Vesturland - 05.12.1970, Qupperneq 5
&CK2) a/ésjfíKZXXJl S3tíJ2FXnZS»SMXM
5
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN
ríkisins mmmm
Nýr eindagi: 1. febrúar 1971,
vegna nýrra lánsumsókna
Húsnæðismálastofnimin vekur athygli hlut-
aðeigandi aðila á neðangreindum atriðum:
I. EINSTAKLINGAK, er hyggjast hefja byggingu
íbúða eða festa kaup á nýjum íbúðum (íbúðum í
smíðum) á næsta ári 1971, og vilja koma til greina
við veitingu lánsloforða á því ári, skulu senda láns-
umsóknir sínar með tilgreindum veðstað og til-
skildum gögnum og vottorðum til stofnunarinnar
FYRIR 1. FEBRÚAR 1971.
II. FRAMKVÆMDAAÐILAR 1 BYGGINGARIÐNAJÐ-
INUM, er hyggjast sækja um framkvæmdalán til
íbúða, sem þeir hyggjast byggja á næsta ári, 1971,
skulu gera það með sérstakri umsókn, er verður að
berast stofnuninni FYRIR 1. FEBRÚAR 1971, enda
hafi þeir ekki áður sótt um slíkt lán til sömu
íbúða.
III. SVEITARFÉLÖG, FÉLAGSSAMTÖK, EINSTAK-
LINGAR OG FYRIRTÆKI, er hyggjast sækja um
Ián til byggingar leiguíbúða á næsta ári í kaup-
stöðum, kauptúnum og á öðrmn skipuiagsbundnum
stöðum, skulu gera það FYRIR 1. FEBRÚAR 1971.
IV. Þeir, sem nú eiga óafgreiddar lánsumsóknir hjá
stofnuninni, þurfa ekki að endumýja þær.
V. Umsóknir um ofangreind lán, er berast eftir 31.
janúar 1971, verða ekki teknar til meðferðar við
veitingu lánsloforða á næsta ári.
Reykjavík, 5. nóv. 1970.
HOSN/EÐISIVIÁLASTQFNUN RfKISINS
LAUGAVEGI77, SlMI 22453
Auglýsið í VESTURLANDI!
Minningarorð...
Framhald af 3. síðu
Enda var greiðvikni hans
annáluð, og þeir margir sem
nutu hjálpar hans um flutn-
ing á fólki og vamingi. Það
var mi'kil samgönguibót er
bátar hans voru í förum frá
veiðistöðunum út í verstöðv-
amar. Þar fengu ailir sem
vildu að fljóta með — og
ávailt endurgjaldslaust. Þetta
starf krafðist kunnáttu í
netagerð, og var Ólafur við
nám í þessari iðn, bæði í
Reykjavík og á Akureyri, og
var meistari í þeirri iðngrein.
Hann var um langt árabil
prófdómari við loka próf iðn-
nema í þessari grein.
Þegar þessi veiði lagðist
niður, er leið á fimmta ára-
tuginn, réðst Ólatfur til Vél-
smiðjunnar Þór hf., og starf-
aði þar til hinztu stundar.
Ólafur kvæntist 4. nóvem-
ber 1939 Camillu Jónsdóttur,
Brynjólfssonar útgerðar-
manns hér í bænum. Camilla
var mikil myndar- og fríð-
leikskona. Sambúð þeirra var
stutt, því hún andaðist 24.
janúar 1947. Þau eignuðust
tvö börn: Jón, flugvélavirki
búsettur í Reykjavík, grftur
Soffíu Johnsen, og Helga Ása,
búsett í Haínarfirði, gift
Guðjóni Jóhannssyni húsa-
smíðameistara. Auk þess ól-
ust upp hjá þeim tvær dætur
OamiUu frá fyrra hjónabandi
hennar, Bryndís og Bjamdis.
Ég kveð þennan góða vin
að sinni, og þakka honum
samfylgdina. Ég finn, að
skarð hans stendur autt, og
að það verður vandfyllt. Hins
vegar hlýja ég mér við minn-
ingamar um góðan dreng,
og margar Ijúfar gleðistund-
ir. Við hjónin þökkum hon-
um þær mörgu ánægjustund-
ir, er hann dvaldi hjiá okkur
sem góður heimilisvinur, sem
bömin okkar litu ávallt á
sem eftirilátan frænda. Og
þegar hann nú brýnir báti
sínum að hinni eilífu strönd,
handan móðunnar miklu, veit
ég, að honum verður þar vel
tekið. Til þess hefur hann
unnið. Finnur Magnússon.
Hjartanlegt þakklæti færum við öllum þeim mörgu, sem sýndu
okkur samúð og margvíslega vináttu við andlát og jarðarför
HALLDÓRU MARÍASDÓTTUR, Bolungarvík.
Fátækleg orð megna ekki að tjá þakklæti okkar þeim mörgu
vinum okkar, bæði hér heima og víða um land, sem við stöndum
í þakklætisskuld við, — en biðjum þeim öllum Guðs blessunar.
Kjartan Guðjónsson og aðstandendur
Boliuigarvík.
Póstburðargjöld
FRÁ 1. NÓVEMBER 1970
Vakin skal sérstök athygli á, að ekki eru
lengur sérstök póstburðargjöld innan bæja-
og sveitarfélaga, heldur verða gjöldin þau
sömu fyrir allt landið.
INN ANL ANDSPÓSTUR
Bréf 20 g. kr. 7,00
— 100 g. — 14,00
Bréfspjöld — 5,00
Prent 50 g. — 5,00
Bögglar 1 kg. — 30,00
— 3 kg. — 50,00
— 5 kg. — 70,00
FLUGPÓSTUR TIL UTLANDA BRÉF PRENT
Norðurlönd: 20 g. kr. 10,00 50 g. kr. 8,00
— 40 g. kr. 20,00 100 g. — 14,00
— 60 g. — 23,00 150 g. — 20,00
— Brétfspjöld kr. 7,00
St. Bretl. og írL: 20 g. kr. 13,00 60 g. kr. 8,00
— — — — 40 g. — 22,00 100 g. — 14,00
— — — — 60 g. — 31,00 150 g. — 20,00
— — — — Bréfspjöld kr 9,00 g-
BRÉF PRENT
Bandar. og Kanada: 5 g. kr. 13,00 10 g. kr. 7,00
— - — 10 g. kr. 16,00 20 g. kr. 9,00
— - — 15 g. kr. 19,00 30 g. kr. 11,00
— 20 g. kr. 22,00 40 g. kr. 13,00
— 25 g. kr. 31,00 50 g. kr. 15,00
— - — 30 g. kr. 34,00 60 g. kr. 20,00
— - — Biréfspj. kr. 12,00 70 g. kr. 22,00
SJÓPÓSTUR TIL ÚTLANDA
TIL NORÐURLANDA er burðargjaldið fyrir bréfa-
sendingar sama og innanlands.
TIL ANNARRA LANDA EN NORDURLANDA:
BRÉF PRENT
20 g. kr. 10,00 50 g. kr. 5,00
og fyrir hver við- og fyrir hver við-
bótar 20 g. kr. 6,00 bótar 50 g. kr. 3,00
Bréfspjöld kr. 6,00
Nánari skrá yfir póstburðargjöld er hægt að fá hjá
póstafgreiðslum um allt landið.
Póst- og símamálastjórnin.