
Hildur Einarsdóttir
Jón G. Kristjánsson
Engilbert Ingvarsson
Ingi G. Sigurðsson
Jólianna Helgadóttir
M. Bernharðsson
Sjómannastola opnuð á ísafirði
Hinn 23. nóvemiber var hald
inn á ísafirði fundur í kjör-
dæmisráði Sjálfstæðisflokks-
ins í Vestfjarðakjördæmi og
hófst fundurinn kl. 2 e.h.
Á fundinum voru mættir 55
fu'lltrúar úr öllum sýslum
kjördæmisins.
Formaður Kjördæmisráðs,
Arngrímur Jónsson, skólastj.,
setti fundinn og skipaði fund
arstjóra Iþá Ólaf Guðbjarts-
son, oddvita, Patreksfirði og
séra Andrés Ólafsson, Hólma-
vík. Fundarritarar voru Finn
ur Th. Jónsson, Bolungarvík
og Óskar Kristjánsson, Suður-
eyri.
Fyrir fundinum lá að ganga
frá framboði flökksins til
næstu alþingiskosninga. Skil-
aði kjömefnd tillögum um
uppstillingu þriggja efstu
manna lisfans, og eftir nokkr
ar umræður um uppstilling-
una, var endanlega gengið
frá framboðslitanum þannig:
1. Matthías Bjarnason, al-
þingismaður, ísafirði.
2. Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson, framkvæmdastj.
Reykjavík.
3. Ásberg Sigurðsson, al-
þingismaður, Reykjavík.
4. Arngrímur Jónsson, skóla
stjóri, Núpi.
5. Hildur Einarsdóttir, frú
Bolungarvík.
6. Jón G. Kristjánsson, stud.
jur, Hólmavík.
7. Engilbert Ingvars., bóndi,
Mýri.
8. Ingi Garðar Sigurðsson,
tilraunastjóri, Reykhólum.
9. Jóhanna Helgadótrtir, frú
Prestsshólum.
10. Marzellíus Bemharðsson,
skipasmíðameistari ísaf.
Em 5 efstu sæti framboðs-
listans skipuð í samræmi við
úrslit prófkjörs, sem fram fór
í kjördæminu 7. og 8. nóv.
sl., og skýrt er frá á öðmm
stað hér í biaðinu.
Sunnudaginn 15. nóvember
var opnuð sjómannastofa á
ísafirði, og er hún til húsa
á efstu hæð Alþýðuihússims.
Em það samtök sjómanna á
Isafirði, sem eiga heiðurinn
af þessu framtaki, þ.e. Sjó-
mannafélag ísfirðinga, Skip-
stjóra- og stýrimannafélagið
Bylgjan, Vélstjórafélag Isa-
fjarðar og Smábátaeigendafé-
lagið Huginn.
í tilifni af opnun sjó-
mannastofunnar buðu for-
ráðamenn hennar nokkmm
gestum og fréttamönnum
þangað til kaffidrykkju.
Formaður Skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Bylgj-
unnar, Halldór Hermannsson,
bauð gesti velkomna og
skýrði frá þvi að á s.l. vetri
hefðu sjómannafélögin ákveð-
ið að ráðast í þessa fram-
kvæmd, þar eð álitið hefði
verið, að þörf væri fyrir
slíka sjómannastofu á ísa-
firði, þar sem sjómenn gætu
átt athvarf í frístundum,
spilað og teflt, lesið blöð og
bækur, hlýtt á útvarp og
horft á sjónvarp.
Kostnaðurinn við að breyta
og lagfæra húsnæðið í Al-
þýðuhúsinu, búa það hús-
gögnum o.fl., kvað Halldór
hafa verið talsverðan, en
fjár til þess hafi m.a. verið
aflað með framlagi frá
rækjuveiðimönnum, aðallega
frá ísafirði, og öðmm sjó-
mönnum, svo og með styrk
frá nokkrum fyrirtækjum,
sem skipti eiga við sjómenn.
Þá fékkst einnig nokkur
styrkur af opinbem fé, sem
Ingólfur Stefánsson, formað-
ur Farmanna- og fiskimanna-
sambands Islands, aðstoðaði
við útvegun á.
Halldór þakkaði öllum
þeim, sem stutt hefðu að því
að hægt var að koma sjó-
mannastofunni á laggirnar,
og óskaði þess að starfræksla
hennar mætti verða sjómönn-
um til gagns og ánægju.
Hallgrímur Jónsson hefur
verið ráðinn til að veita sjó-
mannastofunni forstöðu. —
Mælti hann nokkur orð og
þakkaði þeim frú Ruth
Tryggvason og frú Bergrínu
Jónsdóttur fyrir mikilsverða
aðstoð í sambandi við undir-
búning að opnun stofunnar.
Þá skýrði hann frá því að
Gmnnvíkingafélagið á ísafirði
Framhald á 2. síðu.