Vesturland - 05.12.1970, Page 3
SJ2R3) aJessrfíRzxxx ssAapsfwt&mxxn
3
Minningarorð:
r
Olafur Guðjónsson
Aðfaranótt hins 23. nóv.
s.l. lézt hér á sjúkrahúsinu
Ólafur Berg Guðjónsson fyrr-
verandi útgerðarmaður, á
78. aldursári. Hann var fædd-
ur hér á ísafirði 26. febrúar
1893. Foreldrar hans voru
þau hjónin Helga ólafsdóttir
(bónda að Eyri við Önundar-
fjörð, Magnússonar, og seinni
konu hans Sigurborgar Sum-
arliðadóttur) og Guðjón Lúð-
vík Jónsson, sem um langt
órúbil var Ihafnsögumaður hér
(Sturlusonar verzlunarmanns
hér á ísafirði og Hildar Tyrf-
ingsdóttur frá Tungu í Skut-
ulsf irði Hinrikssonar).
Þau Guðjón og Helga
bjuggu hér í toænum alan
sinn búskap, og var heimili
þeirra íþekkt að rausnar- og
myndarskap. Guðjón þótti
stjómisamur og atkvæð,amikill
í starfi sínu, og Helga skör-
umgskona, vel gefin og trygg-
lynd. Á fyrri hluta aldarinn-
ar hófst hér ný veiðiaðferð.
Var það ádráttarveiði fyrir
smásíld. Síldin var veidd hér
á Poliinum og seld til beitu
hér og í nálægar verstöðvar.
Guðjón lóðis átti slíkt „nóta-
brúk“, eins og Iþað var kall-
að, og stundaði þessa veiði
á hverju vori. Þeir ólafur og
bræður hans byrjuðu strax í
æsku að starfa að þessum
útvegi með föður sánum.
Bnártt kom í ljós að Ólafur
var þar vel til forustu 'fall-
inn, og gerðist þyí ungur að
árum fonrmaður á þessum út-
vegi, sem síðar varð sameign
þeirra feðga.
Bftir að vélar voru al-
mennt teknar í riotkun í bát-
um hér, keyptu þeir feðgar
véllbát, og var þá haldið til
veiða í ifirðina inni í Djúp-
inu. Var Ólafur þar að aðal
hvatamaður. Það var þegar
vitað, en kom nú betur í
Ijós, að hann var fengsæll
formaður og sérlega lángef-
inm. Við iþessa veiði, sem og
allan veiðiskap, er eftirtekt
og got’t minni þýðingarmikið
atriði. Þessum eiginleikum
gamall er hann tók fyrst við
formennsku á vélbáti. Var
hann alla táð kappsfullur sjó-
sóknari og afliamaður og vin-
sæll og vel iátinn af öllum,
er honum kynntust. EftMif-
andi eiginkona Árna er Mar-
grét Barlaug,. norsk að ætt,
og eignuðuisit þau 3 syni, sem
allir eru á lífi.
var ólafur gæddur í rí'kum
mæli. Þetta starf krafðist
auk þess árvekni og þolin-
mæði. Það þurfti að kynnast
dýpi og botnlagi í hinum
mörgu fjörðum inndjúpsins,
og læra að sigla eftir miðinn
um vandrötuð skerjasvæði og
grynningar. Ég held, að fáir
menn hér við Djúp hafi ver-
ið kunmugri og ratvísari á
þessum slóðum en hann.
Enda henti hann aldrei slys
eða óhapp öll þau ár er hann
hafði á hendi foimennsku
við þessar veiðar. Sjómaður
var Ólafur góður og veður-
glöggur vel. Enda þótt veiði-
svæðið væri innfjarða, vita
það ailir, sem kunnugir eru,
að þar korna oft váleg veður
og sjóar miklir, og er þar
því erfiðara viðfangs, þar
sem um boða- og grynninga-
svæði er að fara, og þarf
því að viðhafa góða aðgæzlu
og kunnugleika til að sigla
‘þar litlum bátum, oftaist með
tvo eða fleiri nótabáta í
drætti.
Vinsældir Ólafs voru mikl-
ar, og gat hann valið úr
mönnum í skiprúm. En
oftast voru sömu menn með
honum ár eftir ár. Það ríkti
hjá þeirn bræðrum sérstakur
andi félagslyndis og frjáls-
ræðis, sem óvíða þekktist
annars staðar þá. Þarna var
eins og samrýmd friðsæl
fjölskylda.
Hvar sem komið var að
landi, að bæjum eða verstöðv-
um við Djúp, var Ólafi og
mönnum hans tekið af ein-
stakri gestrisni, og stóðu
honuim þar allar dyr opnar.
Framhald á 5. síðu
í\í).:
Iðnskóli ísafjarðar
Innritun nemenda í allar bekkjardeildir fer fram
hjá skólastjóra Seljalandsvegi 16, fram til 18. des.
Inntökuskilyrði eru að vera orðin 16 ára og hafa
Iokið miðskólaprófi.
Umsækjendur 18 ára og eldri liafa rétt til að
þreyta inntökupróf.
Innritun í framhaldsdeild skólans með námsefni
undirbúningsdeildar Tækniskóla íslands fer fram
á sama tíma.
SKÓLAST J ÓRI.
AMRABORG
l
Allt I jólabaksturinn
Mikið úrval af kertum
og konfekti.
Gerið kjötpantanir tímanlega.
Ný reglugerð -
Nýjar stærðarreglnr
Hinn 2. október sl. tók gildi ný reglugerð um lánveit-
ingar húsnæðismálastjómar. Fjallar hún um lánveit-
ingar til einstaklinga til byggingar nýrra íbúða, meiri
háttar viðbygginga eða til kaupa á nýjum íbúðum; um
lán til framkvæmdaaðila í byggingariðnaðinum vegna
íbúðabygginga; um lán til bygginga leiguíbúða í kaup-
stöðum og kauptúnum; um lán til einstaklinga vegna
kaupa á eldri íbúðum; um lán til sveitarfélaga vegna
útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis. Telur stofnunin
þörf á að vekja nú, öðm fremur, athygli á eftirfar-
andi atriðum hinnar nýju reglugerðar:
I. Breytingar hafa orðið á þeim ákvæðum, er gilda
um íbuðarstærðir hinna ýmsu f jölskyldustærða.
Eru þau nú á þennan veg:
„Við úrskurð um lánshæfni umsókna skal hús-
næðismálastjórn fylgja eftirfarandi reglum, varð-
andi stærð nýbygginga, miðað við innanmál hús-
veggja:
a) Fyrir einstaklinga hámarksstærð 50 m2
b) Fyrir 2ja—3ja manna fjölskyldu, hámarks-
stærð 100 m2-. í f jölbýlishúsum, en 110 m2- í
einbýlishúsum.
c) Fyrir 4—5 manna fjölskyldu, hámarksstærð
120 m2 í fjölbýlishúsum, en 125 ma í ein-
býlishúsum.
d) Fyrir 6—8 manna fjölskyldu, hámarksstærð
135 m2
e) Ef 9 manns eða fleiri eru í heimili, má bæta
við hæfilegum fermetrafjölda fyrir hvern fjöl-
skyldumeðlim úr því, með þeirri takmörkun
hámarksstærðar, að ekki verði lánað út á
stærri íbúðir en 150 m2
Um c- og d-liði skal þess sérstaklega gætt, að
herbergjafjöldi sé í sem mestu samræmi við fjöl-
skyldustærð. Við mat fjölskyldustærðar skal ein-
ungis miðað við þá, sem skráðir eru til heimilis
hjá hlutaðeigandi umsækjanda, samkvæmt vottorði
sveitarstjórnar.
II. Lánsréttur sérhverrar nýrrar íbúðar, sem sótt er
um lán til, ákvarðast af dagsetningu úttektar á
ræsi (skolplögn) í grunni. Annast byggingarfull-
trúi hvers byggðarlags þá úttekt. Gildir þessi á-
kvörðun frá og með 2. okt. sl. og frá og með sama
tíma fellur úr gildi sú viðmiðun, er áður réði láns-
rétti (úttekt á undirstöðum í grunni) (sjá g-lið
7. gr. rlg.).
III. Eindagi fyrir skil á lánsumsóknum vegna nýrra
íbúða verður hér eftir 1. febrúar ár hvert, en eigi
16. marz, eins og verið hefur til þessa. Tekur hinn
nýi eindagi þegar gildi, en verður nánar auglýstur
síðar.
Húsnæðismálastofnunin hvetur alla þá, er þessi mál
snerta með einhverjum hætti, til þess að afla sér hinn-
ar nýju reglugerðar um lánveitingar húsnæðismála-
stjómar. Er unnt að fá hana í stofnuninni sjálfri og
eins verður hún póstsend þeim, er á henni þurfa að
halda og þess óska.
Reykjavík, 16. október 1970.